SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 32
32 19. júní 2011
B
laðamaður hitti þær stöllur,
Guðrúnu Heimisdóttur og Þóru
Eggertsdóttur, á skrifstofu
þeirra í Toppstöðinni, gömlu
varaaflsstöðinni í Elliðaárdalnum. Þar er
nú komið svokallað frumkvöðlasetur þar
sem margs konar starfsemi fer fram og
má með sanni segja að ný orka sé komin í
húsið sem hafði staðið autt í mörg ár.
Fyrirtæki þeirra vinkvenna, Puzzled by
Iceland, er innan við ársgamalt en margt
hefur gerst á þeim stutta tíma frá því
hugmyndin varð til.
Hver er sagan á bak við Puzzled by
Iceland?
Þóra: „Síðasta sumar vorum við báðar í
framlengdu fæðingarorlofi, með tvö lítil
kríli, og hvorug okkar var með atvinnu að
fæðingarorlofi loknu. Okkur var farið að
langa aftur út á vinnumarkaðinn, en við
vorum ekki tilbúnar í fulla vinnu þar sem
yngri börnin okkar voru aðeins þriggja og
sex mánaða gömul. Því ákváðum við fyrst
að stofna fyrirtæki og svo kviknaði hug-
myndin.“
Guðrún: „Ég hef mjög gaman af því að
púsla og eina nóttina, þegar ég var að gefa
dóttur minni, datt mér í hug að það gæti
verið skemmtilegt að búa til púsluspil
með íslenskum myndum. Ég hafði farið til
Svíþjóðar í fjölskylduheimsókn og þar
keyptum við hjónin púsluspil með mynd
af sænsku konungsfjölskyldunni sem
nokkurs konar grínjólagjöf. Ég hugsaði
með mér af hverju þetta væri ekki til á Ís-
landi, t.d. með Ólafi og Dorrit? Þarna
kviknaði hugmyndin um miðja nótt og
eins og með flestar hugmyndir þá var hún
mjög einföld í byrjun.“
Margt hefur gerst frá því þessa ör-
lagaríku nótt, kom ykkur á óvart að
verða í 2. sæti í Gullegginu?
Þóra: „Já, þetta kom okkur á óvart. Við
tökum þetta allt í litlum skrefum, settum
okkur fyrst það markmið að lenda í topp
10 hópnum. Þegar við skráðum okkur
fyrst í keppnina, fannst okkur fjar-
stæðukennt að lenda í öðru sæti þar sem
257 aðrar viðskiptahugmyndir voru einn-
ig skráðar til leiks. Eftir að við komumst í
topp 10 var næsta markmið að klára
keppnina með sigri og við erum svo
sannarlega ánægðar með árangurinn. Ey-
rún, sem lenti í 1. sæti, ætlar að hjálpa
ungbörnum að hætta að gráta á nóttunni.
Þar sem við erum báðar tveggja barna
mæður erum við auðvitað mjög spenntar
fyrir hennar verkefni, enda þekkjum við
vel svefnleysið sem nýbakaðir foreldrar
upplifa oft á fyrstu mánuðum, jafnvel ár-
um, í lífi barna sinna.“
Guðrún: „Þeir sem komust í topp 10
hópinn fengu svo tækifæri til að kynna
viðskiptahugmynd sína fyrir 15 manna
dómnefnd sem samanstóð m.a. af fjár-
festum og stjórnendum úr íslensku at-
vinnulífi. Áður en við fórum inn í her-
bergið og héldum okkar kynningu,
hugsuðum við til þess að við hefðum báð-
ar farið í tvígang upp á fæðingardeild og
komið samtals fjórum börnum í þennan
heim – þessi kynning hlyti að vera barna-
leikur miðað við það. Kynningin okkar
gekk auðvitað ljómandi vel og við mælum
með þessari „pepp-ræðu“ fyrir allar kon-
ur.“
Var eitthvað sérstakt sem veitti ykkur
innblástur?
