SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Page 8
8 19. júní 2011
Það er til marks um vegsauka svartmálmsins í
norsku tónlistarlífi að ein fremsta sveit þeirrar gerð-
ar í landinu, Dimmu Borgir, hélt nýverið tónleika
ásamt Norsku útvarpshljómsveitinni og Schola Can-
torum, sem er kammerkór starfræktur innan veggja
tónlistarháskólans í Ósló. Vöktu tónleikarnir mikla
athygli og mæltust almennt vel fyrir.
Hvorki fleiri né færri en 96 tónlistarmenn voru á
sviðinu í Oslo Spektrum og 3.500 manns fylgdust
andaktug með Dimmu Borgum flytja lög á goðsagna-
kenndum plötum á borð við Death Cult Armageddon
og Puritanical Euphoric Misanthropia.
Í umsögn tónlistargagnrýnanda dagblaðsins Aft-
enposten kom fram að tónleikarnir hafi verið mikil
upplifun en hin ólíku hljóð hafi á köflum þvælst hvert
fyrir öðru.
„En þegar
þetta virk-
aði fékk
maður
gæsahúð
um allan lík-
amann.“
Rýnirinn fékk gæsahúð
um allan líkamann
Upphefð þeirra Dimmu Borgara er mikil í Noregi.
V
ösk sveit norskra ríkiserindreka situr
nú sveitt á námskeiðum og drekkur í
sig upplýsingar um svartmálm – ekki
frumefnið, heldur tónlistarstefnuna
sem óx út úr málminum fyrir um tveimur áratug-
um. Höfuðvígi stefnunnar hefur um árabil verið í
Noregi og nú er svo komið að utanríkisþjónustan á
orðið fullt í fangi með að svara fyrirspurnum frá
útlöndum um norskan svartmálm. Fyrir vikið var
brugðið á það ráð að uppfræða starfsmenn.
Kjersti Sommerset, sem er yfir fræðslumálum
hjá norsku utanríkisþjónustunni, tjáði dagblaðinu
Dagens Næringsliv á dögunum að svo virðist sem
útlendingar hafi vaxandi áhuga á svartmálmi sem
fyrirbæri og verði þess vart í öllum 106 starfs-
stöðvum þjónustunnar um heim allan. „Við leggj-
um mikla áherslu á að starfsmenn okkar kunni
góð skil á menningu í sinni fjölbreyttustu mynd og
svartmálmur er vissulega partur af norskri menn-
ingu og sögu,“ segir Sommerset.
Ekki bara Ibsen og firðirnir
Upprennandi ríkiserindrekar hafa upp til hópa
tekið þessari áherslubreytingu vel, alltént trúir
Silje Bryne, sem senn fer til starfa í norska sendi-
ráðinu í París, Dagens Næringsliv fyrir því að hún
hafi haft mikið gagn af kynningu á norsku svart-
málmssenunni. „Ég sé tilgang í því að nefna ekki
bara Ibsen og firðina þegar rætt er við útlendinga
um Noreg, heldur líka afkastamikla útflutnings-
afurð eins og svartmálminn. Þetta er ört vaxandi
vörumerki sem skapar okkur sérstöðu meðal
hinna norrænu frændþjóða og er þyngdar sinnar
virði í gulli – svartagulli.“
Einn helsti málmvísindamaður Noregs, rithöf-
undurinn Håvard Rem, sem meðal annars ritaði
bók um svartmálmsstefnuna, Fnæs frumbyggjans
(n. Innfødte skrik), talar um alþjóðavakningu í
þessu sambandi. Börn ’68-kynslóðarinnar séu í
auknum mæli farin að leita að rótum sínum og
sæki í fjörgamla tíma áður en nýlendur og kristni
komu til sögunnar.
„Ungt fólk úti um allan heim samsamar sig
þessari leit og fólk sem er yngra en fertugt tengir
Noreg fyrst og fremst við svartmálm. Það gildir í
raun einu hvort það kann að meta tónlistina eður
ei – orðræðan er fyrir hendi,“ segir Rem.
Rem bendir ennfremur á að svartmálmur hvetji
menn til að leita í ræturnar. Norsku hljómsveit-
irnar sæki í víkingahefðina, Óðinn og æsina og nú
séu að koma fram sambærileg bönd austur í Asíu
sem sæki næringu í austurlenska trú og siði.
Rem hefur sjálfur tekið þátt í að lesa ríkiser-
indrekunum fyrir og viðurkennir að ekki hafi ver-
ið einfalt að fara yfir frumskeið svartmálmsins
þegar sjálfsvíg, morð og kirkjuíkveikjur settu ljót-
an blett á stefnuna. Alræmd er ein af frum-
herjasveitunum, Mayhem. Örlög hennar voru í
stuttu máli á þessa leið: Söngvarinn Dead féll fyrir
eigin hendi og bassaleikarinn Varg Vikernes myrti
gítarleikarann Euronymous. Þá var trymbillinn,
Hellhammer, einn eftir í bandinu og starfsemi
þess því sjálfhætt. Rem segir ímyndina aðra í dag,
svartmálmsböndin séu ekki lengur svona ódæl.
„Gleymum því heldur ekki að Ibsen var af mörg-
um álitinn niðurrifsseggur á sinni tíð.“
Shagrath, hinn eldhressi söngvari eðalsveitarinnar Dimmu Borga.
Þar sem frum-
bygginn fnæsir
Norska utanríkisþjónustan
bregst við vaxandi áhuga á
nýjasta gullinu, svartmálmi
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Mayhem-liðarnir Dead og Euronymous á góðum degi.
Svartmálmur er öfgafull hlið-
arstefna þungarokks sem
kom fyrst fram á sjónarsviðið
á níunda áratugnum. Und-
anfarin tuttugu ár hafa margar
af helstu sveitum stefnunnar
verið norskar. Umdeild ásýnd
og á köflum ofstækisfullir
textar hafa dæmt stefnuna til
vistar í jaðri tónheima.
Hvernig ætli Henrik gamla Ibsen
hefði litist á svartmálminn?
Dæmd til vistar
í jaðrinum
Skannaðu kóðann til
að horfa á myndband
af laginu Gateways
með Dimmu Borgum.