SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 39

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 39
18. september 2011 39 B er fólki í sambandi skilyrðislaust að stunda kynlíf með makanum? Dómari nokkur í Nice í Frakklandi virðist vera á þeirri skoðun en hann sektaði 51 árs gamlan mann um rúmar 1,5 milljónir króna fyrir að stunda ekki kynlíf með nú fyrrum konu sinni. Úrskurð sinn byggði dómarinn á lagagrein sem segir að gift hjón skuli lifa „samlífi.“ Túlkun dóm- arans er sú að kynlíf sé órjúfanlegur hluti hjónabandsins. Á tímum þegar löggjafinn víða um heim er loks farinn að með- höndla nauðganir og kynferðisofbeldi innan hjónabands eða sam- bands sem glæpi, þá hringir þessi túlkun dómarans viðvör- unarbjöllum. Þrátt fyrir að fólk hafi venjulega þær væntingar þegar það geng- ur í hjónaband að kynlíf sé partur af pakkanum, ef ekki nema til að fjölga kyninu, þá er það ekki endi- lega sjálfsagður hlutur. Það er ekki samningsbundin kvöð og er sann- arlega ekki að finna í þeim heitum sem farið er með á brúðkaupsdag- inn. Þess vegna virðist það ekki bara gamaldags að vera fundinn sekur um að hafa ekki stundað kynlíf með makanum, heldur villimannslegt, sérstaklega þegar litið er til þess að kynverund fólks breytist á hinum ýmsu ævistigum. Áhugi fólks og löngun eftir kynlífi getur minnkað hvenær sem er af ýmsum ástæðum, líkamlegs, tilfinningalegs og andlegs eðlis. (Eiginmaðurinn sem sóttur var til saka sagði lítinn áhuga sinn á kynlífi mega rekja til þreytu og heilsufarsvandamála.) Fyrirætlanir fólks, þegar það gengur í hjónaband, geta einnig breyst og kynlífið lent neðarlega á forgangslistanum. Niðurstaða dómarans og sú réttlæting sem hann gefur fyrir henni: „Við það að ganga í hjónaband samþykkir parið að deila saman lífinu og í því felst greinilega að stunda kynlíf hvort með öðru,“ er truflandi. Ákvörðunin og réttlætingin bergmála sjón- armið Michaels Hale, yfirdómara á Englandi á 17. öld, sem lýsti því yfir að ekki væri hægt að finna mann sekan um að nauðga eig- inkonu sinni, „því fyrir gagnkvæmt samþykki og sáttmála hjóna- bandsins hefur konan að þessu leyti gefið sig eiginmanninum svo ekki verður aftur tekið.“ Þessar tilvitnanir virðast benda til þess að þú eigir engra kosta völ þegar kemur að kynlífi innan hjónabands. Þú hefur engan rétt á að segja nei. Beiti maki þinn þig kynferðislegu ofbeldi og/eða nauðgi þér, átt þú enga vernd undir lögunum. Og nú getur hann lögsótt þig! Það er auðvelt að finna til með eiginkonunni, sem sótti um skilnað vegna skorts á kynlífi í 21 árs löngu hjónabandi. Að vera neitað um slíka nánd, ástúð og snertingu má, á margan hátt, túlka sem tilfinningalegt ofbeldi, sérstaklega þegar viðkomandi hefur augljóslega tjáð kynferðislegar þarfir sínar. Á sama tíma er það hreint út sagt óskiljanlegt að hægt sé að draga fyrrum maka fyrir dómstóla fyrir að hafa ekki viljað lifað kynlífi. Hvort sem hjón hafa verið gift í tvö ár eða tuttugu, ráða báðir einstaklingar yfir sínum líkama og þar með hvort þeir stundi kynlíf eða ekki. Ekki er nóg að kyssast í hjónabandi, fara þarf alla leið. Reuters Það er glæpsamlegt að geta lögsótt vegna kynlífsleysis ’ Túlkun dóm- arans er sú að kynlíf sé órjúfanlegur hluti hjónabandsins. Kynfræð- ingurinn Dr. Yvonne Kristín Fulbright mann fyrir því að straumarnir á milli þeirra hafi verið góðir og að Clooney hafi sjaldan virkað af- slappaðari. Einn heimildarmaðurinn sagði að hún lúffaði ekkert fyrir strákunum og að þau hefðu bæði notið sín í veislunni, sem þau fóru saman í. Keibler hefur sjálf sagt við tímaritið People að allir sem þekki hana viti að hún sé strákastelpa. Hún segist aðlaga sig ýmiss konar umhverfi, að hún geti verið stelpuleg og klætt sig upp en eigi samt sem áður ekki í neinum vandræðum með að hanga með strákunum og fara í bjór- samkvæmisleiki. Hamingjusöm og elskar allt við Clooney Hún er að minnsta kosti hamingjusöm, að því kemur fram í People. „Ég er alltaf glöð. Allir sem þekkja mig vita það að ég er mjög hamingjusöm manneskja.