SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 14

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 14
14 18. september 2011 K ári Steinn útskrifaðist í vor sem verkfræðingur frá Berkeley- háskóla í Kaliforníu. Þar var hann við nám í fjögur ár, æfði af krafti á meðan með skólaliðinu og keppti á vegum þess. Kári á Íslandsmet í bæði 5 og 10 km hlaupum en tekur nú stökkið upp í maraþon, sem hann hefur reyndar stefnt að lengi. Æfði að vísu ekki þá grein vestur við Kyrrahaf því í keppni skólanna vestur þar er ekki keppt í þeirri vegalengd. Sitthvað eiga þeir sameiginlegt, Kári Steinn og Sigurður P. Ungir stunduðu þeir boltaíþróttir; Sigurður fótbolta og hand- bolta, Kári fótbolta og körfubolta. Hlaupin heilluðu samt snemma og á unglingsárum sneru báðir sér alfarið að þeim.Báðir lögðu stund á brautarhlaup en færðu sig smá sam- an yfir í götuhlaupin Miklir hæfileikar „Kári Steinn sýndi snemma hæfileika sem skipta máli við að ná langt í langhlaupum. Hann er mjög einbeittur og harður keppn- ismaður,“ segir þjálfari hans, Gunnar Páll Jóakimsson, við Sunnudagsmoggann. „Hans styrkur liggur í því að geta haldið miklum hraða út hlaupið þó síðasti þriðj- ungurinn sé orðinn erfiður. Þá gefa margir eftir en hann hefur hausinn í að vinna á miklu álagi í langan tíma. Lífeðlisfræðilega getur hann unnið vel þó hann sé kominn með mikla mjólkursýru í vöðvana. Mun betur en aðrir sem ég þekki. Bæði Sigurður Pétur og Kári fóru í gegnum háskólaár þar sem þeir æfðu mikið með góðan og sterkan æfingafélagahóp og þá með enn sterkari hlaupurum – það hefur byggt þá mikið upp sem hlaupara. Kári er talsvert hraðari á styttri vegalengdum sem getur skilað sér með réttri þjálfun í maraþonhlaupi,“ segir Gunnar Páll. Kári sett Íslandsmet í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni í síðasta mánuði, hljóp á 1:05:35 klst. og bætti met sem Sig- urður hefur átt í aldarfjórðung. Vill slá tvær flugur í einu höggi „Ég hef alltaf verið í 5 og 10 kílómetra hlaupum. Draumur minn hefur þó lengi verið að fara í maraþon en það er ekki talið ráðlegt á meðan maður er mjög ungur. Það betra að ná upp hraða í styttri vegalengdum fyrst en nú tel ég mig vera orðinn nógu þroskaðan í þetta verkefni,“ segir Kári Steinn við Sunnudagsmoggann. Hann telur sig eiga möguleika á að ná góðum árangri. „Stefnan er að setja Íslands- met strax í þessu fyrsta hlaupi, í Berlín. Ég geri mér grein fyrir því að það er meira en að segja það á svona langri vegalengd; það gæti orðið heitt, ég gæti farið of hratt af stað, þarf að nærast rétt og svo framvegis, en ég er bú- inn að æfa rosalega vel í allt sumar og síð- ustu ár reyndar og það hjálpar til við mara- þonundirbúninginn. Það þýðir ekkert annað en setja stefnuna hátt.“ Íslandsmet Sigurðar er 2:19:46 klst. en Kári Steinn er á því að hann geti farið vega- lengdina á um það bil 2 klukkustundum og 15 mínútum. „Það er draumahlaupið mitt núna, en ég set stefnuna í þetta skipti á 2:18 sem er ólympíulágmark og vel undir Ís- landsmeti. Við viljum ekki vera of gráðugir í fyrsta hlaupi, en ég vil slá tvær flugur í einu höggi; setja met og ná lágmarki fyrir Ól- ympíuleikana,“ segir hann. Kári Steinn er viss um að maraþon henti sér mjög vel. „Því lengra sem ég hleyp því betra. Mér finnst skemmtilegra að hlaupa á götunni í góðri stemningu en að fara hring eftir hring á brautinni.“ Hann útskrifaðist frá Berkeley í vor sem fyrr segir, hefur notað sumarið til æfinga en hefur fljótlega 75% starf hjá Tækniþjónustu Icelandair, ITS. „Ég vil einbeita mér eins mikið og ég get að hlaupum og verð ekki í fullri vinnu, en verð auðvitað að hafa ein- hverjar tekjur!“ Gott að hlaupa í Berlín Kári Steinn segist æfingarnar nú ekki mjög frábrugðnar þeim sem hann stundaði áður. „Ég hleyp þó aðeins lengra, eðlilega, en málið núna er aðallega að æfa sig í að grípa vatnsbrúsa á hlaupum og koma í mig orku á fullri ferð! Það er meira en að segja það að nærast á hlaupum!“ Maraþonið er svo langt að Kári Steinn segist þurfa að byrja að drekka eftir fimmtán mínútur. „Það er allt of seint að bíða þar til maður verður þyrstur, þá myndi ég finna fyrir vökvaskorti eftir 30 til 35 kílómetra.“ Að mörgu er sem sagt að hyggja. Kári Steinn segir hlaupaleiðnia í Berlín mjög góða og ekki sé tilviljun að þar nái menn oft góðum tíma. „Þetta er eitt stærsta og flottasta maraþon í heiminum, brautin mjög flöt, stemningin alltaf frábær og að- stæður allar mjög góðar. Þarna er líka alltaf frábær samkeppni sem er mikilvægt.“ Hann segir tímasetninguna líka hafa hentað sér vel. „Ég útskrifaðist í vor og hef nú haft þrjá mánuði til þess að koma mér í gírinn. Hitastigið er kjörið í Berlín, yfirleitt nálægt 15 gráðum á þessum árstíma. Það er engin tilviljun að heimsmetið í greininni var sett á þessari braut og líka Íslandsmetið.“ Kári Steinn er fæddur árið 1986 og varð 25 ára í sumar. Hann stundaði boltaíþróttir af krafti sem ungur strákur og segir velgengni í þeim aðallega því að þakka að hann gat hlaupið meira en aðrir, „og þessi íþrótt valdi mig eiginlega en ekki öfugt því hlaupin lágu vel fyrir mér. Ég er líka þannig týpa að ég henta vel í einstaklingsíþrótt; þarf ekki fé- lagsskap og finnst lítið mál að fara út að hlaupa á hverjum morgni.“ Hann æfir mikið, hleypur allt að 12 sinn- um í viku, frá 130 og upp í 185 kílómetra auk þess að gera styrktaræfingar og fleira sem nauðsyn krefur. Mikil kúnst að nærast á harðaspretti Kári Steinn Karlsson ætlar að bæta 26 ára Íslands- met Sigurðar P. Sigmundssonar í maraþoni í Berlín eftir rúma viku þegar hann keppir fyrsta sinni í greininni! Sigurður setti metið í Berlín. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Methafinn og krónprinsinn! Kári Steinn Karlsson og Sigurður P. Sigmundsson. Kári Steinn á fullri ferð í 5.000 m hlaupi á Ís- landsmótinu á Laugardalsvellinum í fyrra. Sigurður P. Sigmundsson í Berlínarmaraþon- inu 1985 þegar hann setti Íslandsmetið.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.