SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Side 47
19. júní 2011 47
L
istamaðurinn Bergur Thorberg vann nýlega til
verðlauna fyrir myndbandsportrett sitt Mr.
Gissurarsons confession í samkeppni sem var
opin öllum listamönnum á Norðurlöndum.
Þetta var í þriðja skiptið sem keppnin var haldin en hún
fer fram annað hvert ár.
Í keppninni var staða portrettsins innan myndlistar á
Norðurlöndum skoðuð sérstaklega og í kjölfar hennar
sýningin Portræt Nu 2011 opnuð í Friðriksborgarkastala,
Det Naturhistoriske Museum, í Danmörku hinn 6. maí
síðastliðinn.
Dómnefnd skipuð 10 fulltrúum allra Norðurlandaþjóð-
anna valdi 50 verk af 501 sem barst í keppnina og voru
sex verðlaun veitt sérstaklega. Þrenn verðlaun féllu Ís-
lendingum í skaut en auk Bergs hlaut Íslenski gjörninga-
klúbburinn verðlaun fyrir verkið Amos og Katrín Matt-
híasdóttir fyrir Matthías Hildi. Sýningin er svokölluð
farandsýning og mun ferðast áfram eftir að henni lýkur í
Friðriksborgarkastala 1. ágúst næstkomandi.
Talandi portrett
Bergur segir að með portrettverki sínu, Mr. Giss-
urarsons confession, hafi hann nálgast portrettlistina á
nýjan hátt og hlotið verðlaunin í keppninni fyrir það.
Flestir listamannanna hafi verið með hefðbundin máluð
portrett eða ljósmyndir en hans hafi verið eina talandi
verkið á sýningunni og þannig skorið sig úr.
Hann segir verk sitt vera örstutt myndband sem sé um
leið portrett af manni. Í verkinu eru bæði ljóð og tónlist
eftir Berg sem „módel“ hans, eins og hann segir sjálfur,
raular.
„Portrettið er af Guðmundi Gissurarsyni sem ég
kynntist fyrir nokkrum árum. Verkið er byggt á sam-
tölum okkar á tveggja til þriggja ára tímabili áður en por-
trettið varð til svo verkið er ekki eitthvað sem var gert á
einum degi eða viku. Það er svo mikils virði ef einhver
vill gefa listamanni þann tíma sem hann þarf til að ná því
fram sem hann vill,“ segir Bergur.
Hann segist viljandi hafa sett Guðmund í nokkuð ógn-
vænlegt umhverfi þegar hann var að taka hann upp.
„Hann lítur út eins og glæpamaður í yfirheyrslu. Ég
skapaði þetta umhverfi til þess að skerpa á myndinni og
koma því á framfæri að við erum öll bæði fangar í eigin
líkama og fangar í samfélaginu. Við erum í stöðugum
yfirheyrslum. Verkið heitir „confession“ og það má segja
að þetta sé játning til lífsins. Aðaltilgangur minn með
portrettinu var að áhorfandinn skynjaði svipað í sjálfum
sér og hann upplifir við að horfa á portrettið,“ segir
Bergur.
Í umsögn Åslaug Krokan Berg um verkið segir meðal
annars að verkið sé afdráttarlaust og kröftugt í einfald-
leika sínum. Að hennar sögn er þetta játning til lífsins og
stöðu mannsins í heiminum. Verk um mannkynið og þá
staðreynd að þegar upp er staðið er manneskjan alltaf
einsömul.
Bergur segir sköpun portrettsins vera samspil lista-
manns og „módels“. Listamaðurinn vinni og „módelið“
gefi. Þetta samspil leiði svo til einhvers konar lokanið-
urstöðu og síðan taki áhorfandinn við.
„Það er það sem er mest spennandi ef vel tekst til,
þetta viðprjón áhorfandans. Hvernig hann móttekur
verkið og upplifir það. Þú hefur bara sjálfan þig til að
miða við og oftar en ekki blandast sjálfsmynd þín inn í. Ef
þú ert að gera portrett ertu að miklu leyti líka að gera
sjálfsmynd. Áhorfandinn miðar svo líka við sjálfan sig og
fer kannski ósjálfrátt að horfa inn í eigið líf þegar hann
skoðar verkið. Þá er maður náttúrlega ánægður,“ segir
Bergur og bætir við að þetta eigi í raun við um öll verk,
þau eigi að lifa sjálfstæðu lífi.
Með hrærigraut á bakinu
Bergur er hvað þekktastur fyrir svokölluð kaffimálverk
sín sem hann hefur unnið að í um 20 ár en þau málar
hann með kaffi á bæði pappír og striga og hafa þau verið
til sýnis víða um heim. „Ég vinn þessi verk öll á hvolfi og
fer þannig bakleiðina inn í verkið. Ég nota líka tækni þar
sem ég snerti ekki strigann þegar ég er að gera verkin.“
Að eigin sögn hefur Bergur komið víða við og hafði
prófað ýmislegt áður en hann fór yfir í málaralistina.
Hann segist hafa byrjað menntun sína í leiklist auk þess
að hafa starfað mikið í tónlist áður en hann fór að mála. „Í
dag er þetta orðinn einn hrærigrautur. Þetta er eins og að
vera með bakpoka á bakinu. Þú ert starfandi listamaður
og þegar þú stendur frammi fyrir einhverjum verkum er
gott að hafa pokann á bakinu og allt það sem þú hefur
safnað í hann. Hann er eins konar saga þín og það er gott
að geta teygt sig í hann. Hvað sem er getur svo komið
upp úr honum.“
Endursköpun manneskjunnar
Bergur segir að sér hafi fundist portrettið mjög góð leið
þegar hann var að byrja í málverki. „Í einu andliti ertu
með ansi margt. Andlitið sjálft er lykill að manneskjunni
því það er yfirleitt það fyrsta sem þú átt samskipti við.
Allt sem þú þarft að vita er í andlitinu og það hjálpar þér
svo ef þú heldur áfram í listum. Portrettið var því mjög
gott inngönguport fyrir mig og myndbandsportrettið
eðlilegt framhald af því.“
Í dag eru portrettmyndir úti um allt að sögn Bergs.
Portrettlistina segir hann þó gamla, frá því fyrir Krist.
Hún hafi svo þróast með tímanum en lengi vel hafi por-
trettmyndir verið forréttindi yfirstéttarfólks sem hafði
efni á því að láta mála af sér portrettmyndir og gerði það
sem eins konar minnisvarða um sjálft sig. Með útbreiðslu
myndavélarinnar og netsins séu portrettmyndir orðnar
mun algengari áður og verið sé að taka andlitsmyndir um
allan heim, hvort sem það er af fólki eða einhverju öðru.
„Núna þegar portrettmyndir eru orðnar svona al-
mennar byggist góð portrettmynd enn frekar á sambandi
listamanns og „módels“ eins og ég sagði áðan. Þetta er
ekki eitthvað sem er gripið úr lausu lofti heldur er jafnvel
innri mynd manneskjunnar. Þú ert eiginlega að end-
urskapa eða -túlka manneskjuna, ekki bara útlitið heldur
allt hitt líka,“ segir hann.
Bergur bendir á að hægt er að sjá portrettverk hans Mr.
Gissurarsons confession á www.youtube.com/user/
thorberg123.
Morgunblaðið/Kristinn
Raular játningu til lífsins
Bergur Thorberg hlaut verðlaun
fyrir myndbandsportrett sitt
Mr. Gissurarsons confession. Í
verkinu nálgast hann portrett-
listina á nýjan hátt.
Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is
Bergur Thorberg vann
nýlega til verðlauna fyrir
myndbandsportrett.