SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 32

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 32
32 10. júlí 2011 G uðrún Margrét Pálsdóttir hef- ur unnið ötult starf til bjargar börnum í verstu mögulegu aðstæðum. Hún hefur ferðast heimshorna á milli og unnið mikið með götubörnum á fátækustu svæðum ver- aldar. Hún hefur barist fyrir því að veita börnum heimavist og skólagöngu og gefa þeim von um framtíð án fátæktar. Guð- rún stofnaði ABC-barnahjálp fyrir 22 ár- um og hefur gefið vinnu sína í öll þessi ár, enda mikil hugsjónamanneskja með ástríðuna að vopni. Í dag er ABC- barnahjálp með tólf þúsund börn í sinni umsjá, ýmist í skólavist eða heimavist. Guðrún vill hjálpa fleirum og segir að í raun ætti enginn að unna sér hvíldar á meðan börn eru munaðarlaus, deyjandi á götunni. Talið er að um 100 milljónir barna séu á götunni í heiminum, svo það er ærið verk fyrir höndum. Á sínum yngri árum fór Guðrún í heimsreisu og varð vitni að skelfilegri fá- tækt. Hugsjón varð til í þessari hnattferð er hún kynntist því hversu margir eru ólæsir og hversu ömurleg tilhugsun það er að vera fullorðinn og kunna ekki að lesa. Þar sem fátæktin er mikil snýst lífs- baráttan um það eitt að komast af. Hún brá því á það ráð að kaupa bækur og gefa þær í fátækustu þorpum sem hún fann. „Í hnattferðinni fannst mér erfiðast að ganga fram hjá ellefu ára gömlum dreng sem var að leggjast til svefns á gangstétt- inni,“ segir hún. „Ég gat ekki fengið það af mér og bauð honum gistingu á gisti- húsi, eins og það væri einhver lausn og hann afþakkaði það. Ég spurði hvort honum væri ekki kalt og hann sagðist ætla að færa sig á aðra götu sem væri hlýrri. Ég var með Nýja testamentið á spænsku í vasanum og gaf honum það – og hvílíkt bros! Ég mun aldrei gleyma því brosi. Hann ljómaði eins og sólin og hann var læs. Frá þeirri stundu þráði ég að geta gefið götubörnum heimili, þó að ég sæi ekki hvernig það væri mögulegt.“ Að hnattferð lokinni var Guðrún ákveðin í að fara heim til Íslands, safna peningum og fara svo aftur út til að kenna fólki að lesa og skrifa. Hún hafði ekki verið viku á Íslandi þegar hún hitti tilvonandi eiginmann sinn. Þá flæktust málin því köllun hennar var að fara aftur út. „Ég endaði á því að biðja Guð um skýrt svar. Það eina sem mér datt í hug, af því ég treysti ekki minni dómgreind, var að taka sex krónur og segja við Guð að ef fiskarnir kæmu upp færi ég, en ef hin hliðin kæmi upp yrði ég á Íslandi og myndi væntanlega gifta mig. Svo lokaði ég augunum, hristi krónurnar, kastaði þeim upp í loftið og það kom enginn fiskur upp,“ segir Guðrún. ABC-hjálparstarf var svo stofnað árið 1988, tveimur árum eftir heimkomuna úr hnattferðinni, sem íslenskt, kristið hjálparstarf. Barnastarfið hófst á Filipps- eyjum árið 1990. Þar voru 100 börn styrkt í skóla og byggð heimili fyrir götubörn. Frá Filippseyjum dreifðist hjálparstarfið til Indlands, Úganda, Kambódiu og Bangladesh. Starfið á Ind- landi jókst svo til muna og þar voru byggð tvö stór barnaheimili í samstarfi við innfædda. Árið 2005 fór ABC að styrkja börn í Pakistan og nú eru 3.000 börn í skólum ABC í Pakistan. Áfram var haldið með barnahjálpina til Kenía, Líb- eríu og víðar. Reynt er að vinna sem mest í samvinnu við heimamenn, það hefur reynst best því innfæddir þekkja menningu svæðisins og tala tungumálið. Þetta er því samvinna fyrst og fremst. Menningarsjokk „Að koma inn í fátækrahverfi eins og í Nairobí í Kenía er mikið áfall fyrir venju- legt fólk. Ef fólk er ekki undirbúið og hefur ekki fengið réttar upplýsingar fyr- irfram fær það hreinlega menning- arsjokk af verstu gerð,“ segir Guðrún. Fátækrahverfin eru gríðarlega þéttbýl. Af fimm milljónum íbúa í Nairobí eru þrjár milljónir í fátækrahverfum. Þar eru eng- ar götur, segir Guðrún. „Þetta eru mold- artroðningar á milli húsanna og ef maður teygir sig í báðar áttir nær maður á milli kofanna. Það er ekkert rafmagn og engin klósett, nema kannski eitt fyrir 500 manns og það þarf að borga til að nýta þjónustuna. Það viðtekna eru fljúgandi klósett. Þá gerir fólk þarfir sínar í poka og svo hendir það pokanum bara út. Þar eru því haugar af plastpokum og síðan rennur skólpið bara opið á milli húsanna.“ Það eru engar skólplagnir og það eru moldargólf í kofunum. Kofarnir eru byggðir þannig að reist er timburgrind og hún klædd með bárujárni. Oft eru þeir gisnir svo það rignir inn. Þegar rignir þá blandast skólpið regnvatninu og flæðir inn í kofana. „Það geta jafnvel átta manns búið í tíu fermetra kofa,“ segir Guðrún. „Oftast eru það bara konan og börnin því maðurinn er oftast farinn. Í svona mikilli örbirgð gefast þeir oft upp og stofna nýja fjölskyldu annars staðar og konan situr ein eftir með börnin sem oft eru smituð af alnæmi.“ Svo er margt sem herjar á eins og mal- aría og berklar og mikið er um rottur sem koma inn í kofana og bíta í tær, fingur, nef og eyru. Fæðingar eiga sér stað í þessum kofum því fólk hefur ekki efni á að fara til læknis og það hefur ekki efni á malaríulyfjum þó að þau kosti að- eins fimm hundruð krónur. Það er rétt svo að fólk dragi fram lífið. „Hætturnar eru fleiri. Það eru gengi sem misþyrma og nauðga, þannig að fólk er ekki öruggt í þessum kofum sem það á ekki einu sinni. Það leigir þá af þeim sem eiga landið og hafa byggt öll þessi hreysi og ef það getur ekki borgað þá er því hent út. Úr þessum verstu hugsanlegu aðstæðum mannkynsins erum við að taka inn börn.“ Þúsundir barna vantar stuðningsaðila Þórunn Helgadóttir er í Kenía með götu- barnastarf á vegum ABC og börn sem Barátta upp á líf og dauða Guðrún Margrét Pálsdóttir stofnaði ABC-barnahjálp fyrir rúmum tveimur ára- tugum og eru samtökin með tólf þúsund börn í sinni umsjá, ýmist í heimavist eða skóla- vist. Enn er mikið verk óunnið, því talið er að 100 milljónir barna eigi sér ekkert athvarf. Áslaug Einarsdóttir Guðrún Margrét Pálsdóttir hefur ferðast heimshorna á milli og unnið mikið með götubörnum á fátækustu svæðum veraldar.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.