SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Page 31
Skælbrosandi Hrafnhildur um það bil
tveggja ára gömul.
Hrunalaug í Hrunamannahreppi. Þar var ég í sveit á bænum
Þverspyrnu og lenti ég í ýmsum ævintýrum.
Við áttum það til að vera með skemmtiatriði í fjölskyldunni. Þarna erum við syst-
kinin Grímur, Ketill, ég með bollukinnarnar og Guðrún.
Ég, Smári Ríkharðsson, eig-
inmaður minn, Sindri, Selma og
Sandra á fermingardegi Selmu.
Ég og Hjördís Sigurðardóttir vinkona mín að dansa með
frumbyggjum í Marrai Mara eyðimörkinni í Kenya árið 1999.
Golfhópurinn minn: Herdís, Hildur, Vallý, Ingunn,
Addý, Guðbjörg og ég á Flórída. Þið getið rétt
ímyndað ykkur hlátrasköllin í ferðum hjá okkur.
Ofvirka út-
varpskonan
Hrafnhildur Halldórsdóttir út-
varpskona RÚV opnar mynda-
albúmið sitt að þessu sinni.
Fjölskyldan skellti sér til Toscana í tilefni af 80 ára afmæli
föður míns, Halldórs Björnssonar.
Ég og Soffía á góðri stundu í Tirol í Austurríki
ásamt austurrískri vinkonu okkar Birgit.
Við Smári giftum okkur 2. apríl 1994 í Dómkirkjunni og það
er enn talað um fjörið umrætt kvöld. Það þurfti að minna
brúðurina á að fara heim á undan síðustu gestum.
Ég og mennirnir í lífi mínu, Smári og Sindri, sonur minn á
toppi Vífilfells sl. haust. Útsýnið var dásamlegt.
Fjölskyldan í Hlíðarfjalli síðustu áramót með systur minni og
fjölskyldu hennar. Þetta hefur verið okkar annað heimili.
H
rafnhildur Halldórsdóttir fæddist árið 1964.
Hún ólst upp í Kópavogi og lauk þar grunn-
og framhaldsskólanámi. Eftir stúdentspróf lá
leiðin til Salzburg í Austurríki og bjó hún þar í
6 ár. Þar nam Hrafnhildur fjölmiðlafræði við Háskólann í
Salzburg og útskrifaðist árið 1992. „Þetta var hreint ynd-
islegur tími þar sem ég bjó á slóðum Mozarts og Sound of
music og hreinlega andaði að mér menningunni“. Hrafn-
hildur ferðaðist mikið á þessum tíma.
Árið 1994 hóf Hrafnhildur störf hjá Ríkisútvarpinu og
var þar meðal annars pistlahöfundur, umsjónar-
maður morgunútvarpsins á Rás 2 og fleira. Í dag er
Hrafnhildur umsjónarmaður Samfélagsins í
Nærmynd á Rás 1 og var þulur í Eurovision nú
síðast.
Vinir Hrafnhildar segja hana ofvirka en
hún stundar skíði á veturna, og á Hrafn-
hildur þrjú börn sem öll hafa æft skíði. Á
sumrin spilar hún golf og skellir sér
einnig í veiði af og til. „Ég er enginn
ofurgolfari eða ofurveiðimaður, ég er
meira svona dúllari. Í sumar ætla ég að
reyna að bæta forgjöfina, fara í úti-
legur, veiða og vera sem mest úti við
og njóta sumarsins sem er í vændum.“
gunnthorunn@mbl.is
Ég fór á Ólafsvöku í Fær-
eyjum 2007 ásamt Guðna
Má, vinnufélaga mínum en
við sendum út beint þaðan.
Kæling í hitabylgju í Bret-
landi með kærri vinkonu
minni Guðrúnu Gunnars.
Ég hef gaman af því að veiða
og er hér að vigta einn væn-
an sem ég fékk í Hrútunni.
Úr einhverju
Reykjavík-
urmaraþoninu.
Myndaalbúmið