SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Page 21
19. júní 2011 21
„Það gerði það ekki áður enda starf
forleggjarans meira en full vinna og
erfitt að finna stund til að sinna áhuga-
málinu. Á síðustu árum hefur mér hins
vegar tekist að sameina þetta og tek
mikið af höfundamyndum og myndir
fyrir bækur og einstaka bókakápur. Þá
er samviskan góð og mér líður ekki eins
og ég sé að svíkjast um. Ég var dauð-
feiminn við þetta til að byrja með og
fannst eins og ég væri að troða mér að
og hefði kannski enga hæfileika til að
standa í þessu en viðbrögðin hafa glatt
mig þannig að sjálfstraustið er betra.“
Hvernig kom það til að efnt er til
sýningar í Gimli?
„Hugmyndin kviknaði í samtali Guð-
rúnar konu minnar og Birnu Bjarna-
dóttur sem leiðir íslenskudeild Mani-
toba-háskóla sem er einmitt 60 ára í ár.
Birna kynnti þetta fyrir Tammy Ax-
elsson, bæjarstjóra í Gimli, sem er jafn-
framt framkvæmdastjóri myndarlegs
safns í Gimli, The New Iceland Heritage
Museum. Tammy fékk síðan fleiri
myndir til að skoða og hrósaði mér
óspart og vildi ólm fá mig með sýningu.
Mér líður eins og Bítlunum hlýtur að
hafa liðið þegar þeir fóru vestur um
haf. Tammy lofaði að stúlkurnar tækju
á móti mér á flugvellinum og rifu hár
sitt í fögnuði.“
Það hafa myndir eftir þig birst á
prenti í gegnum tíðina!
„Það hafa einhverjar myndir birst í
bókum og á kápum. Annars hef ég ekki
verið að halda myndunum mikið fram
nema kannski á Facebook í von um að
fá eitthvert klapp á bakið og fá stað-
festingu á að það væri einhver ástæða
fyrir mig til að ljósmynda af alvöru.
Ljósmyndun og vinnsla þeirra er
reyndar það eina sem fær mig til að
gleyma vinnunni. Ég get horfið inn í
þennan heim og tæpast vitað af mér á
meðan. Í kvikmyndahúsi eða við hvaða
aðra iðju sem er skýtur útgefandinn
stöðugt upp kollinum.“
Maður lætur gamminn geisa á Antigua. Ólafur Gunnarsson rithöfundur glaður í bragði.
Fuglar á flugi í Gróttu.
Egypskur úlfaldi tekur til máls. Maður á förnum vegi í Kaíró.
’
Yfirgefnar síld-
arverksmiðjur og
fallin mannanna
verk draga mig til sín.
Svo er ég mikið gefinn
fyrir drama og nota
skýjafarið óspart til að
ná því fram.