SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 10
10 19. júní 2011
Á
sama tíma og RÚV hefur fengið auknar tekjur í gegn-
um hinn svonefnda nefskatt, þar sem áhorfendur og
áheyrendur eiga ekkert val um hvort þeir vilja vera í
hópi notenda og Stöð 2 hefur hækkað áskriftargjöld
sín aftur og aftur, gerist það að þessir tveir ljósvakar hafa í sí-
auknum og endurteknum mæli fært sig yfir á svæði tekjuöflunar,
sem ég held að hljóti í besta falli að kallast grátt, en er sennilega
iðulega brot á þeim reglum sem gilda um auglýsingar, auglýs-
ingahlé, kostun og áfengisauglýsingar.
Þar á ég m.a. við það hvernig báðar sjónvarpsstöðvarnar hafa
fært sig upp á skaftið í sambandi við auglýsingahlé inni í dag-
skrárliðum. Sú var tíðin að
áhorfendur fengu að horfa á
Kastljós og aðra innlenda dag-
skrárgerð, án þess að gert væri
auglýsingahlé, enda kváðu
reglur, samkvæmt gömlu út-
varpslögunum, á um að ekki
mætti brjóta upp dagskrárliði
með auglýsingahléum. Nú er
svo komið að það skiptir ekki
máli hvað er á dagskrá, það
eru alltaf gerð auglýsingahlé.
Þetta á við um Kastljós, Land-
ann, Útsvar, Popppunkt, Ís-
land í dag, Sjálfstætt fólk,
nánast hvaða dagskrárlið sem
er og er afar hvimleitt.
Hvar er eftirlitið með því að
þessir fjölmiðlar fari að lög-
um? Hvers vegna komast þeir
upp með að setja sér sínar eig-
in reglur í sambandi við tekju-
öflun? Hvers vegna fá þessir
fjölmiðlar að auglýsa áfengi
óáreittir, þótt áfengisauglýsingar séu bannaðar í fjölmiðlum á Ís-
landi?
Að vísu skal ég viðurkenna, að það er mjög erfitt að henda
reiður á því hvað má og hvað má ekki, þegar rýnt er í hinn nýja
lagabastarð, sem nefnist Lög um fjölmiðla og öðlaðist gildi í apríl
sl. Það er hreint með ólíkindum að lesa þann óskiljanlega laga-
bálk, boðin og bönnin, fyrir utan fáránlega málnotkun, sem ég
hygg að allir málelskir menn fái hroll af að lesa. Nokkur dæmi:
„fjölmiðlaveita“ – hvað er að nafnorðinu fjölmiðill? Væri ekki
álíka gáfulegt að breyta nafnorðunum hitaveita, í hitamiðl-
unarveita, og rafveita í rafmiðlunarveita? „Myndmiðlunarefni“
– Hvað er að orðinu myndefni? „Fjarkaupainnskot“ – Hvað þýð-
ir þessi bastarður eiginlega?! Ömurlegt til þess að vita, að
menntamálaráðherrann, sem er kominn í barneignafrí, Katrín
Jakobsdóttir, og hefur aldrei verið sökuð um að kunna ekki ís-
lensku, skuli bera ábyrgð á þessum illa samda og fáránlega laga-
bálki.
Annar hlutur sem fer óhemjumikið í taugarnar á mér er þessi
hvimleiða „nýjung“ sem nefnd er kostun. Síðast þegar lögreglu-
foringinn Barnaby var á dagskrá RÚV var búið að lauma feitletr-
aðri auglýsingu inn á kynningu þáttarins, sem var svohljóðandi:
„Barnaby er sýnd í samstarfi við Corolla“ og þegar Stöð 2 sýnir
þátt fyrir unga fólkið sem nefnist Glee, þá birtist á skjánum, á
meðan á sýningu stendur: „Läkerol tyggjó færir þér Glee“.
Hvað á þetta eiginlega að þýða? Ég stóð í þeirri sakleysislegu
trú, að nefskatturinn hái til RÚV og óduldar auglýsingatekjur
ættu að standa undir efniskaupum RÚV. Sömuleiðis stóð ég í
þeirri trú að Stöð 2, sem hefur drjúgar áskriftar- og auglýsinga-
tekjur, ætti að fjármagna efniskaup sín með þessum liðum.
Þessi dómadagsvitleysa er fyrir margt löngu komin út fyrir öll
velsæmismörk og ættu stöðvarnar að hverfa frá svona við-
skiptaháttum hið snarasta.
