SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 30
30 19. júní 2011 Þ að er alvarlegt umhugsunarefni hvað grundvallarstofnunum okkar unga lýðveldis gengur illa að takast á við erfið mál, sem upp koma á þeirra vettvangi. Þetta á við um Alþingi. Þetta á við um þjóð- kirkjuna. Og þetta á við um fleiri aðila eins og t.d. háskólasamfélagið. Alþingi tók rétta ákvörðun á sínum tíma að setja á stofn sérstaka rannsókn- arnefnd til þess að fjalla um ástæður og aðdraganda hrunsins og rétt að halda því til haga að það var Geir H. Haarde, þá- verandi forsætisráðherra, sem hafði for- göngu um það ásamt samstarfsmönnum sínum í þáverandi ríkisstjórn. Sú Rann- sóknarnefnd Alþingis skilaði góðu verki, sem mun lengi verða talin meginheim- ildin um það mál allt. Alþingi urðu hins vegar á alvarleg mis- tök í framhaldinu. Öll þjóðin veit að það er ranglátt að draga einn mann til ábyrgðar vegna hrunsins. En það var niðurstaða Alþingis að það skyldi gera. Öll þjóðin mun hafa óbragð í munninum um langa framtíð vegna þeirrar ranglátu ákvörðunar. Í því felst ekki að ráðherrar í fyrrverandi ríkisstjórn hljóti ekki að vera ábyrgir gerða sinna. Um það sagði ég í grein á þessum vettvangi hinn 2. október 2010: „Ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde á árunum 2007 til 2009 hljóta að axla þá ábyrgð, sem að þeim snýr vegna hrunsins en sú ábyrgð er ekki það sama og refsiábyrgð. Þegar hér er komið sögu er æskilegt að þeir geri þjóðinni ítarlegri grein fyrir sínum sjónarmiðum en þeir hafa gert til þess. Þjóðin á kröfu til þess og það er nauðsynlegt fyrir þá sjálfa.“ Þeir hafa ekki fengið slíkt tækifæri enn og nú er ætlast til að einn maður haldi þeirri málsvörn uppi í réttarhöldum fyrir landsdómi. Hugsunin í þessu er röng. Þeir voru kjörnir á Alþingi. Þingið kaus þá til setu í ríkisstjórn. Þeir hefðu átt að fá tækifæri til að svara fyrir gerðir sínar eða aðgerðaleysi á vettvangi Alþingis, í yfirheyrslum og vitnisburði fyrir þing- nefnd í alþjóðar augsýn og áheyrn eins og tíðkast í sumum nálægum löndum. Geir H. Haarde hefur sjálfur sagt að hann hefði haldið, að hann fengi slíkt tækifæri frammi fyrir þeirri þingnefnd, sem vann úr málinu í framhaldi af skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis. Í stað þess var ákveðið að ákæra einn mann. Og öllum ljóst innan þings og ut- an að það var engin tilviljun heldur út- hugsuð ákvörðun í atkvæðagreiðslu þeirra, sem ráða ferðinni í þinginu á þessu kjörtímabili. Nú stendur önnur af meginstofnunum samfélags okkar í svipuðum sporum og Alþingi. Þjóðkirkjan er að takast á við málefni, sem snertir þann siðferðilega grundvöll, sem kirkjan sem stofnun stendur á. Er henni að takast nokkuð betur til en Alþingi að fást við það, sem að henni snýr? Það er að vísu ekki komin endanleg niðurstaða í það. Þjóðkirkjan er nú á sama stað og Alþingi eftir að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis lá fyrir. Nú liggur skýrsla rannsóknarnefndar á veg- um kirkjunnar fyrir. Og nú hefur verið ákveðið að ný nefnd taki við úrvinnslu hennar alveg eins og Alþingi ákvað. En það er alveg ljóst, að umræður á kirkjuþingi hafa ekki aukið trú fólks á að kirkjan sem stofnun sé að horfast í augu við þann vanda, sem hún stendur frammi fyrir. Allir treysta öllum. Er það ekki gamla sagan? Háskólasamfélagið hefur ekki einu sinni haft fyrir því að ræða þær brota- lamir, sem hrunið sýndi að þar er að finna. Í hvaða ljósi ber að lesa skýrslur sérfræðinga háskólasamfélagsins um ís- lenzku bankana fyrir hrun? Af hverju er þessi spurning ekki einu sinni rædd á þeim vettvangi? Við viljum ekki sem þjóð horfast í augu við sjálf okkur. Eða treystum okkur ekki til þess. Við neitum að viðurkenna að návígið, ættartengslin, vináttan og kunningjatengslin eru grundvallarbrestir í samfélagsgerð okkar. Okkur tekst ekki að berja í þá bresti nema opna þjóðfélag- ið upp á gátt. Það er eina aðhaldið, sem dugar, til þess að koma í veg fyrir að ná- vígið leiði af sér nýtt hrun af einhverju tagi. Hvað veldur því, að það er eins og hrunið hafi ekkert kennt okkur? Að ein- hverju leyti er það skortur á forystu. Enginn hinna kjörnu forystumanna þjóðarinnar, sem nú eru á sviðinu, hafa fundið hjá sér hvöt til þess að ræða grundvallarspurningar í tengslum við hrunið, þau samfélagslegu álitamál, sem hafa komið upp. Þeir eru allar að ræða um tölur, krónur og aura. En forysta snýst um fleira. Við höfum ekki frekar en aðrar þjóðir átt nema örfáa raunverulega forystumenn á síðustu hundrað árum. Hrunið veitti okkur einstakt tækifæri til að horfast í augu við okkur sjálf, gera okkur grein fyrir veikleikum okkar sem samfélags og