SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 42
42 10. júlí 2011 R ómverjar byggðu sína veiga- mestu borg norðan Alpafjalla við Rínarfjót og nefndu Colonia Agrippina. Enn í dag geta vökul augu greint minjar þeirra tíma víðsvegar um kjarna Kölnarborgar þótt ekki séu minjarnar áberandi í heildarmyndinni og raunar tilkomulitlar í samanburði við fyrrum höfuðborg hins rómverska veldis, Róm. Sameiginlegt með þessum borgum er þó, að neðanjarðar finnast víða söguleg lög mettuð menningararfleið. Í Köln voru nýlega uppgötvuð þess konar lög sem hafa vakið verðskuldaða athygli vegna þess að tekist hefur með nýbyggingu að varpa nýju ljósi á rómverskar minjar og jafn- framt sögu og einkenni staðar miðsvæðis í borginni. Hin nýja bygging nefnist Kolumba en það er nafnið á safni kaþólsku kirkjunnar á listrænum munum og listaverkum frá miðöldum allt fram á okkar tíma. Á byggingarsvæðinu eru eru fornleifar, rústir gotneskrar kirkju heilags Kolumba og kapella sem byggð var eftir síðustu styrjöld. Í samkeppni um safnið var tillaga arkitektsins Zumthors valin til útfærslu af því að hún, ein allra hugmynda, lagði til að byggja safnið yfir allt svæðið, yfir rústir og byggingar á staðnum. Zumthor notar handunna tígulsteina líkt og Rómverjar gerðu fyrir 2.000 árum og „heldur áfram“ að hlaða ofan á veggi sem fyrir voru. Múr- verk líkt og í Pompei eða Róm, steinar 50 sm á lengd, 5 sm breiðir, handverk og hleðsluaðferð sem á heima í Köln því að engin borg norðan Alpafjalla er rómversk- ari – Colonia Agrippina. Tímalaus mynd Með nýframkvæmdunum hefur orðið til byggingalist sem tekur á eðlilegan hátt mið af staðareinkennum og rómverskri hefð Kölnarborgar og setur saman mynd sem hæfir okkar tíma eða öllu fremur tímalausa mynd. Sennilega hugsa margir sem virða fyrir sér bygginguna að hún hafi lengi staðið þarna, mjög lengi, eigi alla- vega hvergi annarstaðar heima. Þess kon- ar hugsanir láta sjaldan á sér kræla þegar nýbyggingar borgarkjarna eru barðar augum. Erindi tillögu Zumthors í hugmyndakeppninni 1997 var að bygging í vöxnu umhverfi eigi að vera andstæða þeirrar sýndarmennsku sem einkenndi þá nýopnað Guggenheimsafn í Bilbao. Það safn var um aldamótin einmitt byrjunin á herför „djarfra“ bygginga undir vernd- arvæng menntaelítu og allskonar snobbs. Nýverið mátti sjá sannfærandi árangur 12 ára byggingarsögu Kolumba. Hand- unnir steinar, hlaðið beint ofan á gamla veggi kirkjunnar og kapellunnar, mynda lokaða eða hálfopna múrveggi. Op eru á milli eftir þörfum til að skapa rými, tefla saman ljósi og skugga. Þessi hugs- unarfræði sýnir ljóslega að liðin tíð er allt- af ný, sífellt lifandi eins og lífið. Hlutir sem fallnir voru úr minni verða á nýjan leik sýnilegir, aðrir breytast, enn aðrir hverfa. Líðandi stund stjórnar því liðna líkt og hljóðfæraleikarar að leika gamalt snilld- arverk eins og það sé nýsamið verk. Snilldarverk eru aldrei dauðir minn- isvarðar. Þegar komið er inn í Kolumba-safnið liggur leiðin framhjá fornleifagreftrinum sem nýtur sín vel í 12 metra háu hálfopnu rými. Við erum í raun aftur stödd í útirými en um leið inni í byggingunni. Múraðir veggirnir hafa nægjanleg op til að hleypa inn dagsbirtu sem veitir þessu „róm- verska“ rými einstakan og töfrandi blæ. Kapellan sem var endurgerð 1950 virkar að vísu ekki sérlega vel í þessu rými þar sem hún er kannski fremur minning um uppbyggingu eftirstríðsáranna – en þetta rými í heild hrærir við manni enda tilfinn- ing oft sterkari en viska. Inngangur og uppgraftarrými mynda vinkil um inngarð þar sem í rauninni er ekkert að finna nema örfínar hreyfingar jarðvegs, smásteina, fáein tré og nokkra stóla: innigarðurinn er tákn fyrir vita con- templativa, kaþólska menningu og klausturlíf sem hefur innblásið og verndað margar manneskjur, líka íslenskar. Eða var ekki klaustrið afgerandi undirstaða Halldórs Kiljans í leit hans að visku og sannleika lífsins? Bygging er lifandi vera Við hverfum frá sögulegum stað- areinkennum jarðhæðar um stiga upp á næstu hæð. Efnismeðferð breytist, gólf og veggir. Múraðir veggir eru fínpússaðir með leir, gamlir listmunir skiptast á við alveg ný verk. Oftast verka þau gömlu sterkar. Safnið er ekki ætlað gjörningahungruðum fjöldanum. Hér ríkir kyrrð og ró fyrir þá sem gefa sér tíma. Húsið er þannig hannað að sífellt opnast óvænt rými og dagsbirta. Stórir útsýnisgluggar á efstu hæð opna spennandi sjónarhorn með útsýni yfir borgina, dómkirkjuna, óperuna og aðrar Kolumba nefnist safn erkibiskupsdæmis Kölnar, stofnað 1853. Því var reist nýtt að- setur í rústum got- neskrar kirkju heilags Kolumba og kapellu sem byggð var eftir síðustu styrjöld. Í sam- keppni um safnið var tillaga arkitektsins Zumthor valin til út- færslu af því að hún, ein allra hugmynda, lagði til að byggja safn- ið yfir allt svæðið, yfir rústir og byggingar á staðnum. Gunnlaugur Baldursson info@baldursson.de Við byggingu Kolumba voru notaðir handunnir tígulsteinar líkt og Rómverjar gerðu fyrir 2.000 árum. Með nýframkvæmdunum hefur orðið til byggingalist sem tekur á eðlilegan hátt mið af staðareinkennum og rómverskri hefð Kölnarborgar. Úr Groß St. Martin kirkjunni í Köln. Samhljómar líðandi og liðinna tíma Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.