SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Page 47
10. júlí 2011 47
M
agnús Kjartansson náði
þeim merka áfanga að
verða 60 ára 6. júlí síðast-
liðinn. Afmælinu eyddi
hann í faðmi fjölskyldunnar og í návist
vina í sumarbústað í Reykjaskógi.
Magnús Kjartansson fæddist í Keflavík
árið 1951. Foreldrar hans voru þau Gauja
(Guðrún) Magnúsdóttir húsmóðir og
Kjartan Henry Finnbogason f.v. lög-
regluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli.
Byrjaði ungur
Fyrstu kynni Magnúsar af tónlist voru
þegar drengjalúðrasveit barnaskólans í
Keflavík var stofnuð, en þar spilaði
hann á trompet. Magnús lærði á hljóð-
færi hjá drengjalúðrasveitinni, en færði
sig síðan yfir í Tónlistarskóla Keflavíkur
þar sem hann var undir handleiðslu
Herberts H. Ágústssonar og Ragnars
Björnssonar. Síðar lá leið Magnúsar til
Reykjavíkur þar sem hann lærði á
trompet og píanó í Tónlistarskóla
Reykjavíkur. „Ég er búinn að vera að
grúska í tónlistinni frá því ég var fimm-
tán ára,“ segir Magnús. „Ég byrjaði
snemma að læra á píanó og trompet og
svo leiddi bara eitt af öðru þangað til allt
varð vitlaust.“
Hljómsveitirnar eru margar sem
Magnús hefur komið að, en þar ber helst
að nefna hljómsveitirnar Trúbrot,
Mannakorn, Brunaliðið, Brimkló, HLH-
flokkinn, að ógleymdri hljómsveitinni
Júdasi. Aðspurður hvort von sé á safn-
plötu frá Júdasi, segir Magnús: „Það
getur nú orðið eitthvað í það. Ætli við
verðum ekki fyrst að reyna að koma því
efni sem við eigum í hljómsveitinni Júd-
as þannig fyrir að það verði aðgengilegt
á tónlist.is, en það er verið að vinna að
því þessa dagana.“ Þær eru komnar vel
yfir 200, plöturnar sem Magnús hefur
komið að, en hann hefur verið mjög af-
kastamikill í hljóðversvinnu sem hljóð-
færaleikari, útsetjari og upptökustjóri.
Magnús hefur starfað í leikhúsum og
samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjón-
varpsþætti. Þá vann Magnús lengi vel
sem tónlistarmaður í sjónvarpi; í þátt-
unum Á tali með Hermanni Gunn-
arssyni og í þáttunum Óskastund,
Hræringja og Stundinni okkar.
Heiðursverkefni
Í tilefni afmælisins hafa fjölskylda og
vinir hrundið af stað heiðursverkefni í
samstarfi við marga tónlistarmenn og
tonlist.is. Á næstu vikum munu ýmsir
tónlistarmenn taka lög úr smiðju Magn-
úsar og setja í nýjan búning. Meðal flytj-
enda eru Helgi Björnsson, Sigríður Bein-
teinsdóttir, Helga Möller, Dikta, Selma
Björns, Lay Low og Björgvin Hall-
dórsson, ásamt fleirum. Lögin verða
ekki gefin út á hljómplötu heldur verða
þau aðgengileg á tonlist.is.
En hvað finnst Magnúsi um þá þróun
að tónlistin sé komin af vinýl yfir á
netið?
„Mér finnst það í sjálfu sér stórkostleg
þróun. Ég sakna þess nú að hafa ekki
harða kópíu, en tónlistin er létt og með-
færileg á netinu og hefur það fram yfir
mörg önnur fyrirbæri skemmtanaiðn-
aðarins. Það er svona nokkuð fyrirséð að
netið verður heimili tónlistarinnar á
næstu árum, en hvað framtíðin ber í
skauti sér er erfitt að segja fyrir mann
sem er ekki spámaður. Þetta virðist
passa vel saman, þ.e. tónlist og netið, en
tónlistarmennirnir eiga erfiðara með að
verja hagsmuni sína og það eru mjög
margir sem halda að internetið sé mast-
er-lykill af Reykjavík – að það megi
bara labba inni í hvaða hús sem er og
taka það sem þarf. Fólk á eftir að læra
umgengnisreglur internetsins og það
getur tekið tíma.“
Hvað er það sem stendur upp úr á
tónlistarferlinum?
„Það er nú sennilega farsælt og gjöfult
samstarf mitt við Vilhjálm heitinn Vil-
hjálmsson. Ég gerði með honum þrjár
síðustu plöturnar og minningartónleika
sem haldnir voru um hann fyrir 3 árum
í Laugardalshöllinni. Samstarf mitt með
Hermanni nokkrum Gunnarssyni, sem
stóð í sjö ár, var einnig mjög farsælt og
gott.“
Baráttumaður tónlistarmanna
Magnús hefur verið í fullu starfi sem
tónlistarmaður í 45 ár, en meðfram tón-
listinni hefur hann meðal annars starfað
á ferðaskrifstofunni Sunnu, hjá Sjón-
varpsmarkaðnum í 3 ár og sem hljóm-
sveitarstjóri á Hótel Sögu. Þá hefur
Magnús um langt skeið verið virkur
stjórnarmaður í Félagi tónskálda og
textahöfunda (FTT) og setið fyrir félagið
í stjórn Sambands tónskálda og eigenda
flutningsréttar (STEF). Sem hljómsveit-
arstjóri á Hótel Sögu kynnist hann
mörgum af fremstu grínistum, landsins
þar á meðal Hemma Gunn.