ræða hvernig við gætum úr þeim bætt. Það veitti okkur tækifæri til að hætta að lifa í sjálfsblekkingu og á óskhyggju. (Nýjasta sjálfsblekkingin, sem of margir eru haldnir af er að nýir kjarasamningar séu kjarabót. Þeir eiga eftir að leiða til verðhækkana, uppsagna, aukins atvinnuleysis og kjaraskerð- ingar). Kannski getur Geir H. Haarde snúið réttarhöldunum yfir honum sjálfum upp í samræður við þjóðina – þá þjóð sem sýndi honum einn mesta trúnað, sem hún getur sýnt nokkrum manni – sam- ræður um þessi grundvallaratriði? Kannski hefur enginn einstaklingur á þessari stundu betra tækifæri en einmitt hann til þess að knýja íslenzku þjóðina til að horfast í augu við sjálfa sig í stað þess að líta alltaf undan. Og þá mun vegur hans í huga og hjarta íslenzku þjóðarinnar aukast – frammi fyrir landsdómi. Þjóð sem neitar að horfast í augu við sjálfa sig Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is H inn 21 árs gamla Los Angeles-búa James Do- ugherty hefur eflaust ekki órað fyrir því þegar hann gekk að eiga stúlkuna í næsta húsi, hina sextán ára gömlu Normu Jeane Baker, á þessum degi fyrir 69 árum að hún ætti síðar eftir að verða ein frægasta og umtalaðasta kona sem uppi hef- ur verið. Unga parið hafði verið að slá sér upp og þegar forráðamaður Normu Jeane, Grace Goddard, ákvað að fylgja bónda sínum til Virginíu, þar sem honum hafði boðist bitastætt starf, urðu þau skyndilega að taka stóra ákvörðun. Ljóst var að Norma Jeane gæti ekki farið með til Virginíu (af ástæðum sem ekki liggja fyrir) og móðir hennar, Gladys Pearl Baker, sem á þessum tíma var vist- uð á stofnun vegna geðraskana, tók ekki í mál að vina- fólk ættleiddi stúlkuna. Til þess að forða Normu Jeane frá því að lenda enn og aftur á munaðarleysingjahæli kom upp sú hugmynd að Dougherty hreinlega kvæntist henni. Hermt er að ungi maðurinn hafi verið fráhverfur hugmyndinni í fyrstu en látið til leiðast fyrir áeggjan Normu Jeane sjálfrar og ekki síður Grace Goddard. Goddard þessi var besta vinkona móður Normu Jeane. Föður sínum kynntist Norma Jeane aldrei. Fyrstu sextán ár ævi sinnar hafði stúlkan þvælst á milli heimila og munaðarleysingjahæla, stundum gat Godd- ard haft hana, stundum ekki. Fyrir liggur að hún var beitt ofbeldi á einu heimilanna, hjá frænku sinni Olive Brunings í Compton, Kaliforníu, og sumir hafa gert því skóna að það hafi verið af kynferðislegum toga. Ein- hverjir ævisöguritarar Normu Jeane hafa velt því fyrir sér hvort sú reynsla hafi markað upphafið að ógæfu hennar, lyfjamisnotkun, svefntruflunum og fleiru. Brúðkaupið fór fram strax eftir að Norma Jeane hafði útskrifast úr grunnskóla og hafði frænka hennar og vel- unnari Ana Lower veg og vanda af undirbúningi. Fyrst um sinn var Norma Jeane heimavinnandi en fljótlega réð hún sig til starfa í lítilli verksmiðju í grenndinni. Í end- urminningum sínum kveðst hún ekki hafa upplifað sig sem eiginkonu – hafði mest yndi af því að leika sér úti við börnin í hverfinu þangað til eiginmaður hennar kall- aði á hana. Heimsstyrjöldin síðari var í algleymingi og ári síðar gekk James Dougherty í sjóherinn og sigldi út á Kyrra- hafið. Norma Jeane þrábað hann víst um að barna sig áð- ur enda óttaðist hún að hann skilaði sér ekki heim aftur. Dougherty þótti það af og frá, Norma Jeane væri enn of ung til að eiga barn. Hann lofaði hins vegar að ganga af einurð í málið þegar hann sneri aftur. Í fjarveru Doughertys fékk Norma Jeane vinnu í flug- vélaverksmiðju við að sprauta flugvélaparta og fara yfir fallhlífar. Þar kom ljósmyndari hersins auga á stúlkuna íðilfögru og í kjölfarið birtust myndir af henni í tímarit- inu Yank. Þar með voru örlög hennar ráðin. Norma Jeane komst á mála hjá Blue Book-umboðsstofunni og varð á augabragði vinsælasta stúlka stofunnar. Hún var hvött til að lita hár sitt ljóst og frækin ferill í kvikmynd- um var framundan undir tökunafninu Marilyn Monroe. Þegar aumingja James Dougherty sneri heim í stríðs- lok var hjónabandinu lokið. Hann gekk í lögregluna og sneyddi alla tíð hjá bjarma sviðsljóssins. Dougherty lést árið 2005, 84 ára að aldri. Marilyn Monroe giftist aftur í tvígang, fyrst hafnaboltahetjunni Joe DiMaggio og síðan leikritaskáldinu Arthur Miller. Báðum hjónaböndum lauk með skilnaði. Monroe lést af völdum ofnotkunar lyfja sumarið 1962. Hún var einungis 36 ára. orri@mbl.is Norma Jeane gengur út Norma Jeane Dougherty á unglingsárum sem fyrirsæta. ’ Þegar aumingja James Doug- herty sneri heim í stríðslok var hjónabandinu lokið. Gyðjan Marilyn Monroe eins og við munum best eftir henni. Á þessum degi 19. júní 1942

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.