SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 40
40 10. júlí 2011
Lífsstíll
S
vo ber við á hverju ári að Bandaríkjamenn
fagna afmælinu mínu með stæl. Grilla, fara í
skrúðgöngur, skjóta flugeldum á loft og ég veit
ekki hvað og hvað. Samt hef ég aldrei búið í
Bandaríkjunum og þar þekkir mig enginn, eftir því sem
ég best veit. Það vill bara svo vel til að afmælið mitt ber
upp á þjóðhátíðardegi Bandaríkja-
manna hinn fjórða júlí. Mér finnst af-
ar skemmtilegt að eiga afmæli og nýt
þess í botn að láta dekra (enn meira)
við mig þennan dag og hafa það sem
náðugast. Nú bar svo vel til að í af-
mælisgjöf fékk ég bæði vandað pipar-
og saltkvarnasett og töfrasprota. Því
get ég nú kannski farið að gera eitt-
hvað af viti í eldhúsinu. Prófað eitt-
hvað nýtt og kryddað matinn al-
mennilega. Töfrasproti þessi er
galdratæki. Hann má setja í pottinn
til að mauka grænmeti og búa til
súpu. En svo má líka nota skálina sem
fylgir til að mauka ýmislegt saman
eða þeyta rjóma. Ég er þegar farin að sjá þetta síðsumar
og haust fyrir mér í hillingum í eldhúsinu. Þar mun ég
standa sveitt og sæl við ótal tilraunir. Örugglega með
útsletta svuntu og skálar og diska út um allt. Búa til
hummus af ýmsum gerðum, salsa í ýmsum litum og
hakka og saxa eins mikið og töfrasprotinn þolir. Svo
slettir húsfreyja í heilu fjöllin af vöfflum og þeytir rjóma
með í skálinni góðu. Mjög hentugt að geta bara skellt
þeytaragræju á töfrasprotann fyrir þá sem ekki eiga
handþeytara. Aldrei að vita nema maður missi sig end-
anlega og setji saman við sultu sem maður hefur gert
sjálfur … Nei, best að fara nú ekki fram úr sjálfum sér …
En súpueldhúsið verður í það minnsta starfandi daga og
nætur. Ég sé sjálfa mig fyrir mér bera
heim mörg kíló af kartöflum, rófum,
gulrótum og annarri hollustu. Sjóða,
krydda með salti og pipar úr kvörn-
unum og mauka svo eins og ég eigi
lífið að leysa. Nota líka kannski fersk-
ar kryddjurtir sem ég get hakkað
saman og blandað að vild. Þetta held
ég að verði skemmtilegt tilraunaeld-
hús og gott átak eftir nokkurt hlé í
eldhússtörfum.
Mikið sem maður er nú annars orð-
inn þroskaður og fullorðinslegur.
Ekki gleðst ég eingöngu yfir því að
hafa fengið slík nytjatæki að gjöf
(hefði örugglega frekar viljað fá föt og
áfengi fyrir um áratug) heldur er ég líka búin að skrifa
heila grein um það hvað ég hlakka til að eyða notaleg-
um helgardögum og kvöldum í tilraunamennsku í eld-
húsinu. Þá er bara að vera ánægð með það og byrja að
skrifa niður matargestalista fyrir haustið, enda færi
fljótlega í óefni ef ég ætlaði mér að borða allan afrakst-
urinn ein og óstudd …
Ætar
tilraunir
Tilraunamennska í eldhúsinu er
skemmtileg. Spennandi er að
sjá hvernig útkoman verður en
ætíð er vonast eftir góðu bragði.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Ef marka má þessa mynd tókust tilraunir hertogaynjunnar af Cambridge á matreiðslunámskeiði í Kanada vel upp.
Reuters
’
Ég sé sjálfa mig
fyrir mér bera
heim mörg kíló
af kartöflum, rófum,
gulrótum og annari
hollustu. Sjóða, krydda
með salti og pipar úr
kvörnunum og mauka
svo eins og ég eigi lífið
að leysa.
Það er hægt að einfalda eldamennskuna með góðum
undirbúningi. Ef þú ætlar að halda matarboð er ráð að
vera búin/n að einhverju daginn áður. Kaldar sósur og
salöt eru til að mynda oft betri daginn eftir. Þá er allt
hráefnið búið að blandast vel saman og sækja í sig
bragð hvert frá öðru. Það er líka miklu minna stress að
þurfa ekki að gera allt samdægurs. Slíkt endar oft með
því að maður tekur á móti gestunum nýkomin/n úr
sturtu. Eða bara sveitt/ur á svuntunni. Það er nú
kannski skemmtilegra að reyna að forðast það.
Góður undirbúningur
Í tilefni Ólympíuleikanna í
London á næsta ári hefur
breska flugfélagið British Air-
ways hrundið af stað sam-
keppni. Hefur hún hlotið nafn-
ið Greta Britons og er ætluð
öllu áhugafólki um elda-
mennsku. Nánar tiltekið
áhugafólki um ljúffengari flug-
vélamat. Þátttakendum er
ætlað að senda inn tillögur að
því hvernig flugvélamáltíð eigi
að vera samsett. Fólki er ætl-
að að senda hugmyndirnar inn skriflega en með má
einnig senda teikningar og ljósmyndir. Sú hugmynd
sem þykir girnilegust verður síðan færð yfir á bakka
flugfarþega af Heston Blumenthal. Hann rekur Michel-
in-stjörnustaðinn The Fat Duck, sem kosinn hefur verið
besti veitingastaður í heimi. Keppnin er því allnokkur
áskorun og um að gera að leggja höfuðið vel í bleyti fyr-
ir þá sem ætla að taka þátt. Það eru ekki allir yfir sig
hrifnir af flugvélamat og er hann líklegast meðal vin-
sælustu umkvörtunarefna flugfarþega. Því verður
spennandi að sjá hvað kemur út úr þessari sam-
keppni.
Keppt um flugvélamat
Það þarf ekki að vera svo flókið að
bjóða gestum heim í mat. Ef okkur
finnst gaman að prófa okkur í eldhús-
inu ættum við heldur ekki að vera
hrædd við að fá fólk til að smakka
með okkur. Það getur alltaf gerst að
eitthvað mistakist eða brenni við. Þá
er bara ekkert við því að gera. Annað-
hvort má byrja aftur upp á nýtt eða í
versta falli panta pitsu. Margir muna
eftir því úr kvikmyndinni Bridget Jones
þegar söguhetjunni tókst að búa til
bláa súpu. Það getur nefnilega allt
gerst í eldhúsinu og fínustu réttir sem
við þekkjum í dag hafa sumir hverjir
orðið til upp úr mistökum.
Gott tapas
Á netinu er að finna ótal uppskriftir
sem geta hjálpað fólki við að fá góðar
hugmyndir. Oft má líka finna þar góð
ráð ef maður er ekki viss um eitthvað
í eldamennskunni. Á vefsíðunni so-
easyrecipies.com er t.d. hægt að
finna alls konar girnilegar hugmyndir
að spænskum smáréttum eða tapas.
Síðan er sniðug að því leyti að þar er
að finna uppskriftir auk þess sem
lesa má sér til um hvern upp-
skriftaflokk – eins og t.d. tapas,
ítalskan mat og mexíkanskan. Það er
um að gera að vera óhrædd/ur að
prófa sig áfram. Um það snýst jú elda-
mennskan að stórum hluta. Prófa nýj-
ar samsetningar og leyfa bragðlauk-
unum að leiða mann áfram að þeirri
sem er best.
Smakk er
besta leiðin