Er Kevin Eubanks Maggi Kjartans
Bandaríkjanna?
„Nei,“ segir Magnús hlæjandi „ætli ég
eigi ekki meiri samleið með honum Paul
Shaffer, sem er í þættinum hjá David
Letterman. Í þáttunum Á tali komu alls-
konar tónlistarmenn fram og maður
þurfti alltaf að vera að undirbúa og læra
eitthvað nýtt, rétt eins og Paul Shaffer í
David Letterman.“
En hvað hefur haldið Magnúsi í tón-
listinni?
„Ánægjan, félagsskapurinn við góða
menn og ánægjan af tónlistinni sjálfri,
kannski í bland við einhverja þrjósku og
þráhyggju líka. Það sem hefur haldið
mér í tónlistinni er í rauninni það sama
og hefur haldið Tiger Woods í golfinu:
Að fá að gera það sem manni finnst
skemmtilegt. Þetta er náttúrlega fyrst og
fremst sjálfselska,“ segir Magnús Kjart-
ansson, sem vonar að enginn taki það
illa upp að hann ætli að verða fjör-
gamall.
Ljósmynd/Ari Magg
Samstarfið
við Villa
Vill stend-
ur upp úr
Tónlistarmaðurinn
Magnús Kjartansson
hélt á dögunum upp
á 60 ára afmæli sitt.
Magnús hefur starfað
sem tónlistarmaður
frá árinu 1966 og
heldur því jafnframt
upp á 45 ára tónlistar-
afmæli á árinu.
Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is
Maggi Kjartans varð sextugur 6.júlí síðastliðin og í tilefni þess hafa fjölskylda og vinir hrint af stað
heiðursverkefni þar sem ýmsir tónlistarmenn flytja lög eftir hann.
„Leiðir okkar
Magga lágu
saman þegar
Bylgjan var að
byrja,“ segir
Hemmi. „Ég var
með þætti á
Bylgjunni sem
fengu mikla
hlustun og við
ákváðum að slá
upp sameiginlegri veislu á Hótel
Sögu með hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar, sem þá spilaði þar.
Við sendum beint út frá Súlnasal
Hótels Sögu. Ári seinna byrjaði ég
með þáttinn Á tali og þá lá beinast
við að leita til þeirra miklu snillinga
Magga Kjartans og Villa Guðjóns,
og síðan höfum við brallað mikið
saman og alltaf verið skemmtilegt,
því hann er laufléttur og hæfi-
leikaríkur. Það sem einkenndi
þættina var góður andi og þá ekki
hvað síst léttleikinn sem sveif yfir
samstarfi okkar Magga. Það voru
aldrei nein vandamál sem komu
upp,“ segir Hemmi.
„Við settum saman heljarmikla
sýningu um Villa heitinn Vill, sem
hét Á vængjum söngsins, en þar
völdum við lögin saman. Sýningin
var frumflutt í Keflavík og svo á
Gamla Broadway inni í Mjódd.
Þetta var frábær sýning, þótt ég
segi sjálfur frá, og þarna komu
fram allir þeir söngvarar sem
höfðu verið hvað nánastir Villa Vill,
eins og systir hans Ellý Vilhjálms,
Rut Reginalds, Þorvaldur Hall-
dórsson, Pálmi Gunnars og Björg-
vin Halldórsson,“ heldur Hemmi
áfram.
„Ég hlakkaði alltaf til að vinna
með honum Magga, það er bara
svo gaman að vera nálægt honum
og aldrei nein lognmolla,“ segir
Hemmi jafnframt.
„Maggi er gríðarlega hæfi-
leikaríkur, góður vinur og með
skemmtilegan húmor, en það sem
lýsir honum kannski best er að
hann er svona djúpþenkjandi grall-
ari. Það er aldrei leiðinlegt í návist
Magga. Hann, konan hans og
krakkarnir eru stútfull af lífsgleði,“
segir Hemmi
„Ég hugsa að Villi hafi haft rosa-
lega góð áhrif á Magga, því Villi var
svo víðsýnn og pældi mikið í yfir-
skilvitlegum hlutum og efni and-
ans, en hinsvegar var Maggi gam-
all hippi. Þegar þeir lögðu leið sína
saman þá varð úr alveg stórkost-
legur bræðingur og úr þessu sam-
starfi komu perlur eins og lagið Lít-
ill drengur, svo dæmi sé tekið. Þeir
löðuðu einhvern veginn það besta
fram hvor í öðrum, því Maggi getur
gert alveg frábæra tónlist ef hann
bara skellir sér í það eins og hann
sýndi bæði með Trúbroti og síðar
þegar hann samdi tónlist fyrir Evró-
visjón, en ég er ekki viss um að
hann nenni því alltaf og allra síst
núna þegar hann er kominn á kaf í
hestana, sem ég átta mig nú ekk-
ert á,“ segir Hemmi hlæjandi.
„Þetta er eins og með forsetann
sem var alltaf með vottorð í leik-
fimi í menntaskóla, en fer svo á
efri árum að stunda kraftgöngur á
fullu,“ segir Hemmi að lokum.
Samstarf Magnúsar og Hemma
spannaði 7 ár í þáttunum Á tali, en
Magnús stjórnaði frábærri hljóm-
sveit þáttanna.
Djúpþenkjandi
grallari
Hermann
Gunnarsson