Ég lít þannig á, að þá sjaldan sem ég sé eitthvað í dagskrám
þessara tveggja stöðva, sem ég er áskrifandi að sem ég vil horfa á,
að ég hafi svo sannarlega greitt fyrir fullu verði og hafna því al-
farið að ég eigi að fyllast þakklæti í garð bílaumboðs, fyrir það að
fá að horfa á Barnaby. Dæmin um svona misnotkun eru vitanlega
miklu fleiri en ég nefndi hér að ofan, en mér fannst bara rétt að
tilgreina nýleg dæmi frá báðum stöðvunum, til þess að gæta
jafnræðis.
Ljósvaki á
gráu svæði
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ari EdwaldPáll Magnússon
’
Þessi dóma-
dagsvitleysa er
fyrir margt
löngu komin út fyrir
öll velsæmismörk og
ættu stöðvarnar að
hverfa frá svona við-
skiptaháttum hið
snarasta
8:50 Leikur gegn Svisslend-
ingum í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins í kvöld. Við strákarnir
hefjum daginn á morgunmat á
Hótelinu í Álaborg sem hefst
klukkan 9. Við borðum vel. Ég
tók hafragrautinn, brauð, álegg
og appelsínudjús og svo auðvit-
að gamla góða lýsið.
10:15 Ávallt á leikdegi tök-
um við léttan göngutúr. Við
löbbum í kringum hótelið,
spjöllum saman og reynum að
dreifa huganum. Eftir að göngu-
túrnum lauk var haldið inn á
herbergi og fram að hádegi
eyddi ég tímanum í að vafra að-
eins á netinu.
12:00 Hádegismatur. Þegar
það er leikur um kvöldið fáum
við okkur kjúkling, hrísgrjón og
reynum að úða í okkur miklu af
kolvetnum. Spennan er farin að
gera vart við sig enda stórleikur
framundan á móti Svisslend-
ingum, í leik sem við verðum að
vinna.
13:00 Þá er komið að hvíld-
arstundinni. Ég sef alltaf í hvíld-
artímanum og að þessu sinni
svaf ég í einn klukkutíma og
tuttugu mínútur. Sumir nota
hvíldina til þess að horfa á
myndbönd eða lesa bók en mér
finnst best að sofa.
15:00 Síðasta máltíðin fyrir
leikinn. Ég fæ mér pasta og
kjúkling og eftir matinn er
komið að liðsfundinum. Eyjólf-
ur þjálfari fer yfir leikinn á móti
Sviss. Hann tilkynnir byrjunar-
liðið og fer yfir hvað við gerum í
okkar föstu leikatriðum og
hvernig leikaðferð hann vill að
við beitum. Það er aðeins farið
yfir leikaðferð Svisslendinganna
og nú er spennan farin að
magnast. Við búum okkur undir
erfiðan leik enda Svisslendingar
ansi góðir.
16:30 Lagt í hann á leik-
vanginn í Álaborg í rútunni.
Flestir eru með heyrnartólin og
hlusta á góða músík sem kemur
þeim í gírinn og ég er engin
undantekning. Við notum líka
tímann til að spá í andstæðing-
inn og tala okkur saman um
hvernig við eigum að halda
honum í skefjum.
18:00 Flautað til leiks í við-
ureigninni á móti Sviss. Þetta
reynast rúmar 90 mínútur af
vonbrigðum. Það gekk ekkert
upp hjá okkur og við vorum
mjög ólíkir sjálfum okkur. Vor-
um bara skítlélegir og þetta
reynist vera lélegasti leikurinn
sem ég hef spilað með U21 árs
landsliðinu. Hann gat ekki
komið á verri tíma.
21:00 Komum upp á hótel
og fáum okkur að borða.
Stemningin í okkar herbúðum
er ömurleg og skyldi engan
undra. Ég er kominn upp í rúm
klukkan 23.30 og var fljótur að
detta inn í draumaheiminn
frekar dapur í bragði. Ég tók
leikinn mikið inn á mig enda
fyrirliði liðsins.
Dagur í lífi Bjarna Þórs Viðarssonar, fyrirliða U21 árs landsliðsins
Bjarni Þór Viðarsson glímir við Xherdan Shaqiri í leiknum afdrifaríka gegn Sviss síðastliðinn þriðjudag.
Rúmar 90 mínútur
af vonbrigðum
Breska leikkonan Elizabeth
Hurley sést hér í góðra vina
hópi á konunglegu Ascot-
veðreiðunum í suðurhluta
Englands á föstudag. Það er
ekki nema von að leikkonan
líti út fyrir að vera spennt
því hún á hlut í hestinum
Census, sem lenti í öðru sæti
í keppninni.
Veröldin
Hurley
fylgist með
hestunum