SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 43

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 43
10. júlí 2011 43 Í slenski safnadagurinn er í dag og mikið um að vera í söfnum um allt land. Boðið er upp á fjölbreyttar dagskrár og aðgangur víða ókeypis. Það er því tilvalið að heimsækja söfnin í tilefni dagsins. Í söfnum er sífellt tekist á við nýjar áskoranir og spurt áleitinna spurninga. Spurninganna hver erum við og hvert stefnum við er spurt í Þjóðminja- safni Íslands nú eins og fyrir 150 árum þegar Þjóðminjasafnið var stofnað. Eitt mest krefjandi verkefna safna á 21. öldinni er að þróa leiðir til þess að varðveita heimildir um flókna samfélagsgerð sam- tímans til að átta sig betur á svörum við ofangreindum spurningum. Þannig er ekki einungis fengist við heimildasöfnun um fortíðina, heldur er sjónum einnig beint að nútímanum og hugað að framtíð- inni. Víða innan safna er nú leitað leiða til að skrásetja og rannsaka menningarþætti þegar þeir eiga sér stað. Til þess að fanga samtímann þarf að velja tiltekin sjón- arhorn og viðfangsefni til heimildasöfn- unar ekki síður en söfnun muna. Norræna safnið í Stokkhólmi hefur allt frá árinu 1977 staðið fyrir skipulagðri sam- tímasöfnum, en það er fyrst nú sem ís- lensk söfn hafa tekið markviss skref á þessu sviði. Hér á eftir verður lýst þremur samtíma- verkefnum sem öll eru nú til sýnis í Þjóð- minjasafninu eða á vefsíðu þess. Á ljós- myndasýningu Péturs Thomsen Ásfjall í Myndasal safnsins sést vel hve ljós- myndun er góð leið til þess að skrá og skilja samtímann, og varðveita heimildir um hann. Þar er fylgst með uppbyggingu í nýju hverfi, Áslandi, þar sem er ein hæsta byggð á höfuðborgarsvæðinu. Pétur fylgdist með uppbyggingu hverfisins frá árinu 2008 og myndaði húsin, fólkið og umhverfið. Sjónarhorn Péturs er sam- félagslegt samhengi byggingarlistar, skipulags og náttúru, sem allt eru þættir sem móta umgjörð samfélagsins og hafa áhrif á það. Sýningin vekur áhorfendur til umhugsunar um mannlíf og hugarfar á tímum örra breytinga. Upphaflega stóð til að ljósmynda hverfi í byggingu og áhrifin sem byggingaframkvæmdir hafa á allt umhverfið. Atburðir í samfélaginu breyttu hins vegar framkvæmdunum í eitthvað annað og meira. Byggð í nýju hverfi hafði áður verið tákn fjölskyldulífs í úthverfi en eftir efnahagshrunið 2008 varð hin nýja byggð á ákveðinn hátt hlutgervingur þeirra atburða. Í stað bjartsýni, urðu von- brigðin í raun myndefni ljósmyndarans. Ljósmyndir Péturs eru í senn ádeila á meðferð okkar á landinu og skrásetning sögunnar. Sýningin Ásfjall er samtíma- heimild um uppbyggingu nýs hverfis, sem og áhrif efnahagshrunsins á íslenskar fjöl- skyldur. Annað verkefni Ekki snerta jörðina – Leikir 10 ára barna fjallar um leiki barna nú til dags. Hin síðari ár hefur Þjóðminja- safn Íslands leitt samstarfsverkefni ís- lenskra safna þar sem sjónum er beint að leikjum barna í samtímanum. Samvinna var við nemendur og kennara í fimmta bekk víða um land. Spurt var um hvernig börn léku sér, tekin voru viðtöl við börnin og fylgst með leikjum þeirra. Leiddi það til áhugaverðra heimilda um leiki barna á Íslandi árið 2010 og farandsýningar sem fer milli safnanna og opnuð var fyrst í Þjóðminjasafni Íslands í vor ásamt upplýsingavef um leiki barna. Þar eru allar niðurstöður athugunarinnar aðgengilegar með yfirliti um vinsæla leiki nútímans sem og nokkra skemmtilega gamla leiki. Þriðja verkefnið ber heitið Brauð í norðri og er samstarfsverkefni safna á öll- um Norðurlöndum og Eistlandi