SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Page 24

SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Page 24
24 12. júní 2011 Þ egar Ilan Volkov talar um tónlist fer hann á flug. Allt fer á ferð, munnurinn, hendurnar, augun: Maðurinn talar með öllum lík- amanum. Útilokað er að hrífast ekki með. Nýi aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur bersýnilega brennandi áhuga á sínu starfi. Við sitjum í forsal Hörpunnar okkar og mann langar helst að hlaupa inn í Eldborgina og byrja að spila. Ég sit þó á mér enda yrði sá gjörningur engum manni til góðs. Volkov er í sinni fyrstu heimsókn á Ís- landi eftir að hann var ráðinn aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníunnar til næstu þriggja ára og er að kynnast Hörpu í fyrsta skipti eftir að tónlistarhúsið var tekið í notkun. „Ég var síðast hér á landi í sept- ember og kom þá hingað í Hörpu og leist vel á allar aðstæður, hljómburðurinn var þegar orðinn mjög góður enda þótt það vantaði gólfið og stólana. Núna er ég bú- inn að vera á einum tónleikum í húsinu, þar sem fjórða sinfónía Mahlers var meðal annars á efnisskránni, og þeir lofuðu virkilega góðu. Vitaskuld þarf ég að heyra miklu fleiri verk og sitja víðar í salnum til að geta kveðið upp endanlegan dóm en húsið gefur sannarlega góð fyrirheit. Hljómburðurinn er mjög góður, salurinn litríkur og skemmtilegur og andrúms- loftið notalegt. Salurinn er mjög hljóðlátur sem kemur sér vel fyrir hljómsveitina. Lengi getur gott batnað og eins og gengur þarf að laga eitt og annað smálegt í salnum en því verki lýkur vonandi strax í haust þegar hljómsveitin kemur úr sumarfríi. Frá og með haustinu verður Harpa komin í toppstand – því lofa ég.“ Flóknari og fágaðri Volkov þekkir vel til verka hljóðhönnuða hússins, Artec, og segir fátt í þeirra vinnu hafa komið sér á óvart. „Þeir hönnuðu líka hljóðið í tónlistarhöllinni í Birmingham, sem ég hef oft stjórnað í, en hér er hönn- unin bæði flóknari og fágaðri.“ Hljómburður er skrýtin skepna, að dómi Volkovs. „Hljómburður er eins og bíll, sumir hafa áhuga á honum, aðrir ekki. Sumir hafa efni á honum, aðrir ekki. Það geta þó örugglega flestir – ef ekki allir – verið sammála um að tónleikar í Hörpu eru allt önnur upplifun en tónleikar í Há- skólabíói.“ Volkov leggur þó áherslu á, að fleira en hljómburður þurfi að vera fyrir hendi eigi tónlistarhús að gera sig. „Í því sambandi stendur Harpa ákaflega vel að vígi. Hún er klárlega með þægilegustu tónlistarhúsum sem ég hef komið í – og hef ég komið í þau nokkur um dagana. Húsið er mjög hljóð- látt, hér geta hæglega tvö hundruð manns verið saman komin án þess að örli á hávaða. Það er ótvíræður kostur, hvort sem maður er að spóka sig á göngum eða fá sér bita á veitingastaðnum.“ Eldborgin verður athvarf Sinfóníunnar en Volkov er þegar farinn að sjá fleiri möguleika í húsinu, til dæmis í forrýminu. „Ég er strax orðinn bálskotinn í þessu rými og er staðráðinn í að gera eitthvað hér. Það er líka kostur að Eldborg og Norðurljós skuli vera á sömu hæðinni, það gefur okkur tækifæri til að láta viðburði flæða um húsið. Möguleikarnir í húsinu eru margir og ég sé ekki annað en auðvelt verði að höfða til hinna ólíkustu hópa. Það er skylda hús- bænda í svona glæsilegu húsi að deila því með sem flestum og Harpan á eftir að lyfta tónlistarlífinu á Íslandi á æðra plan.“ Volkov segir menn samt ekki mega gleyma því að húsið sjálft er bara upphafið. „Harpan er ekki kvöldverðurinn, heldur eldhúsið þar sem kvöldverðurinn verður til. Það er okkar tónlistarmannanna að gæða húsið lífi.“ Að öðrum ólöstuðum mun þar mæða mest á Sinfóníuhljómsveit Íslands, segir Volkov. „Við munum ekki láta okkar eftir liggja. Dagskráin verður að vanda fjöl- breytt, boðið verður upp á áskriftar- tónleika, fjölskyldutónleika, tónleika fyrir börn, popptónleika, jólatónleika og margt fleira. Vissulega höfum við gert allt þetta áður en nú verður gefið í sem aldrei fyrr, þökk sé Hörpu.“ Hróður Sinfóníuhljómsveitar Íslands hef- ur borist um víðan völl og sveitin ekki átt í vandræðum með að laða heimfræga ein- leikara og stjórnendur til samstarfs við sig gegnum árin. Volkov segir tækifærin verða enn fleiri eftir vistaskiptin úr Háskólabíói. „Hljómsveitin hefur haft allt með sér – nema húsið. Nú er hún komin með heimili sem er henni samboðið og um leið og ágæti hússins og hljómburðarins fer að spyrjast út munu menn bíða í röðum eftir að koma hingað til að spila eða stjórna. Það er eitt að spila Mahler eða Beethoven í Háskólabíói, annað í Hörpu – allt annað. Tónelskir Ís- lendingar hafa þegar fengið forsmekkinn af því.“ Hann segir líka allt annað að æfa í alvöru tónlistarhúsi, það hafi á köflum verið erfitt að heyra almennilega hvað var á seyði í Há- skólabíói, standandi á pallinum. „Það var svo sem engin kvöl og pína að vinna þar en ég sá ekki fyrir mér að ég gæti stjórnað þar fimm eða sex tónleikum á ári. Harpa á stór- an þátt í því að ég ákvað að taka starf aðal- hljómsveitarstjóra að mér.“ Volkov gleðst innilega með hljóðfæra- leikurunum. „Nema hvað? Hljómsveitin Ögrandi útópía Ísraelsmaðurinn Ilan Volkov, sem tekinn er við starfi aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, brennur í skinninu að vinna reglulega með sveitinni. Hann hefur mjög skýra sýn á starfið og ætlar að nýta tímann vel. Íslensk verk verða ekki látin sitja á hakanum í hans tíð. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Mynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.