SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Side 6
6 19. júní 2011
Miklar óeirðir brutust út í Vancou-
ver í Bresku Kólumbíu í Kanada eft-
ir að hokkílið borgarinnar tapaði
fyrir Boston Bruins á miðvikudag.
Stuðningsmenn Vancouver Ca-
nucks flugust á við lögreglu,
kveiktu í bílum, brutu glugga,
rændu verslanir og kveiktu elda
víða í miðborginni. Þar á meðal var
kveikt í tíu bílum. Átta manns voru
fluttir á sjúkrahús með stungusár.
Óeirðirnar hófust brátt eftir að
leiknum lauk og stóðu í fjórar
klukkustundir.
Þúsundir manna söfnuðust sam-
an til að horfa á leikinn á stórum
skjám líkt og í öðrum leikjum í úr-
slitakeppninni.
Svipaðar óeirðir brutust út í
borginni árið 1994 þegar Vancou-
ver tapaði einnig í sjöunda leik í úr-
slitum.
Mörg hundruð lögreglumenn
voru á vakt og áttu fullt í fangi við
að hemja óeirðaseggina.
„Það eru mikil vonbrigði að sjá
ofbeldið í miðborg Vancouver eftir
leikinn í Stanley-bikarnum í
kvöld,“ sagði Gregor Robertson,
borgarstjóri Vancouver, í yfirlýs-
ingu tveimur klukkustundum eftir
að leiknum lauk. „Vancouver er
borg í heimsflokki og vandræða-
legt og skammarlegt að sjá slíkt
ofbeldi og óreglu.“
Óeirðir eftir ósigur í Vancouver
Stuðningsmenn Vancouver Canucks fóru ránshendi um heimaborg sína
eftir tap í úrslitaleik gegn Boston á miðvikudag.
Reuters
S
igur hokkíliðs Boston Bruins gegn Vancou-
ver Canucks á útivelli í Kanada á mið-
vikudagskvöld var sætur. 39 ára þrauta-
ganga var á enda. Fimm sinnum hafði liðið
komist í úrslit í viðureigninni um Stanley-bikarinn
frá því að það sigraði síðast árið 1972, en aldrei unn-
ið. Á miðvikudag urðu birnirnir frá Boston meist-
arar í NHL-deildinni og lyftu Stanley-bikarnum.
Boston Bruins sýndu mikla seiglu í úrslitakeppn-
inni og létu mótlæti ekki á sig fá. Í fyrra var liðið
slegið út í úrslitakeppninni eftir að hafa náð þriggja
leikja forustu gegn Fíladelfíu. Liðið þurfti fjóra
sigra, en tapaði fjórum leikjum í röð og þeim síðasta
og sjöunda eftir að hafa náð þriggja stiga forustu.
Þetta ár var annað uppi á teningnum. Liðið lenti í
þriðja sæti í austurdeildinni í vor. Í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar tapaði liðið tveimur fyrstu leikj-
unum fyrir Montreal Canadiens, en hafði á end-
anum betur eftir framlengingu í leik sjö. Úr-
slitamarkið skoraði Nathan Horton, sem átti eftir að
koma meira við sögu.
Næsti andstæðingur var Philadelphia Flyers, sem
Bruins unnu auðveldlega. Þá kom röðin að Tampa
Bay Lightning og aftur þurfti sjö leiki til að útkljá
viðureign liðanna. Enn á ný skoraði Horton úr-
slitamarkið.
Mikil harka var í leikjum Boston og Vancouver.
Vancouver náði besta árangri allra liða á venjulega
leiktímabilinu og naut því heimavallarréttarins. Í
fyrsta leiknum beit einn leikmaður Vancouver leik-
mann Boston í fingurinn. Vancouver vann fyrstu
tvo leikina, en í leik þrjú vann Boston stórsigur,
8-1. Í þeim leik rotaðist áðurnefndur Horton og
fékk heilahristing eftir vel útilátið högg frá Aaron
Rome, leikmanni Tampa Bay. Rome var dæmdur í
fjögurra leikja keppnisbann fyrir vikið og er það
lengsta bann í sögu úrslitanna. Horton viðurkenndi
síðar að hann hefði hellt vatni úr Boston Garden á
ísinn í Vancouver „til að gera hann að okkar ís“.
Boston vann einnig fjórða leikinn, 4-0, og jafnaði
seríuna, en fimmta leikinn vann Vancouver, 1-0. Í
tveimur síðustu leikjunum tók Boston-liðið völdin,
sigraði í þeim sjötta 5-2 og vann þann sjöunda 4-0.
Vancouver hóf reyndra lokaleikinn af krafti og
markmaðurinn Tim Thomas þurfti hvað eftir annað
að taka á honum stóra sínum áður en Boston komst
inn í leikinn. Aldrei áður hefur lið sigrað í NHL-
deildinni eftir að hafa þurft að leika sjö leiki í þrem-
ur viðureignum. Aldrei áður hefur lið í úr-
slitakeppni haldið hreinu í sjöunda leik á útivelli.
Fyrirfram þóttu Vancouver Canucks sig-
urstranglegra liðið. Boston skoraði hins vegar 23
mörk í leikjunum sjö á móti átta mörkum Vancou-
ver. Thomas var frábær í úrslitakeppninni og fór á
kostum í viðureigninni við Vancouver. Í upphafi
sjöunda leikjarins varði hann sitt 762. skot í úrslit-
unum og sló þar með met, sem Kirk McLean hjá
Vancouver setti 1994. Alls varði hann 37 skot í
leiknum.
Hokkíaðdáendur í Boston hafa mátt horfa upp á
önnur íþróttalið borgarinnar fagna hvað eftir annað
meðan á þrautagöngu liðsins hefur staðið. New
England Patriots urðu meistarar í amerískum fót-
bolta 2001, 2003 og 2004, Red Sox í hafnabolta
2004 og 2007 og Celtics í körfubolta 2008. Í vikunni
var röðin komin að Bruins að fara sigurför um
borgina.
Urðu meistarar
á þrautseigjunni
39 ára þrautagöngu Boston
Bruins lauk í Vancouver
Liðsmenn Boston Bruins fagna með Stanley-bikarinn á lofti ásamt
starfsfólki liðsins. Boston hafði ekki unnið titilinn í 39 ár.
Reuters
Tim Thomas, markmaður Boston, ver eitt af 37
skotum sínum í úrslitaleiknum á miðvikudag.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Tim Thomas, markmaður Bost-
on, er 37 ára. Thomas ólst
upp í Flint í Michigan og for-
eldrar hans fóru með gifting-
arhringina sína til veðlánara til
að geta borgað fyrir hann gjöld
í markmannaskóla. Hann lék
lengi í smærri deildum í
Bandaríkjunum og í Evrópu, en
kom til Boston 2005. Nú er
hann talinn besti markmað-
urinn í íþróttinni.
Talinn besti
markmaðurinn
GRÓÐURMOLD - 50 LTR
Fáðu fjóra en borgaðu einungis
fyrir þrjá. Stykkjaverð, kr 1290
4 fyrir 3