um brauð og brauðneyslu. Áhersla var lögð á að safna heimildum um þennan þátt í dag- legu lífi og þróa nýjar leiðir til að miðla þeim. Með söfnun frásagna og heimilda var könnuð menningarleg fjölbreytni þeirra landa sem þátt tóku í könnuninni. Athugað var hvernig fólk velur sér brauð og hvort það baki brauðin sjálft. Hér á landi var meðal annars kannað hversu ný- ungagjarnir landsmenn eru þegar kemur að heimabakstri og hvort algengt sé að notast sé við gamlar fjölskylduuppskriftir. Áhugavert er að sjá hvaða minningar laufabrauð, hverarúgbrauð og vestfirskar hveitikökur vekja í huga landsmanna svo nokkur dæmi séu tekin. Ekki er síður at- hyglisvert að sjá hvernig fólk af erlendum uppruna heldur tengslum við gamla land- ið með því að baka brauð sem það ólst upp við. Þessum og fleiri heimildum var safnað á íslenska heimasíðu, Brauðbrunninn, en heildarniðurstöður allra verkefnanna eru á vefsíðu um norræna brauðmenningu ár- ið 2011. Umfjöllunarefni safna um samtímann er ótakmarkað. Ofantalin verkefni hafa leitt fram heimildir um tiltekna þætti í sam- tímanum. Haldið verður áfram á þessari braut í samræmi við safnastefnu á sviði þjóðminjavörslu með völdum sjón- arhornum á samtíma okkar. Á næstunni er fyrirhugað að Þjóðminjasafn Íslands og önnur söfn á Íslandi beini sjónum að fleiri nærtækum verkefnum, svo sem heim- ilislífi. Sannarlega verður áhugavert að kynnast margbreytileika menningar þjóð- arinnar í þeim verkefnum . Sjá einnig: http://www.thjodminjasafn.is/syningar/sersyningar/ syningar-i-gangi/nr/3158gangi/nr/3158 http://www.thjodminjasafn.is/ekki-snerta-jordina http://www.braudbrunnur.wordpress.com Að fanga samtímann…. ’ Í söfnum er sífellt tekist á við nýjar áskoranir og spurt áleitinna spurninga. Spurninganna hver erum við og hvert stefnum við er spurt í Þjóðminjasafni Íslands nú eins og fyrir 150 árum þegar Þjóð- minjasafnið var stofnað. Mynd af sýningunni Ásfjall, eftir Pétur Thomsen Ljósmynd/Pétur Thomsen Þankar um þjóðminjar Margrét Hallgrímsdóttir margret@- thjodminjasafn.is gamlar og nýjar byggingar Kölnarborgar. Efnisval og útfærsla er fádæma einföld, hnitmiðuð og vönduð. Hvergi truflar sýni- leg tækni. Ögun og einfaldleiki eru af- bragðs forsenda þess að listaverkin geti notið sín til fulls. Trúlega var við efnisval og gerð safnsins leitað til eldri fyrirmynda í miðri Köln- arborg. Ekkert er þá nærtækara en að skoða þá kirkju sem best hefur verið end- urbyggð eftir stríð: Groß St. Martin við Rínarfljót. Hér má finna djásn með hrein- leika og einfaldleika miðaldabygginga sem aðlagað er nútímanum og er í ríkum mæli verðug til fyrirmyndar. Hér má sjá að bygging er lifandi vera þar sem margra alda líf endurspeglast með því nýja. Í end- urbyggingunni (1961/1985) var lögð áhersla á að rýmið fengi að njóta sín með því að útiloka skraut og nota hófsöm, látlaus efni fyrir það sem er nýtt en hitt, sem gamalt er og þess virði að halda í, er óbreytt. Kolumba og St. Martin eru systkini í hóf- semi sinni og naumleika. Bæði virða sög- una, mynda ný svið fyrir ljós og skugga, sýna að bygging er lifandi hlutur sem verk- ar á vitsmuni og tilfinningar um ókomin ár. Þau halda uppi heiðri Kölnarborgar sem menningarstaðar. Og vissulega geta þessi systkini að auki verið fyrirmynd í þeim veruleika sem sérhver staður býr við. Til þess þarf fyrst og fremst að sneiða vísvit- andi hjá tískusveiflum og framandi stæl- ingum og halda sig við þau einkenni og hefðir sem gera hvern stað einstakan.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.