SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Page 38

SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Page 38
38 12. júní 2011 S uðurlandsskjálftar riðu yfir kl. 15:46 hinn 28. maí 2008. Jörð bifaðist í skjálfta sem mældist 6,3 á Richter-kvarða. Margir eftirskjálftar fylgdu og færðist virknin í vesturátt eftir því sem á leið. Ingólfsfjall hvarf í rykmekki og hávaðinn var ógurlegur. Alls slösuðust 28 í jarðskjálftunum, þar af 21 með minni- háttar meiðsl og sjö leituðu aðstoðar á slysadeild – þó enginn alvar- lega slasaður, sem mest var um vert. Eignatjón var mikið. Á hundr- uðum heimila á Árborgarsvæðinu, svo sem á Selfossi og í Hveragerði, mélaðist allt niður og tugir húsa fóru svo illa að ekki var um annað að ræða en méla þau undir jarðýtutönn og moka burt. Viðlagatrygging Íslands fékk tilkynningar um tjón á liðlega 3.500 mannvirkjum og voru greiddar bætur sjóðsins 7,5 milljarðar kr. í heild. Allur gangur var á því hversu illa heimili urðu fyrir barðinu á jarð- skjálftanum. Í götu einni á Selfossi höfðu öll húsgögn farið á flug, en í næstu götu varla nema rétt að myndir skekktust á veggjum. Heimili Björns Sigurðssonar við Laufhaga á Selfossi kom sérstaklega illa út úrBjörn Sigurðsson á Selfossi á heimili sínu eftir Suðurlandsskjálftana 2008. Allt á tjá og tundri. Morgunblaðið/ Golli Myndasafnið 31. maí 2008 Skjálftarnir reyndu á fólk V erðlaunahátíð Samtaka fatahönnuða í Banda- ríkjunum (CFDA) var haldin í New York í vikunni en þar voru fatahönnuðir heiðraðir og fyrirfólk úr tískuheiminum lét sjá sig. Þetta eru stærstu tískuverðlaunin í Bandaríkjunum, ef ekki heiminum öllum. Poppdrottningin Lady Gaga var verðlaunuð en hún var valin tískutáknmynd ársins, enda hefur hún verið mest áberandi einstaklingurinn í popp- heiminum síðastliðið ár og hafa áreiðanlega fáir skipt jafn oft um föt og hún. Til viðbótar nálgast klæðnaður Lady Gaga oftast það að vera hreinlega búningur. „Múnderingin“ sem hún var í við athöfnina var kjóll frá Thierry Mugler við himinháa hæla (30 sentimetrar!) og svo var hún með grænbláa hárkollu. Ruglaðist á Önnum Í þakkarræðu sinni sagðist hún ekki trúa því „að henni væri hleypt þarna inn“. Svo sagði hún söguna af því hvernig hún frétti af verðlaununum. „Anna Wintour [rit- stjóri bandaríska Vogue] sendi mér skilaboð en ég hélt að þetta væri Anna Treve- lyan sem er ein af bestu vinkonum mínum,“ sagði hún en vinkonan er jafnframt aðstoðarkona stílista söngkonunnar. „Ég svaraði: „Já, tíkin þín, okkur tókst það!“ en svarið sem ég fékk var: „En indælt!““ Fyrrverandi fyrirsætan Iman (og eiginkona Davids Bowie) var valin tískutákn- mynd ársins í fyrra. Fyrri verðlaunahafar eru m.a. Kate Moss (2005), Sarah Jes- sica Parker (2004) og Nicole Kidman (2003). Fjölmargar stjörnur voru mættar á staðinn, meðal annars til þess að afhenda verðlaun, af þeim má nefna Jessicu Alba, sem er kasólétt, Gerard Butler, Kanye West, Karolinu Kurkova og Naomi Watts. Það er ekki ókeypis að mæta á þessa verðlaunahátíð en sætið kostaði um 1,1 milljón króna og söfnuðust um 150 milljónir króna fyrir samtökin, sem þau eyða í ýmis uppbyggileg verkefni í tískuheiminum. Kynnir á hátíðinni var hinn silfurhærði fjölmiðlamaður Anderson Cooper. Aðrir verðlaunahafar eru meðal annars Marc Jacobs, sem fékk sérstök heiðursverðlaun, Hilary Alexander frá breska blaðinu Daily Telegraph fékk fjölmiðlaverðlaun kennd við Eugeniu Sheppard, Alexander Wang var valinn fylgihlutahönnuður árins, Phoebe Philo fékk alþjóðleg verðlaun, Michael Bastian var valinn herrafatahönnuður ársins og kvenfatahönnuðir ársins eru Jack McCollough og Lazaro Hernandez, frá tískuhúsinu Proenza Schouler. Verðlaunahátíð Samtaka fatahönnuða í Bandaríkjunum var haldin í vikunni en þar var meðal annars Lady Gaga verðlaunuð en hún var valin tísku- táknmynd ársins. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Poppdrottningin klæddist kjól frá Thierry Mugler á verðlaunahátíðinni. ’ Lady Gaga er með sérstakan stíl og lítur oft út fyrir að vera í búningaleik. Fatahreyfingin verðlaunuð Frægð og furður Reuters

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.