Guðrún: „Í raun má segja að landið
okkar og náttúran sé innblásturinn okk-
ar. Á hverju púsli er ljósmynd af íslenskri
náttúruperlu eða íslensku dýri. Við höf-
um eytt löngum stundum fyrir framan
tölvuna og skoðað vefsíður á borð við
www.flickr.com í leit að ljósmyndum.
Allar ljósmyndir sem við höfum notað á
púslin hingað til hafa verið teknar af ís-
lenskum áhugaljósmyndurum og eitt af
nýju púslunum sem koma í verslanir í lok
maí er með ljósmynd úr keppni sem við
héldum í samvinnu við vefinn ljos-
myndakeppni.is.“
Hvaðan kom nafnið; Puzzled by Ice-
land?
Guðrún: „Stuttu eftir að hugmyndin
kviknaði, komumst við í samband við
hönnuðinn okkar, Sóleyju Þórisdóttur
vöruhönnuð. Hún stakk í raun upp á
nafninu, Puzzled by Iceland, í kjölfarið á
langri útskýringu okkar á hugmyndinni.
Öll okkar samskipti fara í gegnum Skype
þar sem Sóley er búsett í Amsterdam. En
samstarfið gengur ótrúlega vel og það er
frábært að vinna með svona hæfi-
leikaríkum hönnuði. Við Þóra notum
einnig Skype í daglegri vinnu, ef við get-
um ekki verið samtímis á sama stað – ef
t.d. önnur okkar er heima með veikt
barn.“
Allir dagar eru föstudagar
Fyrirtækið heitir Puzzled by Iceland sem
hæfir vel íslensku fyrirtæki sem hannar
og framleiðir púsluspil en vörumerkið er
„Puzzled by. Vörumerkið býður upp
ýmsa möguleika, til dæmis púsluspil fyrir
önnur lönd, og það er einmitt það sem
koma skal hjá vinkonunum.
Hvernig hefur gengið að láta skrásetja
vörumerkið?
Þóra: „Þar sem varan okkar er afar ein-
föld – púsluspil með ljósmyndum af ís-
lenskum náttúrperlum og dýralífi – og í
mjög einföldum umbúðum þá er í raun
ekki hægt að sækja um einkaleyfi á henni.
Hins vegar byrjuðum við strax á því að
skrásetja vörumerkið ,,Puzzled by á Ís-
landi og nú bíðum við eftir svari við um-
sókn okkar um skráningu vörumerkisins
í Noregi, Evrópusambandinu og Banda-
ríkjunum. Skráning vörumerkis er
kostnaðarsamt ferli en það borgar sig, ef
„Kom á óvart
hvað þetta er
ótrúlega
skemmtilegt“
Guðrún Heimisdóttir og Þóra Eggertsdóttir
hrepptu 2. sætið í Gullegginu nýverið, keppni
sem Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur
stendur fyrir á hverju ári, með viðskiptahug-
mynd sína, Puzzled by Iceland. Keppnin er tæki-
færi fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum
á framfæri og miðar að stofnun fyrirtækja.
María Elísabet Pallé mep@mbl.is
Hérna er Þóra með strákinn sinn, Eggert Aron, nýkomin með fyrsta púslið í hendurnar.
„Þetta voru sýnishornin okkar sem komu með DHL og ég held við höfum aldrei verið jafn-
kátar með DHL sendingu eins og þarna. Þetta var í enda september – rétt rúmum mánuði
eftir að við stofnuðum fyrirtækið,“ segir Þóra.
Þóra (t.v.),Vigdís Finnbogadóttir og Guðrún þegar Vigdís tók á móti fyrsta púslinu í Unicef
útgáfukaffinu. „Það var ótrúlega gaman að hún skyldi koma en hún er auðvitað mjög merki-
leg fyrirmynd kvenna og sjálf mikill frumkvöðull,“ segja Þóra og Guðrún.