SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 34
34 19. júní 2011
S
lagsmál þjálfara, 13 gul spjöld, 3
rauð spjöld og 34 áhorfendur
handteknir. Enn einu sinni voru
allt annað en úrslitin á allra
vörum að loknum leik Celtic og Rangers í
skoska boltanum í mars síðastliðnum.
Liðin hafa eldað grátt silfur saman í yfir
hundrað ár en fjandskapur milli áhang-
enda liðanna er af öðrum toga en gengur
og gerist í íþróttum. Slagsmál og hand-
tökur eru tvöfalt fleiri og heimilisofbeldi
eykst til muna í Vestur-Skotlandi í þeim
umferðum skosku úrvalsdeildarinnar
sem erkifjendurnir í Glasgow leiða saman
hesta sína. En hvað veldur þessum mikla
fjandskap félaganna?
Óboðnir kaþólskir gestir
Hungursneyð og sjúkdómsfaraldur á Ír-
landi um miðja 19. öld urðu til þess að
fjölmargir íbúar landsins, flestir kaþ-
ólskir, leituðu betra lífs annars staðar.
Þeir fátækustu sem ekki höfðu efni á miða
til Bandaríkjanna fóru meðal annars til
Skotlands. Í Skotlandi voru flestir mót-
mælendatrúar og leist þeim illa á kaþ-
ólsku gestina sem var fyrir vikið ekki
tekið fagnandi. Þeir héldu því hópinn,
mynduðu eigin samfélög þar sem börn
þeirra gengu í kaþólska skóla. Undir lok
aldarinnar stofnaði einn innflytjendanna,
kaþólskur prestur, knattspyrnufélagið
Celtic. Opinberi tilgangurinn var að safna
fé til að berjast gegn fátækt í austurhluta
Glasgow-borgar.
Barátta gegn fátækt var þó ekki eina
ástæða þess að félagið var stofnað. Hinir
fátæku kaþólikkar höfðu áhyggjur af
þeim áhrifum sem athvörf og matargjafir
mótmælendanna gætu haft á hugsana-
gang svangra barna sinna. Þau vantaði
samastað og knattspyrna var einnig kjör-
inn vettvangur fyrir Írana að sanna sig
fyrir heimamönnum. Knattspyrnufélag
var því prýðislausn. Liðið fékk óskabyrj-
un þegar það sigraði Rangers 5-2 í sínum
fyrsta opinbera knattspyrnuleik árið
1888.
Rangers var stofnað rúmum áratug fyrr
handan árinnar Clyde í vesturhluta Glas-
gow. Ólíkt Celtic sem var frá stofnun fé-
lag írsk-kaþólskra verkamanna var
Rangers óháð trú og stétt. Góður árangur
Celtic á upphafsárunum gerði Skotana
áhyggjufulla. Binda þurfti enda á titla-
söfnun kaþólikkanna og leita að liði sem
gæti veitt Celtic keppni. Þegar Rangers
fór að vinna glæsta sigra á nágrönnum
sínum flykktu Skotar sér á bak við liðið
sem smám saman varð trúarlegt og þjóð-
ernissinnað andsvar við innflytjend-
unum. Hvert tækifæri var nýtt í leikjum
liðanna til þess að syngja níðsöngva um
óvininn og stuðningsmenn Celtic svör-
uðu í sömu mynt.
Félögin maka krókinn
Allar götur síðan hafa leikir liðanna ein-
kennst af mikilli baráttu innan vallar sem
utan. Bikarúrslitaleikur liðanna árið 1909
var sögulegur. Raunar var um endurtek-
inn úrslitaleik að ræða þar sem fyrri
leiknum hafði lyktað með jafntefli. Á
þeim tíma voru sögusagnir uppi um að
liðin gerðu í því að skilja jöfn til þess að
drýgja tekjur sínar enda mikil aðsókn á
leikina. Kaldhæðnisleg staðreynd að á
meðan fjandskapur liðanna byggðist að
einhverju leyti á fátækt voru vel sóttir
leikirnir mikil tekjulind fyrir bæði félög.
Viðurnefni félaganna Old Firm hefur ver-
ið tengt þessu viðhorfi félaganna til þess
að nýta sér áhuga og deilur stuðnings-
manna til þess að maka krókinn.
Þegar leiknum lauk með jafntefli og
þau skilaboð bárust að ekki yrði fram-
lengt heldur yrði leikinn þriðji leikur
urðu stuðningsmenn beggja liða brjálaðir.