“ Aðspurð um hvað það sé sem henni líki í fari Clooney: „Allt saman.“ „Ég get ekkert að því gert hvað ég er myndarlegur og hæfileikaríkur,“ er hægt að ímynda sér að George Cloo- ney sé að segja á nýafstaðinni Kvikmyndahátíð í Feneyjum, þar sem hann hafði nóg að gera. REUTERS ’ Hún segist aðlaga sig ýmiss konar umhverfi, að hún geti verið stelpuleg og klætt sig upp en eigi samt sem áður ekki í neinum vandræðum með að hanga með strákunum og fara í bjórsamkvæmisleiki. Guðmundur Kjærnested var á skipum Landhelgisgæslunnar í fjörutíu ár. Hann fékk margvíslega viðurkenningu fyrir störf sín, en líklega einna besta þegar breskir togaramenn kröfðust þess í sept- ember 1972 að Guðmundur sem þá var skipherra á Ægi yrði tafarlaust rekinn. Ástæðan var sú að þá hafði varðskipið klippt togvíra aftan úr tveimur breskum togurum þegar þeir voru að veiðum innan fimmtíu mílna landhelgismarkanna. Sögðu sjómennirnir bresku að erfitt væri að „halda stillingu“ við slíkar aðstæður. Skipherrann yrði því að fjúka, ella yrði gripið til aðgerða svo yfirgangur íslensku varðskip- anna úti á miðunum yrði stöðvaður. Leiða má traust rök að því að með þessu hafi Íslendingar fengið ákveðið sóknarfæri í baráttunni við Breta sem var áróðursstríð öðrum þræði. Enda fór svo að þeir hopuðu vorið 1976 enda stóðu þeir höllum fæti gagnvart Íslendingum á flesta lund; baráttuþrekið búið og freigáturnar illa laskaðar. Guðmundur Kjærnested er einn fárra Íslendinga sem í lifanda lífi varð þjóðhetja. Þjóðin leit upp til hans sakir dirfsku hans við að verja fiskimiðin og auðlindirnar sem aftur hefur verið grundvöllur efna- hagslegs styrks Íslendinga. Það var því kannski ekki að ástæðulausu að hann væri nefndur til sögunnar vorið 1980 þegar Íslendingar leit- uðu eftir nýjum húsbónda á Bessastöðum. Mörgum þótti vel við hæfi að á forsetastóli sæti reffilegur karl sem margra sigra hefði unnið og gæti fyrir vikið talist ótvíræður leiðtogi þjóðarinnar. Þessum bolla- leggingum tók hann hins vegar fjarri en sagði síðar að sér þætti mið- ur að þorskastríðin hefðu í raun gleymst. Þjóðin væri ekki sem skyldi meðvituð um hve miklu máli skipti að sigra Bretana í baráttunni um fiskimiðin. Guðmundur lést í Reykjavík í september 2005. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Þjóðin væri ekki sem skyldi meðvituð um hve miklu máli skipti að sigra Bretana í baráttunni um fiski- miðin. Guðmundur Kjærnested Maður í New York hefur lögsótt hamborgarakeðjuna White Castle og heldur því fram að básarnir í einu útibúi veitingastaðarins séu of litlir. Martin Kessmann, segir að hann hafi verið niðurlægður árið 2009 þegar hann reyndi að troða sér í bás í White Castle í Nanuet í New York-ríki. Hann rak hnéð í járn- fót undir borði og meiddi sig. Kessman er 183 cm og 132 kg. Í lögsókninni segir að veitingastaðurinn hafi ekki boðið uppá sæti fyrir mann af stærð Kessman og það sé klárt brot á lögum. Talsmaður veitingastaðarins segir að búið sé að loka þessu útibúi og verið sé að inn- rétta nýjan stað með rúmbetri básum. Of lítil sæti Hamborgari frá White Castle. Stytta af pulsumanni birtist skyndi- lega í bænum Council Bluffs í Iowa í Bandaríkjunum. Íbúi bæjarins hringdi í lögregluna þegar hann taldi sig hafa séð mann í pulsubún- ingi nálægt strætisvagnastöð þar sem börn eru jafnan fjölmenn. Þeg- ar lögregla mætti á staðinn kom í ljós að þetta var ekki maður heldur stytta, um 180 cm á hæð, af manni sem er eins og pulsa með öllu. Reyndar vantar hendurnar á hana að hluta og þegar hún fannst var hún með bandaríska fánann á bakinu. Styttan hafði áður sést annars staðar í borg- inni en enginn veit hvaðan hún kemur. Pulsustyttan er í geymslu hjá lögreglunni þangað til einhver vitjar hennar. Óvænt pulsustytta Umrædd pulsustytta.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.