SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 18

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 18
18 19. júní 2011 R ecep Tayyip Erdogan, for- sætisráðherra Tyrklands, vann stórsigur í kosningunum fyrir viku og tryggði sér völdin þriðja kjörtímabilið í röð. Erdogan nýtur vinsælda meðal bæði snauðra og efnaðra. Þrátt fyrir langa valdasetu fer fylgi hans vaxandi. Hann komst til valda árið 2002 og í hans stjórnartíð hefur tyrkneskt efnahagslíf blómstrað. Erdogan lagði á það áherslu í kosningabaráttunni að hann hygðist breyta stjórnarskrá lands- ins og talaði um forsetakerfi, en forðaðist þó að fara nákvæmlega út í með hvaða hætti. Óttast að Erdogan vilji aukin völd Breytinga á stjórnarskránni er þörf enda var hún sett eftir að herinn sölsaði til sín völdin 1980. Sérstaklega þarf að skil- greina samband Kúrda og Tyrkja áður en bilið þar á milli verður of breitt. Árangur flokks Kúrda í kosningunum mun auð- velda þeim að gæta hagsmuna sinna í þeim efnum. Gagnrýnendur Erdogans óttast hins vegar að stjórnarskrárbreytingunum sé ætlað að tryggja honum aukin völd. Minnkandi umburðarlyndi hans gagn- vart gagnrýnendum og tilhneiging til að sjá samsæri að baki hverju andófi hefur ýtt undir þessar áhyggjur. Í kosninga- baráttunni kallaði hann þátttakendur í mótmælum gegn stjórninni „þorpara“ og gerði lítið úr andláti kennara á eftir- launum sem fékk hjartaáfall eftir að lög- regla notaði á hann piparúða til að leysa upp mótmælafund. „Ég læt þá ekki valta yfir lögregluna mína,“ sagði Erdogan eftir að lögregla hafði beitt stúdenta í mótmælaaðgerðum valdi í desember. Hann hefur réttlætt handtökur á blaða- mönnum, sem sakaðir eru um samsæri og ráðabrugg, og þegar óútgefin bók var bönnuð sagði hann að „sumar bækur [hefðu] meiri eyðileggingarmátt en sprengjur“. „Ef forsætisráðherrann vill stjórna þessu landi með friði ætti hann að vita og aldrei gleyma að hin fimmtíu pró- sentin eru til,“ skrifaði dálkahöfund- urinn Mehmet Yilmaz í dagblaðið Hür- riyet. Erdogan hefur reynt að slá á þessa gagnrýni eftir kosningarnar. „Fólkið … hefur sent okkur boð um að nýja stjórn- arskráin eigi að verða til með málamiðl- unum, samráði og samningum,“ sagði hann í sigurræðu sinni á sunnudag fyrir viku. Á mörkum tveggja heima Tyrkland situr á mörkum hins vestræna og austræna heims, bankar á dyrnar hjá Evrópusambandinu og sækist eftir áhrif- um í arabaheiminum. Á meðan Evrópu- sambandið glímir við afleiðingar hinnar alþjóðlegu kreppu, er Tyrkland það land, sem einna best hefur staðið áhrif hennar af sér. Hagvöxtur í Tyrklandi er þrefalt meiri en í öðrum ríkjum Evrópu. Áður gekk á með kreppum og valdaránum í Tyrklandi. Undir stjórn Erdogans er Tyrkland orðið að stórveldi í sínum heimshluta. Engu að síður er Tyrkland olnboga- barn í Evrópu. Í rúm tuttugu ár hefur Tyrkland staðið við dyr Evrópusam- bandsins. Enn er mikil andstaða við að- ild Tyrklands í ríkjum Evrópusambands- ins og óttast menn greinilega áhrif þessa fjölmenna múslímaríkis. Aðrir benda hins vegar á að múslímar myndu aðeins túlka höfnun Tyrklands á einn veg og telja að ekkert geti skapað jafn afgerandi tækifæri til að hafa áhrif á þróun mála í hinum íslamska heimi og aðild Tyrk- lands, þess múslímaríkis sem teljist hvað nútímalegast, að ESB. Leið Erdogans til valda Flokkur Erdogans nefnist Réttlætis- og þróunarflokkurinn (AKP) og á rætur í íslam. Hann fékk 49,9% atkvæða í kosn- ingunum, en vantaði fjögur sæti til að ná þeim 330 sætum, sem hann þarf til þess að breyta stjórnarskrá landsins án að- komu annarra flokka. 550 sæti eru á þinginu. Erdogan er sonur skipstjóra. Á upp- vaxtarárunum seldi hann sætindi á göt- um Istanbúl til þess að fjármagna nám sitt í kóranskóla. Hann er múslími og kona hans og dætur ganga með slæðu á höfði. Hann drekkur ekki áfengi og fer reglulega í mosku. Erdogan ólst upp í fátækt en efnaðist þegar hann varð meðeigandi að fyrirtæki í matvælageiranum og er nú milljóna- mæringur. Á háskólaárum sínum gekk hann í pólitíska íslamistahreyfingu Necmettins Erbakans, sem var fyrsti íslamistinn til að verða forsætisráðherra Tyrklands. Er- dogan var kjörinn borgarstjóri í Istanbúl árið 1994 og naut vinsælda fyrir að bæta samfélagsþjónustu. Hann bannaði einnig áfengi í kaffihúsum í eigu borgarinnar og hvatti fólk til að velja á milli íslams og veraldlegra lífshátta. Á ýmsu hefur gengið á pólitískum ferli Erdogans. Árið 1997 neyddi herinn Erbakan til að segja af sér og Velferðarflokkur hans var bannaður. Sama ár fór Erdogan með ljóð á stjórnmálafundi þar sem málstað ísl- amista var hampað. Hann var settur í pólitískt bann og fjögurra mánaða fang- elsi fyrir trúarlegan undirróður. Arftaki Efnahags- undur og afturhald Í Tyrklandi togast á kraftar þróttmikils efna- hagslífs og afturhaldssemi. Fá ríki stóðu krepp- una af sér með jafn miklum glæsibrag og Tyrk- land þar sem hagvöxtur er þrisvar sinnum meiri en almennt gerist í Evrópu. Fyrir viku vann Ta- yyip Recep Erdogan forsætisráðherra stórsigur í kosningum. Karl Blöndal kbl@mbl.is Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrk- lands, ávarpar stuðningsmenn sína á kosn- ingafundi í Erzurum í Austur-Tyrklandi. Er- dogan er nú að hefja sitt þriðja kjörtímabil. Verðbréfamiðlari í kauphöllinni í Istanbúl les forsíðufréttir um kosningasigur Erdogans. Konur að störfum í saumastofu í Batman-héraði þar sem atvinnuleysi er mikið.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.