SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 35
10. júlí 2011 35
Í fréttaöflun á Íslandi
Kl. sjö, um kvöldmat, var lagt í hann aftur. Með í þessari
ferð voru auk mín og Unnars Nancy King og Drew Patter-
son, ungt par frá New York, og á þriðja hjólinu vou Hall-
dór Kolbeins ljósmyndari, barnabarn samnefnds prests
sem var prestur hér í Vestmannaeyjum og skírði mig, og
Egenie Nina Larsson, fréttamaður AFP. AFP er heildsölu-
fréttastofa sem gerir fréttir og fréttatengda þætti um allan
heim og selur þeim sem vilja kaupa fréttirnar, en Nína var
að gera fréttir hér á Íslandi um hrunið þ. á m. og þessa
ferð. Nína er norsk en býr í Stokkhólmi í Svíþjóð. Fyrst
það var fréttakona með upptökutæki þurfti að keyra fram
og til baka og allar hundakúnstir. Halldór ljósmyndari var
með Nínu til að mynda fyrir hana svo hægt væri að aug-
lýsa fréttirnar um allan heim.
Ferðin gekk í alla staði vel, ekki var útlitið þó gott er við
lögðum af stað, rignt hafði og jökullinn hulinn skýjum en
er við fórum ofar og ofar létti meir og meir þar til að skýin
fóru, rétt eftir að við komum á topp Goðabungu.
Haldið var niður eins og í fyrri ferðinni og gengið held-
ur lengra en áður, þannig að við sáum gilið langleiðina frá
gíg, og niður að lóninu í Þórsmörk. Hvílík fegurð og
hrikaleiki að maður hefur ekki séð annað eins, öflin sem
léku aðalhlutverk á þessum stað fyrir ári hafa farið ham-
förum og skilið eftir sig liti sína, svart og hvítt. Jökullinn
sprunginn með ógurlegum sprungum sem eru ekki færar
nokkrum manni, maður varð orðlaus að sjá þessa hrika-
legu fegurð.
Nína fréttakona ræddi við Unnar fararstjóra og Nancy,
ekki gat ég séð annað en að hún væri hrærð að sjá allt
þetta og brosið fór ekki af Nancy allt kvöldið. Á þessum
stað var boðið upp á kaffi sem hitað var á staðnum, kexið
og súkkulaðikexið var tekið upp og vel var tekið á við að
gera þessum veigum skil. Unnar vildi fara nær gígnum til
að sýna okkur hann, Nína þurfti að fara í viðtal við Geir
Haarde og Steingrím J. daginn eftir og lagði ekki í að fara
þar sem hún vildi ekki mæta í viðtölin hálfsofandi.
Einstakt sólarlag
Klukkan var að verða hálftólf þegar lagt var aftur af stað
niður jökulinn, ánægja var meðal fólksins sem fór í þessa
ferð, einstakt sólarlag var er við vorum að leggja í hann,
ekki skemmdi það fyrir, og glaðir ferðalangar héldu í
hann. Rétt fyrir kl. hálf-tvö komum við niður á láglendi
og klukkan var að verða tvö þegar við vorum búin að
klæða okkur úr göllum okkar.
Ég aðstoðaði Unnar við að ganga frá fjórhjólunum og
göllum, eftir það var boðið upp á kaffi og kökur. Ferða-
langar spjölluðu saman í stutta stund. Ég ók að Hvassafelli
undir Eyjafjöllum og kom mér í rúm rúmlega þrjú, sæll og
glaður eftir langan en góðan dag.
Fyrir vana menn er þetta létt mál, Unnar var sá eini sem reyndi þetta,
við hin horfðum bara á listir hans.
Þegar búið er að keyra um á fjórhjólum í nokkrar klst. í ösku, sandi og möl, þar sem rykið ræður ríkjum og ein beygja er tekin og Gjáin birtist með þessum fallegu fossum og gróðri, og maður hætt-
ir á augabragði að hafa það á tilfinningunni að maður sé staddur á tunglinu. Gjáin er staðsett rétt norðan við Búrfell.
Pálmi Jónsson, Solveig Pálmadóttir og Unnar Garðarsson hjá Óbyggðaferðum. Útsýnið við Goðabungu er einstakt, þetta er í raun í hina áttina frá því sem ég er vanur að sjá.
’
Ég hef oft séð gíg Eldfells og
Helgafells, en þeir eru örverpi
samanborið við þennan gíg.
Mikil gufa var frá gígbörmunum
og niður eftir gilinu mátti sjá
mikla gufu hér og þar.
Skannaðu kóðann
til að skoða fleiri
myndir úr ferðinni.