Þeir reyndu að brjótast inn í aðstöðu leik-
manna og stjórnarmanna árangurslaust
svo þeir sneru sér að vellinum. Mörkin
voru toguð niður, skorin í sundur og fóru
fjölmargir stuðningsmenn heim með
hluta af stöng eða slá. Kveiktur var bál-
köstur við annan enda vallarins þar sem
áhorfendabekkir brunnu til kaldra kola.
Þá var kveikt í á þriðja tug inngönguhliða
vallarins. Þegar slökkviliðið kom á svæð-
ið mætti þeim grjótkast frá þúsundum
stuðningsmanna beggja liða. Það kom
fáum á óvart þegar skoska knattspyrnu-
sambandið féllst á tillögur félaganna um
að slaufa fyrirhuguðum þriðja úrslitaleik
um bikarinn.
Fjandskapurinn eykst
Þótt stuðningsmennirnir hafi í raun stað-
ið saman í ólátunum 1909 er það und-
antekning á því hvernig málum hefur
verið háttað. Kreppan í Skotlandi á þriðja
áratug síðustu aldar gaf tóninn. Atvinna
var af skornum skammti og hart barist
um þá vinnu sem í boði var. Þegar hart er
í ári er blórabögguls leitað og skoska
kirkjan benti á innflytjendurna, írsku
ógnina. Billy Boys, hópur úr röðum
stuðningsmanna Rangers, áttu þátt í því
að koma Ku Klux Klan á fót í Glasgow og
spennan jókst. Skotvopn og hnífar fóru á
loft í bardögum þar sem gengi úr röðum
stuðningsmanna liðanna börðust til síð-
asta blóðdropa. Átök milli kaþólikka og
mótmælenda á Írlandi og síðar Norður-
Írlandi skvettu einnig olíu á eldinn. Stolt-
ið hefur alltaf verið mikið og fáni írska
lýðveldisins fylgir Celtic hvert sem liðið
fer á meðan sameinuðum fána Bretlands
og þar með talið Norður-Írlands er haldið
á lofti af stuðningsmönnum Rangers.
Ólíkar aðferðir félaganna
Knattspyrnufélögin fóru ólíkar leiðir í
uppbyggingu sinni. Forsvarsmenn Rang-
ers ákváðu að leyfa einungis mótmæl-
endum að klæðast bláum búningi félags-
ins og reyndar starfaði enginn fyrir
félagið ef hann var annarrar trúar. Hinn
26 ára gamli framherji Alex Ferguson
skrifaði undir samning við uppeldisfélag
sitt Rangers árið 1967. Ferguson sem í dag
hefur titilinn Sir og þjálfar Manchester
United er sjálfur mótmælandi en kona
hans Cathy kaþólsk. Stjórnarmaður
Rangers forvitnaðist um trúmál eig-
inkonu hans og sér Ferguson enn þann
dag í dag eftir viðbrögðum sínum við
þessari móðgandi fyrirspurn. Öskur og
læti hefðu verið eðlileg viðbrögð en svo
spenntur var hann að skrifa undir að
hann gerði ekkert veður út af framkomu
stjórnarmannsins.
Celtic útilokaði hins vegar engan á
grundvelli trúar sinnar og hafði því úr
stærri hópi leikmanna að velja. Kenny
Daglish var til að mynda uppalinn stuðn-
ingsmaður Rangers sem beið í ofvæni eft-
ir að félagið byði honum samning. Þegar
Rangers lét bíða eftir sér stökk Celtic á
kappann sem varð goðsögn í hvíta og
græna búningnum. Þjálfarinn Jock Stein
stýrði liðinu til síns glæstasta sigurs árið
1967 þegar liðið varð Evrópumeistari fé-
Vandamálið
endalausa
í Glasgow
Skosku knattspyrnuliðin Celtic og Rangers hafa
löngum verið erkifjendur. En baráttan um titla er
aðeins hluti af vandanum, sem ristir mun dýpra
og hefur alvarleg áhrif á þjóðlífið og er komin á
borð stjórnmálamanna.
Kolbeinn Tumi Daðason
Lögregla hefur hendur í hári manns sem
reyndi að ráðast á sparkstjóra Celtic.
Öryggisverðir fylgja Neil Lennon knatt-
spyrnustjóra Celtic af velli eftir leik.