SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Page 23

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Page 23
18. september 2011 23 R ík tilhneiging er til þess hjá stjórnmálamönnum að sveigja tungumálið að málstað sínum, þá gjarnan með því að afbaka orðin, og helgar tilgangurinn þá jafnan meðalið. Þetta er þekkt aðferð í áróðursskyni og má kalla hana „new- speak“ eða nýtungu eins og í skáldsögu George Orwell, 1984. Til þess að ófrægja andstæðinginn í rökræðum er til dæmis sett samasemmerki á milli afstöðu hans og þess að fremja glæp eða illvirki. Nokkrir stjórnmálamenn hafa í gegnum tíðina kallað það „einelti“ þegar fjölmiðlar hafa verið þeim ósammála, jafnvel þó að gagn- rýnin hafi verið sett fram með málefnalegum hætti. Og steininn tók úr þegar Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra talaði um það í viðtali á Mbl.is á fimmtudag að stjórnarand- staðan sýndi „ofbeldi“ með því að beita málþófi. Það er sammerkt með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að þegar þeim hentar, þá verður minnið eins og hjá gullfiskunum. Ráðherrar þessarar sömu ríkisstjórnar gengu harðast fram í málþófinu er þeir voru í stjórnarandstöðu og Steingrímur J. Sigfússon hefur beitt málþófi oftar og lengur en flestir aðrir í þingsögunni – enda verið í einstakri aðstöðu til þess! En nú heitir það „ofbeldi“. Það er skylda stjórnarandstöðu á hverjum tíma að veita ríkisstjórninni aðhald og auð- vitað á það ekkert skylt við ofbeldi. Annað hrópandi dæmi um gullfiskaminnið var þegar forsætisráðherra brást ókvæða við gagnrýni forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar á framgöngu ríkisstjórnarinnar í Icesave- málinu. Stjórnarþingmenn fylktu sér eins og nærri má geta á bakvið Jóhönnu og talaði Björn Valur Gíslason um „forsetaræfilinn“. Fljótt fennist í sporin. Meirihluti þingmanna stjórnarandstöðunnar undir forystu Össurar Skarphéðinssonar, þá formanns Samfylkingarinnar, og Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, gekk út úr þingsalnum haustið 2004 þegar Halldór Blöndal, þá forseti Alþingis, leyfði sér að gagnrýna störf forseta Íslands í setningarræðu. Nú er hann kallaður „forsetaræfillinn“ og það þykir ekki vítavert. Svo mikill er málafærsluþungi ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðsmálinu að Jóhanna kvartar undan því að stjórnarandstaðan þvælist fyrir og kveðst vera með ljósan meirihluta fyrir frumvarpinu áður en Alþingi kýs um það. Og spurning vaknar til hvers stjórnar- frumvörp eru yfirhöfuð borin undir þingið. Þetta er líka athyglisverður boðskapur úr herbúðum Samfylkingarinnar – getur verið að flokkur umræðustjórnmálanna gangi til umræðna á þingi með fyrirfram mótaða afstöðu? Snýst þetta bara um að smala köttum? Orðræða og gullfiskaminni „Þeir eru búnir að væla sig úr stuði.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, sparkskýrandi RÚV, um úrvalsdeildarlið KR. „Það má aldrei gleyma því að bók- menntir eru fyrir fólk.“ Bjarni Bjarnason rithöfundur. „Ég væri til í að gefa hægri höndina fyrir að enda þetta tímabil með Ís- landsmeistaratitli.“ Heimir Hallgrímsson sem mun láta af störfum sem þjálfari ÍBV í haust. „Allir forsætisráðherrar hafa ætíð verið velkomnir til Bessastaða.“ Úr svari forsetaembættisins við spurn- ingu Morgunblaðsins um hvort for- sætisráðherra hafi óskað eftir fundi með forseta Íslands vegna ummæla hans um framgöngu ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu. „Ég fékk einn koss en þeir máttu nú vera tveir.“ Magnús Jónsson sem kenndi Sigrúnu Jónsdóttur reikning í gamla daga. Þau giftust síðar og áttu 70 ára brúðkaups- afmæli í vikunni. „Ég er ekki að hnýta í forsetaræfilinn með nein- um hætti eða beina orðum mínum til hans.“ Björn Valur Gíslason þingmaður VG í umræðum á Alþingi. „Hef ekki fengið eina ábendingu um ummæli fjármálaráðherra um forsetann og Icesave. Best að auglýsa fundarlaunin. Kassi af Kalda fyrir þann fundvísa.“ Huginn Freyr Þorsteinsson aðstoðarmaður Stein- gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. „Að sumu leyti er ég guðslif- andi feginn yfir að þurfa ekki lengur að leika einhverja lover- boyja endalaust.“ Hilmir Snær Guðnason leik- ari. „Ég er á engan hátt að stinga höfðinu í steininn.“ Vigdís Hauks- dóttir, þingmaður Framsóknarflokks, í samtali við Stöð 2. „Við erum búnir að rembast eins og rjúpa við steininn.“ Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram eftir sigurinn á Breiða- bliki. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal ályktunum sem Alþingi hefur EKKI gert og krefst þess að slíkum ályktunum sé fylgt eftir út í æsar. Nú er svo komið að einungis fjórðungur þjóð- arinnar treystir núverandi ríkisstjórn. Fyrr eða síðar mun hún verða að lúta þeirri niðurstöðu. „Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.“ Þau ein- kunnarorð frægra kaupahéðna á liðinni öld eiga sér dýpri rót en þá. Fyrirheitin, loforð og skrum eru ekki mælivarðinn. Núverandi ríkisstjórn hafði þá meginskyldu að þjappa þjóðinni saman til verka eftir mikið áfall. Hún brást því verkefni sínu frá fyrsta degi. Hún ól á hatri. Blés í glæður elds ásakana og heiftar og valdi að setja þau mál á dagskrá sem hún vissi að mundu sundra þjóðinni mest. Hennar tré báru því ekki aðra ávexti en þrætueplin. Ríkisstjórnin fékk göfugt verkefni og gullið tækifæri. Hún gat sett þjóðinni háleit markmið og þjappað henni á bak við þau. Hún gat treyst þann grunn sem hafði skekkst. Hún gat stefnt ótrauð gegn stöðnun og metnaðarleysi og ýtt undir framfarir og árangur á öllum sviðum. Í þá átt stóð straumurinn sem frá þjóðinni stafaði. En ríkis- stjórnin ákvað að róa af öllu afli gegn honum. Hún hóf dægurþrasið í öndvegi. Það nærist illa á staðreyndum en sogar í sig illa grundaðar nei- kvæðar úrtölur. Hún ýtti undir kyrrstöðu og stöðnun, dró úr mönnum kjark til dáða og vilja til verka. Hún hafnaði því að frumkvæði og fram- takssemi væri vegurinn til velsældar. Þannig var jarðvegurinn plægður. Í hann var sáð. Því átti ekki að þurfa að koma neinum á óvart að þrætu- eplin ein náðu einhverjum þroska. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. Morgunblaðið/Rax

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.