SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 23

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 23
10. júlí 2011 23 Þ að er ekkert venjulegt við Björk Guðmundsdóttur. Því fær heimurinn enn og aftur að kynnast gegnum nýjasta tónlistarverkefni hennar, Biophiliu, sem hleypt er af stokkunum í Manchester á Englandi þessa dagana. Listakonan fer ekki troðnar slóðir fremur en endranær og af fyrstu umsögnum að dæma hittir hún naglann á höfuðið. Alltént á Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður Morgunblaðsins, varla orð yfir upplifun sína í Sunnudagsmogganum í dag en hann var viðstaddur tónleika Bjarkar ytra síðastliðið fimmtudagskvöld. „Biophilia kallaði fram sterk hughrif, eitthvað sem ég er enn að vinna úr,“ skrifar Arnar Eggert. „Um þetta verkefni verða skrifaðar langar og djúpar greinar á næstu árum, eitthvað sem ég kemst hins vegar ekki í akkúrat núna, sitjandi á hótelherbergi í Manchester og uppi við vegg vegna banastiku dagblaðaheimsins. En vonandi kemst ég í slíkt síðar. Ég ætla nú að hvíla heilann aðeins og leyfa honum að vinna úr því sem hann hefur verið bombarder- aður með. Það er ekki á hverjum degi sem maður upplifir raunveruleg tímamót – já þátta- skil – í dægurtónlistarsögunni.“ Hér er rammt að orði kveðið og fróðlegt verður að fylgjast með hvernig Biophilia gengur í tónelska en eins og menn vita er allur heimurinn undir þegar Björk Guðmundsdóttir fremur sína list. Bretar hafa sérstakt dálæti á henni og gaman hefur verið að fylgjast með þarlendum fjölmiðlum í aðdraganda Biophiliu og augljóst að eftirvæntingin er engu minni þar en hér heima. Eflaust standast einhverjir aðdáendur Bjarkar ekki mátið og æða út til að berja herlegheitin augum en hinir, sem ekki eiga heimangengt, geta byrjað að hlakka til enda var gert heyrinkunnugt í vikunni að heimur Biophiliu muni taka á sig mynd í Silfur- bergi Hörpunnar á sex tónleikum í október næstkomandi. Það er hlýrra í næstu götu Heimurinn er líka allur undir hjá annarri íslenskri kjarnakonu, Guðrúnu Margréti Páls- dóttur, stofnanda ABC-barnahjálpar, en við hana er rætt í blaðinu í dag. Í meira en tvo ára- tugi hefur hún ferðast heimshorna á milli og unnið með götubörnum á fátækustu svæðum veraldar og í dag er ABC-barnahjálp með hvorki fleiri né færri en tólf þúsund börn í sinni umsjá, ýmist í skólavist eða heimavist. Guðrún vill hjálpa fleirum og segir að í raun ætti enginn að unna sér hvíldar á meðan börn eru munaðarlaus, deyjandi á götunni. Mergjað er að lesa um fyrstu kynni Guðrúnar af þessu víðtæka vandamáli, heimilisleysi barna. „Í hnattferðinni fannst mér erfiðast að ganga fram hjá ellefu ára gömlum dreng sem var að leggjast til svefns á gangstéttinni,“ segir hún. „Ég gat ekki fengið það af mér og bauð honum gistingu á gistihúsi, eins og það væri einhver lausn og hann afþakkaði það. Ég spurði hvort honum væri ekki kalt og hann sagðist ætla að færa sig á aðra götu sem væri hlýrri. Ég var með Nýja testamentið á spænsku í vasanum og gaf honum það – og hvílíkt bros! Ég mun aldrei gleyma því brosi. Hann ljómaði eins og sólin og hann var læs. Frá þeirri stundu þráði ég að geta gefið götubörnum heimili, þó að ég sæi ekki hvernig það væri mögulegt.“ Vandinn er gríðarlegur og flest fórnum við bara höndum, teljum hann okkur ofvaxinn. Guðrún ákvað hins vegar að láta slag standa og helga líf sitt baráttunni fyrir betri heimi. Fleiri mættu fara að hennar fordæmi. Þáttaskil í dægurtónlist „Það er alveg augljóst að við keppum ekki við Noreg í augnablikinu.“ Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. Fjöldi íslenskra heilbrigðisstarfsmanna vinnur í Noregi. „Þetta er ógeðslegt.“ David Cameron forsætisráðherra Breta um símahlerunarmálið sem skekur Bret- land. „Ég kom til að sigra og gerði það sem til þurfti.“ Joey Chestnut sem sigraði í pylsuátskeppni í New York. Sporðrenndi 62. „Ég æfi fótbolta en er bekkjarsetukarl í FH, æfi það sérstaklega.“ Jón Jónsson hagfræðingur, tónlistarmaður, fótbolta- maður og ritstjóri Monitors. „Svo er það eig- inlega bara subbulegt að setja á svið svoleiðis senu hjá okkur þar sem nálægðin er svona mikil við áhorf- endur, fólk myndi bara finna vonda lykt.“ Matthías Matthíasson söngvari en engin eiginleg nektarsena er í Hárinu sem flyst úr Hofi í Hörpu. „Við erum jafnvel bara besta „crowd-ið“ eða hópurinn, þó að við lítum út fyrir að vera það ekki. Haukur Dór Bragason kynningarstjóri málmhátíðarinnar Eistnaflugs. „Mig dreymdi þetta í nótt.“ Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR sem dróst gegn BÍ/ Bolungarvík fyrir vestan í undanúrslitum bikarkeppn- innar í fótbolta. „Það var ekki að ástæðulausu að Bjarni svitnaði í draumnum í nótt.“ Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/ Bolungarvíkur og faðir Bjarna. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal og hvort samþykktir byggingayfirvalda viðkom- andi sveitarfélags um jafnlangt skeið hafi enga þýðingu. Auðvitað er það klókt af stjórnmála- stéttinni að láta borgarbúann finna fyrir van- mætti sínum með því að láta hann mæta sam- þjöppuðu pólitísku valdi þegar honum þykir brotið á sér. Sú viðleitni að koma því inn hjá kjósandanum að lífsskoðanir eigi ekki lengur að skipta máli hjálpar vissulega til að furðuframboð eins og Besti flokkurinn fái brautargengi. Sá flokkur hefur reyndar með framgöngu sinni leitt til þess sjálfur að fylgið flagnar af honum án þess að stuðlað sé að því af öðrum flokkum í borgarstjórninni. Besti- flokksbrandarinn þurfti ekki fjögur ár til að verða fúll. En fylgismælingar létta ekki kvöð af öðrum til að fara fram fyrir eigin afli og láta finna fyrir sér og sýna fyrir hvað menn standa og að borg- arbúar eigi talsmenn í öllum málum, stórum og smáum. Þess háttar framganga mun skila árangri, ekki aðeins til skemmri tíma. En svo skrítið sem það kannski er þá virðast hin venjubundnu verkefni sveitarstjórna gjalda þess ef óhæfir verkstjórar veljast til forystu. Það eru ekki bara gamlir borgarstjórar sem blöskrar að sjá umgengnina og hirðuleysið sem borgaryfirvöld sýna. Borgin setti löngum stolt sitt í það að láta borgina blómstra um hið stutta sumarskeið. Nú- verandi borgarstjóri hefur sagt að vilji hans standi til að rífa upp fljótsprottnar aspir sem sett hafa góðan svip á götumyndir víða og skapað skjól. En á meðan niðurrifshernaður gegn öspum er boð- aður sprettur njóli upp sem aldrei fyrr og gras sprettur úr sér og það er þyngra en tárum taki að horfa upp á hirðuleysið á grænum blettum í borg- arlandinu. Það má vel vera að eitt af kosningalof- orðum Bestaflokksins (og Samfylkingarinnar sem ábyrgð ber á völdum hans) hafi verið: Látum njóla vaxa til jóla! En hvers vegna getur ekki flokks- brandarinn svikið það loforð eins og öll hin sem hann sagðist ætla að svíkja? Hestamenn á hálendinu. Morgunblaðið/RAX

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.