SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 39
19. júní 2011 39
White tekur sig vel út með hatt.
myndu „vera áfram góðir vinir og ala saman upp
yndisleg börn okkar“.
Þetta eru ekki orðin tóm því samskipti þeirra
eru greinilega góð því kvöldið áður en yfirlýs-
ingin var send út fylgdist White með Elson koma
fram á Bonnaroo-tónlistarhátíðinni.
Tónlistarferill Elson
White varð frægur fyrir veru sína í rokktvíeykinu
The White Stripes, sem hætti störfum fyrr á árinu
en hann leggur nú áherslu á hljómsveit sína The Ra-
conteurs.
Elson, sem hefur notið mikillar velgengni sem fyr-
irsæta, hefur nú hafið tónlistarferil en hún gaf út sína
fyrstu plötu á síðasta ári en hún ber nafnið The Ghost
Who Walks. Platan hefur fengið ágætar viðtökur en á
Metacritic.com er hún með einkunnina 68 af 100.
Reuters
Karen Elson
á forsíðu
breska Vogue
og á sýning-
arpalli með
höfuðskraut
frá Önnu Sui.
’
Við erum þakk-
lát fyrir þann
tíma sem við
höfum átt saman og
tímann sem við eig-
um eftir að eyða bæði
saman og í sitt hvoru
lagi í að fylgjast með
börnum okkar vaxa
úr grasi.
ingabanki atvinnulífsins, sem gárungarnir kölluðu stundum drengja-
banka Bjarna Ármannssonar, inn í Íslandsbanka en stærsta skrefið var
stigið um áramótin 2002-2003. Við skulum einfalda söguna; Björgólfs-
feðgar fengu Landsbankann en S-hópurinn tók við Búnaðarbankanum,
það er viðskiptablokk sem hafði beina eða óbeina tengingu við Fram-
sóknarflokk. Landsbankinn hóf nýja sókn og banki bændanna og Kaup-
þing sameinuðust og úr varð heilmikið ævintýri og næstu árin áttu
menn heftir að tína rúsínur upp úr skónum.
Það var á haustdögum 2008 sem spilaborgin hrundi með falli íslenska
efnahagskerfisins og viðskiptalífsins alls – þeim afleiðingum sem menn
eru enn að bíta úr nálinni úr með. Skilanefndir eru enn að störfum og
sérstakur saksóknari yfirfer heilu bílhlössin af gögnum hvar skordýr
virðast spretta undan hverjum steini. Þá hefur fjöldi bóka um hrunið
verið skrifaður og gerðar bíómyndir. Enn erum við þó, að ætla má, alltof
nærri hruninu til að við höfum mynd af því sem raunverulega gerðist.
Guðni Th. Jóhannesson skrifaði bókina Hrunið sem var gefin út vor-
mánuðum 2009. Hann segir enn óhægt að kveða upp sagnfræðilega
dóma um hrunið og slíkt verði tæplega hægt fyrr en mál er því tengjast
hafa verið til lykta leidd fyrir dómstólum. „Saga efnahagsævintýrisins
og endaloka þess verður skrifuð aftur og aftur á sama hátt og ævisaga
helstu stórleikara Íslandssögunnar hefur margoft verið skráð af ýmsum
höfundum. Hver tími gefur okkur nýtt sjónarhorn á mál. Iceasave-
reikningarnir voru á sínum tíma kallaðir tær snilld en reyndust svo
verða okkur myllusteinn um háls. En hver veit nema að eftir fá ár spyrji
einhver hvort hér hafi orðið eitthvert hrun. Þannig breytist sagan sí-
fellt,“ segir Guðni.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Saga
efna-
hags-
ævintýrisins
og endaloka
þess verður
skrifuð aftur
og aftur.
Guðni Th.
Jóhannesson
Humarinn sem var veiddur í vikunni nálægt Prince Edward-eyju í
Kanada verður ekki borðaður heldur endar í huggulegu fiskabúri í
sædýrasafni. Það er vegna þess að humar þessi er blár. Mjög sjald-
gæf stökkbreyting veldur þessum óvenjulega lit en aðeins einn af
mörgum milljónum humra er blár. Það er þó alveg hægt að borða
hann, hann verður meira að segja rauður við suðu, rétt eins og hinir.
Blessaður blár humar
Blár humar rétt eins og sá sem var veiddur í sjónum við Kanada.
Tollayfirvöld í Bandaríkjunum lögðu hald á rúm 70 kíló af eðlukjöti
við landamærin að Mexíkó á fimmtudag en kjötið var falið í tönkum
ætluðum fiski. Smyglarinn var 37 ára gamall Bandaríkjamaður, sem
hefur nú verið ákærður. „Það gætu verið nokkrar ástæður en sú
helsta sem kemur í hug er að í mörgum heimshlutum er eðlukjöt tal-
ið vera mikill herramannsmatur,“ sagði starfsmaður tollgæslunnar
um mögulegar ástæður innflutningsins.
Með eðlukjöt í tollinum
Eðlukjötið er vægast sagt ógirnilegt.
Reuters
Maður frá Oregon í Bandaríkjunum, sem hætti í skóla skömmu fyrir
útskrift árið 1932, hefur nú loks útskrifast 99 ára gamall. Leo Plass
frá Redmond, sem á aðeins tvo mánuði eftir í aldarafmælið, fékk
gráðuna sína fyrir nokkrum dögum frá Eastern Oregon University.
Plass var í kennaranámi og átti lítið eftir þegar hann hætti. Kreppa
var í Bandaríkjunum og hann gat ekki lifað á 80 bandaríkjadölum á
mánuði. Hann hætti í náminu þegar vinur hans bauð honum starf
við skógarhögg, sem gaf af sér helmingi meiri pening.
Hann komst seinna að því að hann hefði átt aðeins þrjár stundir
eftir af náminu. „Slæmt að þið
sögðuð mér það ekki þá. Ég
hefði nú verið þarna allt kvöldið til
að klára þessa þrjá tíma.“
En hvað er það sem veldur langlífi
stúdentsins?
„Góð fjölskylda, gott líf, góður mat-
ur,“ svaraði Plass einfaldlega.
99 ára og nýútskrifaður
Leo Plass
við út-
skriftina.