SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 41

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 41
10. júlí 2011 41 LÁRÉTT 1. Barnslegt ruglast. (9) 4. Málfræðihugtak sem lýsir því þegar óframfærin mann- eskja fær tvisvar fimmtíu. (8) 10. Ókunnar lykti af barni. (12) 11. Tvo gin á dönsku fyrir sorgmætt með sérkennilegt andlit. (10) 13. Varla verst farið andlega? (6) 15. Sný Snata við hjá hesti, helvítis. (6) 16. Ávöxtur með steinefni í heljartaki. (9) 18. Samkoma aldna vekur andmæli. (7) 19. Deilir um ílát fyrir hjón. (6) 21. Forðið klettinum. (7) 24. Dáð er tímafrek. (5) 28. Gaf til baka auk þess að fá viðbótar námsgrein. (7) 30. Jórturdýr sem lifir í uppsprettu reynist vera fugl. (9) 31. Græða óhóflega á belgjurt. (4) 32. Á laugardögum vefur alls ekki þungar. (10) 33. Sindraðir ekki út af plássum (9) 34. Stór skal ég vera og hættuleg. (8) 35. Óvættur sem nær að dvelja í Menntaskólanum á Eg- ilsstöðum. (6) 36. Muldra í Hamrahlíð. (4) LÓÐRÉTT 1. Títt snýst við hjá brú með vergri fjárhæð. (6) 2. Blanda setusalarins fyrir þær án mats. (12) 3. Fótabúnaður fyrir viðsnúið bein má gera úr fléttum. (6) 5. Með kind þrátt fyrir allt. (5) 6. Upphafsstafir sem þú finnur á fótboltavellinum á Litla- Hrauni. (9) 7. Sorgmædd dragi foringja (8) 8. Ílát fyrir aðkomumenn eru nothæf sem íverustaðir. (11) 9. Veik fer einfaldlega í að ýkja um eldsvoða (8) 12. Hvít kona sem á barn eða sú sem hjálpar við fæðingu þess? (9) 14. Lækur nær að ræna ruglaðar spár. (8) 17. Perri fær ruglaðan klaufa í starf sem flest í söfnun verðmæta (11) 20. Setja flott saman við ax til að fá brennanlegt efni. (10) 22. Slaufar öllu rugli gagnvart þeim sem er sviptur rétti. (7) 23. Huga að tungutaki um erfiðleika. (8) 25. Leiðtogi þess sem hefur sköpulag. (8) 26. Botna í þrívídd í milligerð. (7) 27. Ruglum slaufum hjá þeim sem er án hiks (7) 29. Sjá okkur lenda í biluðum út af frásögn af eldgosum. (7) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn ásamt úr- lausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 10. júlí rennur út 14. júlí. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 17. júlí. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 3. júlí er Anna Hermannsdóttir, Víðilundi 20, Akureyri. Hún hlýtur í verðlaun bókina Ævintýri góða dát- ans Svejks í heimsstyrjöldinni. Forlagið gefur út. Krossgátuverðlaun Fjórði heimsmeistarinn, Max Euwe, hafði gríðarleg áhrif í heimalandi sínu og jók mikið við vinsældir og virðingu skák- arinnar. Eftir að skákferlinum lauk var hann kosinn forseti FIDE en lét af embætti árið 1978. Jan Timman tók við sem fremsti skákmaður Hollendinga og komst í lokaeinvígi áskorenda- keppninnar árin 1990 og 1993. Timman hefði þó aldrei átt mikla möguleika á að hreppa titilinn ef til einvígis við Kasparov hefði komið, til þess var of mikill styrkleikamunur á þeim. Eftir hollenska meistaramótið sem lauk í vikunni með yfirburðasigri Anish Giri þykir mönnum óhætt að spá því að þessi 17 ára piltur, sem er með hollenskt ríkisfang, á rússneska móður og föður frá Nepal, eigi eftir að koma við sögu heimsmeistarakeppninnar á næstu árum. Samanburður við Magnús Carlsen er nærtækur, en á stórmótinu í Wijk aan Zee í árs- byrjun vann Giri Magnús í aðeins 22 leikjum. 10 skákmenn tefldu í efsta flokki hollenska meistaramótsins og hlaut Giri 7 ½ v. af 9 mögu- legum. Í 2. sæti varð Ivan Soko- lov með 5 ½ v. og síðan komu fjórir skákmenn með 5 vinninga. Meðfram meistaramótinu fór fram fremur veikt opið mót en þar var Héðinn Steingrímsson meðal þátttakenda. Hann var stigahæstur keppenda en hafnaði að lokum í 3. sæti með 6 ½ v. af níu mögulegum. Vinningatala hans var nokkuð undir ætluðum árangri. Þetta er fyrsta mótið sem Héðinn tekur þátt í síðan á Íslandsmótinu í apríl sl. Sigur- vegarar urðu heimamennirnir Manuel Bosboom og Yge Visser með 7 vinninga. Eftir að hafa rennt yfir flestar skákir Giri undrar mann mest hversu auðveldlega hann yfir- bugar andstæðinga sína. Pilt- urinn á alveg sérstaklega auðvelt með að tefla. Meiri baráttu var að finna í skákum Ivans Sokolovs sem er þekktur fyrir leggja mikið á stöðurnar. Ivan hefur oft látið þess getið að helsti áhrifavaldur hans sé Boris Spasskí og eftirfar- andi sigur hans minnir óneit- anlega á þá gömlu góðu daga þegar Spasskí náði að yfirbuga Viktor Kortsnoj í ýmsum til- brigðum drottningarbragðs: Hollenska meistaramótið 2011; 8. umferð: L’Ami – Ivan Sokolov Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. cxd5 exd5 5. Bg5 Be7 6. e3 c6 7. Dc2 Rbd7 8. Bd3 Rh5 9. Bxe7 Dxe7 10. Rge2 Alþekkt en það kann að vera betra að bíða með að ákvarða stöðu riddarans og leika strax 10. O-O-O. 10. … Rb6 11. h3 g6 12. O-O-O Rg7 13. g4 Bd7 14. Rf4?! g5! Snarplega leikið, svartur nær að laga peðastöðuna og vinna tempó í leiðinni. 15. Rfe2 h5 16. Rg3 O-O-O 17. Rf5? Annar yfirborðskenndur leik- ur. 17. … Bxf5 18. gxf5 Re8! Í anda Nimzowitch; riddarinn stendur vel á f6. 19. Hhe1 g4 20. hxg4 hxg4 21. Re2 Rf6 22. Hh1 Hh3 23. Hdg1 Betra var sennilega 23. Rf4 sem svartur getur svarað með 23. … Hxh1 og 24. … g3. 23. … Hdh8 24. Dd1 c5 25. dxc5 Dxc5+ 26. Kb1 Rc4 27. Rf4 Hh2 28. Hxh2 Hxh2 29. De1 Re5 30. De2 Kb8 31. Hc1 Dd6 32. Dc2 Rc6 33. Bf1 Erfiðleikar hvíts stafa af lélegri peðastöðu. Hann varð að reyna 33. Bb5. 33. … g3! 34. Bg2 Rg4 35. fxg3? Ekki var auðvelt að sjá að með 35. De2! getur hvítur haldið tafl- inu gangandi, t.d. 35. … Rxf2 36. Df3 Re4 37. Dg4! með gagn- færum. 35. … Rxe3 36. Df2 De5 37. Ka1 Rxg2 38. Rxg2 d4 39. Hg1 d3 40. Hd1 De2! - og hvítur gafst upp. Heimsmeistaraefni Hollendinga Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.