SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Side 33

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Side 33
18. september 2011 33 einstakur staður, þvílík dýrð,“ segir Nonnie. Rick rifjar upp að hann hafi furðað sig á öllu þessu fólki hlaupandi um með háfa. „Í fyrstu héldum við að það væri að veiða fiðrildi en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að það var lundi. Merkilegur fugl, lundinn. Ég hef aldrei smakkað lunda en hann er svo smár að það hlýtur að þurfa býsna marga fugla til að búa til heila máltíð.“ „Kannski fyrir þig,“ skýtur Nonnie inn í. Þau glotta hvort til annars. „Lundinn er ekkert ósvipaður dúfu á bragðið. Hefurðu smakk- að dúfu?“ spyr Ned. „Hvað segirðu? Dúfu? Ertu frá þér,“ svarar Rick. „Annars bragðast þetta allt eins og kjúklingur, eins og við segjum um framandi kjöt í Bandaríkjunum,“ segir Ned sposkur á svip. Óverulegt sauðfall Skipstjórinn er líka hrifinn af Vestmannaeyjum. „Ég hef hvergi séð aðra eins fugladýrð, þar getur að líta hundruð þús- unda fugla.“ „Og sauðfé hangandi utan í hlíðunum. Það hlýtur að vera umtalsvert sauðfall í eyjunum á sumri hverju,“ skýtur Nonnie inn í. „Tvær til þrjár skjátur,“ segir Ragnar ljósmyndari. Það eru engar ýkjur, vestmanneyska sauðfjárkynið er annálað fyrir sjálfsbjargarviðleitni sína og seiglu. Ned Cabot er enginn nýgræð- ingur á sjó. Frá blautu barns- beini sigldi hann með foreldrum sínum til Nova Scotia, Ný- fundnalands og víðar og tók sjálfur við stjórnvelinum um leið og hann hafði aldur til. Ned nam læknisfræði og starfaði um árabil sem brjósta- krabbameinsskurðlæknir. Á þeim tíma hafði hann takmark- aðan tíma til að sinna sigling- unum. „Ég tók ákvörðun um að setjast í helgan stein fyrir rúm- um tíu árum, fyrst og fremst til að helga mig siglingum. Síðan hef ég siglt vítt og breitt um höfin.“ Ned lét byggja Cielitu fyrir sig árið 2002 en svo skemmtilega vill til að Burnes-hjónin eiga einmitt samskonar skútu. Í kjölfar víkinganna Cielita er sérhönnuð til Græn- landssiglinga en Ned hefur mik- ið dálæti á því landi. Þegar Ragnar ljósmyndari heyrir það færist hann allur í aukana og skiptast þeir um stund ákafir á reynslusögum. Ned sigldi fyrst til Íslands á Cielitu árið 2005. „Fyrst ég var kominn til Grænlands, langaði mig að halda áfram til Íslands og Færeyja. Ég hef lengi haft áhuga á þessum slóðum og langað að sigla í kjölfar víkinganna. Ég var búinn að lesa mikið um Ísland, skoða kort og myndir, þannig að ég renndi ekki alveg blint í sjóinn. Landið hefur staðið fylli- lega undir væntingum.“ Spurður hvernig vinir og kunningar í Boston taki þessu norðurhjaraflandri hans er Ned fljótur til svars. „Þeir halda að ég sé galinn.“ Hann brosir. „Ég er þráspurður hvers vegna ég sigli ekki frekar í suð- urhöfum en svarið er einfalt: Það er of heitt, drullugt og fjöl- mennt í suðurhöfum fyrir minn smekk. Ég kann mun betur við mig hérna norður frá.“ Líkurnar á að hitta aðrar bandarískar skútur eru hverf- andi hér um slóðir en Ned, sem hefur kynnt sér málið, segir í mesta lagi tylft bandarískra skútna hafa siglt til Grænlands. „Það hafa örugglega ekki mikið fleiri komið hingað,“ segir skip- stjórinn sem hefur verið dug- legur að herma af ferðum sínum í fagtímaritum vestra. Frúnni illa við úthöfin Eiginkona Neds fer með honum í styttri siglingar en fæst ekki til að sigla á úthöfunum. Hún kom hins vegar fljúgandi hingað fyrir sex árum ásamt börnum þeirra hjóna og sigldi með ströndinni. „Við erum öll búin að smita börnin okkar af þessum Íslands- áhuga,“ segir Nonnie. „Elsti sonur okkar Ricks er einmitt að koma hingað í helgarferð ásamt eiginkonu sinni og vinafólki seinna í haust en hann var ein- mitt með okkur hérna árið 1985.“ Finn Perry, sem er bygg- ingaverktaki, er einnig að koma öðru sinni til Íslands. Hann sigldi hingað á eigin skútu árið 2004. „Ég hafði aldrei komið til Færeyja og þess vegna slóst ég í hópinn nú,“ segir hann, „en auðvitað spillti það ekki fyrir að komast aftur til Íslands.“ Aðspurður kveðst hann hafa alveg jafnmikið yndi af því að vera óbreyttur skipverji og skipstjóri. „Maður siglir reyndar ekki með hverjum sem er. Skip- stjórnin verður að vera fumlaus eins og hjá Ned.“ Skipstjórinn þakkar honum hólið. „Þú ert einum of al- mennilegur, Finn,“ segir hann og horfir síðan á mig. „En þér er samt alveg óhætt að birta þetta!“ Aye, aye captain! Ned Cabot lagði skurðhnífinn á hilluna til að geta helgað sig siglingum. ’ „Og sauðfé hangandi utan í hlíðunum. Það hlýtur að vera um- talsvert sauðfall í eyjunum á sumri hverju,“ skýtur Non- nie inn í. Rick og Nonnie Burnes hafa komið í ófá sjávarplássin á Íslandi og dást að því hversu góðar aðstæðurnar eru almennt. „Það er eins og svart og hvítt að koma í sjáv- arpláss á Íslandi og í Bandaríkjunum. Heima er allt í niðurníðslu og andinn á stöðunum eftir því. Hér er allt í tipptopp standi, hafnirnar eins og best verður á kosið og hugur í fólki,“ segir Rick. Hann gerir hlé á máli sínu, hugsi. „Ég veit að Ísland er búið að sækja um aðild að Evr- ópusambandinu. Hvers vegna? Gangið þið í sam- bandið myndi það hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér fyrir þessar byggðir. Ég skil ekki hvers vegna þið ættuð að taka þá áhættu.“ Rick er nýbúinn að lesa bók um hrunið, þar sem þeirri spurningu var velt upp hvort Ísland ætti yfir höfuð að vera sjálfstætt ríki. Hann hristir höfuðið þeg- ar hann færir þetta í tal. „Þvílík endemis vitleysa. Af mínum kynnum að dæma eruð þið Íslendingar full- færir um að gera hlutina eins vel og aðrir – ef ekki bet- ur.“ Sjávarpláss í blóma

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.