SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 36

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 36
36 10. júlí 2011 G uðmundur Finnbogason heimilisfræðikennari í Laug- arnesskóla stendur fyrir mat- reiðslunámskeiðum fyrir börn og unglinga í sumar. Indverskur dagur var á námskeiðinu þegar blaðamaður og ljósmyndari komu í heimsókn. „Við bjuggum til naanbrauð, tikka masala- kjúkling, jógúrtsósu og hrísgrjón,“ segir hann en krakkarnir borða saman þegar þau hafa tíma, annars er maturinn tekinn heim. „Það er vinsælt líka, ekki síst hjá foreldrunum,“ segir Guðmundur sem byrjaði með matreiðslunámskeiðin í fyrra en þau eru haldin í heimilisfræði- kennslustofu Laugarnesskóla. Þörfin var greinilega til staðar en öll námskeið urðu fljótt uppbókuð. Núna eru ennþá nokkur pláss laus í námskeiðunum sem byrja á mánudaginn. Aldursflokkarnir eru 10-12 ára (eins og þegar Sunnudagsmogginn kom á staðinn) en líka 8-9 ára og 13-15 ára en allar upplýsingar eru á síðunni Matreiðslunámskeið.is. Áður en Guðmundur byrjaði með nám- skeiðin eyddi hann sumrunum í skáta- starfi með börnum. Hann stjórnaði sum- arnámskeiðum fyrir Skátafélagið Vífil auk þess að vera aðstoðarforstöðumaður sumarbúða skáta á Úlfljótsvatni. Hann segir matreiðslu vera sérstaklega hentugt verkefni fyrir börn og líkir elda- mennskunni við að spila tölvuleiki. „Það er svo skjót svörun í tölvuleikjum og líka í heimilisfræðinni. Maður sér strax ár- angurinn. Bakar eitthvað, smakkar það og veit hvort það er gott eða vont. Svo spillir ekki fyrir að að það má borða af- raksturinn,“ segir hann en margt fleira jákvætt er í kringum matreiðsluna eins og að það er hægt að sýna afraksturinn, vera stoltur af honum og bjóða öðrum með sér. Byrjað á bakstri Hann byrjar yfirleitt á bakstri með nýjum hópum og notar þá líka tímann til að kenna krökkunum á eldhúsið og leyfa hópnum að kynnast. Á meðal annarra verkefna á námskeiðinu, sem er viku- langt, er líka pizzugerð, sem hann segir vinsæla hjá krökkunum. „Það er barn- vænt verkefni, klikkar ekki. Þau hafa svo mikla stjórn á útkomunni því þau ráða því hvað þau setja ofan á hana.“ Indverski dagurinn er síðan af allt öðr- um toga. „Þetta er svolítið flókið, enginn krukkumatur heldur búið til frá grunni. Maður gæti haldið að þetta væri fullorð- insverkefni en ef þessu er pakkað rétt inn og þetta gert í rólegheitunum er ekkert mál fyrir krakka að elda þennan mat.“ Eldamennskan felur líka í sér fræðslu. „Svona lærir maður líka um fleiri lönd og aðra menningarheima.“ Á námskeiðinu er líka gerð súpa og sal- at en á lokadeginum er farið út að grilla. „Það er gaman að enda á því. Við mar- inerum kjúkling, búum til kjúklinga- spjót, grillum banana og búum til drykk.“ Krakkarnir útskrifast að námskeiðinu loknu með kokkahatt á höfði og fá upp- skriftabók með sínum uppskriftum í út- skriftagjöf. „Þeim finnst þetta gaman. Þetta er svolítil upphefð,“ segir Guð- mundur. Hann vill að matartíminn og und- irbúningurinn fyrir hann verði fjöl- skyldutími. „Ég hef verið að tala fyrir því að fjölskyldan noti þetta tækifæri til að vera saman. Maður þarf hvort eð er að elda og borða. Þarna er tækifæri til að bjóða krökkunum að taka þátt í heim- ilshaldinu og verkefnunum og eiga svo- lítið í þessu,“ segir hann og bætir við að það sé aldrei of snemmt að byrja. „Maður á að byrja um leið og þau sýna áhuga. Það er ekkert aðalatriði að þau taki þátt í öllu verkefninu. Pítsan eða súpan er alveg jafn mikið þeirra þó þau hafi bara verið að í stutta stund,“ segir hann og ítrekar að það eigi að bjóða krökkunum að taka þátt í því sem þau ráða við. „En þegar þau eru orðin eldri skiptir frágangurinn auðvitað máli,“ segir hann með áherslu. Heimilisfræði fyrir fullorðna Guðmundur var með þróunarverkefni í heimilisfræðinni í vetur þar sem foreldr- unum var boðið að koma í heimsókn. „Ólíkt umsjónarkennurunum þá hitti ég aldrei foreldrana,“ segir Guðmundur sem var með góða gesti með sér í kennslunni. Umfjöllunarefnið var meðal annars hollt mataræði og möguleikinn á því að nota eldamennsku sem fjölskyldusamveru. „Það var gaman að fá foreldrana í heimsókn. Þeir elduðu uppskriftir sem krakkarnir hafa gert, bjuggu til súpu og brauð. Við settumst niður í lokin og borðuðum saman. Eldhúsið er staður þar sem maður getur talað saman.“ Guðmundur stefnir að því með tíð og tíma að vera með fjölbreytt matreiðslu- námskeið í gangi allt árið. Í vetur var hann til dæmis með námskeið í konfekt- gerð og páskaeggjagerð. „Þessi námskeið eru bæði kjörin fyrir fjölskyldusamveru,“ segir Guðmundur sem er kominn með nokkra fastakúnna. Hann hefur líka hag- að verðlagningunni þannig að því fleiri sem skrá sig saman, því lægra verð. Hann stefnir síðan á að halda námskeið í ítalskri matargerð í vetur. Líka ætlar hann að halda námskeið fyrir unglinga, sem eiga í vandræðum með aukakílóin og annað námskeið fyrir fjölskyldur með of þung börn. Þetta ætlar hann að gera í samvinnu við Ebbu Guðnýju Guðmunds- dóttur, sem er mikill hollustufrömuður og þekkt fyrir bókina Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? „Það er gaman að geta lagt sitt á vogar- skálarnar í þessari baráttu,“ segir Guð- mundur sem lítur líka á matreiðslunám- skeiðin sem ákveðna menningarfræðslu. „Hluti af þessu er að bjóða fólki ekki að- eins menntunina heldur líka innblást- urinn. Maður þarf stundum bara spark í rassinn til að koma sér af stað,“ segir hann og útskýrir nánar hvað hann er að gera. „Við erum að færast nær Ameríku og fjær Evrópu í þessum matarmenning- armálum. Við erum að færast inn í Matur er samvera Guðmundur Finnbogason heimilis- fræðikennari í Laugarnesskóla stendur fyrir skemmtilegum matreiðslunámskeiðum fyrir krakka í sumar en hann er með vefinn Matreiðslunámskeið.is. Matur Besta forvörnin gegn offitu er að elda sjálfur og krökkum finnst matseld jafn skemmti- leg og tölvuleikir, að mati Guðmundar Finnbogasonar heim- ilisfræðikennara í Laugarnesskóla. Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.