SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Page 12
12 19. júní 2011
Fimmtudagur
Arnar Eggert
Thoroddsen
er hollt að borða
svona japan-mix og
sterkar rískökur í
staðinn fyrir nammi
á kvöldin?
Föstudagur
Árni Torfason
Hraun og kók. Fljót-
legasta leiðin að fá
orku þegar mikið er
að gera.
Gerður Kristný
Í gær ætlaði ég að
senda Braga
Baggalút sms og
spurja hanni hvort
hann ætlaði með
mér á Grímuna í
kvöld en sendi skilaboðin óvart til
Braga Kristjóns bóksala. Fyrir þá
sem iða af spenningi skal það upp-
lýst að hann ætlar ekki.
Tobba Mar-
inósdóttir
er að fara að hitta
dólga á Kex – það
er eitthvað!
Fésbók
vikunnar flett
Um daginn var fjallað um bítbox frá
TDK hér í blaðinu sem var bæði mikið
um sig og níðþungt. TDK Sound Cube
ekki af sama meiði, en útfærlsan tals-
vert frábrugðin eins og sjá má. Ten-
ingurinn er með hátalara á hverri hlið
og ætlaður sem „bíotbort“ sem hægt
er að fara með hvert á land sem er og
framleiða almennilegan hávaða. Græj-
an gengur fyrir rafhlöðum ef vill (D-
hlúnkum), en einnig er rafmagns-
tengi. Hún er með USB-tengi til að
taka við músík frá Apple iPod / iP-
hone / iPad, en líka er hægt að tengja
hvaða spilastokk sem er við hana
með minijack-snúru. Hljómur er þræl-
fínn og ekki vantar kraftinn. Bassinn
og þéttur og fínn. Þeir sem notað hafa
hallærisgræjur við iPodinn sinn hing-
að til fá kannski áfall þegar þeir heyra
hvernig músíkin hljómar, enda gerir
góð græja kröfu um almennilega
þjöppun á músíkinni.
Í tækinu er FM-útvarp og innbyggt
loftnet sem hægt er að draga út. Það
er líka með hljóðjöfnun (eq) og hægt
er að tengja við það gítar eða hljóð-
nema og stilla svo styrk á því saman
við músíkina sem spiluð er til dæmis
af spilastokk.
Það var eiginlega klúður, fannst mér, þegar Nokia
N8 var auglýstur sem snjallsími og þá í sam-
keppni við iPhone- og Android-síma – af hverju
auglýstu menn hann ekki einfaldlega bara sem
frábæran síma? Nefni sem dæmi að í
honum er framúrskarandi
myndavél – sú besta í far-
síma.
Eins og sjá má er á sím-
anum HDMI-tengi og því
hægt að tengja hann
beint við flest sjónvarps-
tæki og það svínvirkar
hvort sem maður ætlar að
skoða myndskeið sem tekið
var á símann, eða horfa á
kvikmyndir sem búið er að
lesa inn á hann.
Síminn
er með 12
milljón díla
myndflögu, en það
segir ekki alla söguna
því hann er með Carl Zeiss-
linsu sem skiptir gríðarmiklu máli. Í
símanum er líka fínn hugbúnaður til að
sýsla með myndir, grófvinna þær og senda
áfram. Hann tekur 720 díla myndskeið.
Þeim sem hafa nasasjón af Android-
eða iOS-stýrikerfunum finnst það eflaust
ókostur að á símanum sé Symbian-stýrikerfi,
en allir þeir sem notað hafa Nokia-síma
kunna á hann fyrir vikið. Það er þó óneit-
anlega orðið nokkuð við aldur.
Frábær farsími
Sú var tíðin að allir símar voru Nokia eða vildu vera Nokia. Svo sofnuðu Nokia-
menn á verðinum og misstu nánast af snjallsímabyltingunni. Það breytir því
þó ekki að þeir kunna að framleiða frábæra síma eins og sannast á Nokia n8.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Ferðagræja
Tónlistartening-
urinn mikli