SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Page 44
44 18. september 2011
Irene Nemirovsky - Jezebel bbbbn
Í kjölfar vinsælda Frönsku svítunnar hafa eldri bækur
Irene Nemirovsky verið endurútgefnar og hér á landi
eru þær í bókaverslunum í enskum útgáfum. Ein
þeirra er Jezebel sem kom fyrst út í Frakklandi árið
1940. Kona er leidd fyrir rétt sökuð um að hafa myrt
ungan elskhuga sinn. Smám saman skýrist samband
hennar við unga manninn jafnframt því sem ástæða
glæpsins verður ljós. Fyrirmynd persónunnar var
móðir Nemirovsky, Fanny, sem var, eins og aðalpersóna bókarinnar,
sjúklega upptekin af því að varðveita unglegt útlit Þess má geta að eftir
dauða Fanny, sem ólíkt dóttur sinni lést í hárri elli, fannst eintak af
þessari bók í peningaskáp hennar.
Þetta er stutt og afar læsileg og áhugaverð saga um konu sem steypir
sjálfri sér og fólki í kringum sig í ógæfu eingöngu vegna hégóma. Nem-
irovsky er athugull mannþekkjari og henni tekst einkar vel að lýsa ör-
væntingu konu sem er sjúklega upptekin af útliti sínu og reynir allt
hvað hún getur að sannfæra sjálfa sig og aðra um að hún sé enn ung,
þótt árin segi annað. Á einstaka stað verður melódramatíkin þó full-
mikil, sérstaklega í kafla er varðar örlög dóttur aðalpersónunnar. Það
breytir þó engu um það að þetta er bók sem er mikil ánægja að lesa
enda kann Nemirovsky að byggja upp spennu, auk þess sem hún er
góður stílisti.
José Saramago - The Elephant’s Journey bbbbb
Portúgalski Nóbelsverðlaunahafinn José Saramago lést árið 2010, 87
ára gamall. The Elephant’s Journey, eins og verkið
heitir á ensku, var ein af síðustu bókum hans. Greini-
legt er að Saramago hefur haldið listrænum þrótti allt
fram á síðstu stundu, því hér eru engin ellimerki.
Árið 1551 ákveður konungur Portúgals að gefa Max-
imilian erkihertoga í Vín fíl í brúðkaupsgjöf. Og fíllinn
Solomon leggur af stað í langa ferð ásamt gæslumanni
sínum og fylgdarliði. Leiðin liggur meðal annars til Ítalíu og yfir Alpana
og hættur og undur mæta þeim. Alls kyns fólk kemur svo við sögu.
Þetta er hugmyndarík, stórskemmtileg og fyndin bók og reyndar
býsna hugljúf. Kannski ein notalegasta bók þessa frábæra rithöfundar.
Kaldhæðni Saramago er þó enn á sínum stað í verki sem fjallar meðal
annars um hina ríku þörf manna til að gefa hlutum merkingu og túlka
þá á þann hátt sem þeim þykir best samræmast þeirra eigin hug-
myndum. Þetta endurspeglast hvað best í frásögninni af því þegar fíll-
inn fremur kraftaverk fyrir framan kirkju. Sá hluti bókarinnar er ekk-
ert annað en tær snilld. Saramago er höfundur sem flestir ættu að
kynna sér.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Erlendar bækur
28. ágúst – 10.
september
1. Prjónað úr
íslenskri
ull – Ýmsir
höfundar
/ Vaka-
Helgafell
2. Stóra
Disney-
köku- & brauðb. – Walt Disn-
ey / Edda
3. Lýtalaus – Þorbjörg Alda Mar-
inósdóttir / JPV útgáfa
4. Einn dagur – David Nicholls /
Bjartur
5. Gagnfræðakver handa há-
skólanemum – Friðrik H.
Jónsson / Háskólaútgáfan
6. Frönsk svíta – Irène Ném-
irovsky / JPV útgáfa
7. Hollt nesti heiman að – Mar-
grét Gylfadóttir / Salka
8. Justin Bieber – Eins og hann
er – Elise Munier / Sögur út-
gáfa
9. Frelsarinn – Jo Nesbø / Upp-
heimar
10. Hús syndarinnar – Margit
Sandemo / Jentas
Frá
áramótum
1. Ég man þig
– Yrsa Sig-
urðardóttir
/ Veröld
2. 10 árum
yngri á 10
vikum – Þor-
björg Haf-
steinsdóttir / Salka
3. Bollakökur Rikku – Friðrika
Hjördís Geirsdóttir / Vaka-
Helgafell
4. Djöflastjarnan – Jo Nesbø /
Undirheimar
5. Betri næring – betra líf – Kol-
brún Björnsdóttir / Veröld
6. Einn dagur – David Nicholls /
Bjartur
7. Léttir réttir Hagkaups – Frið-
rika Hjördís Geirsdóttir / Hag-
kaup
8. Ljósa – Kristín Steinsdóttir /
Vaka-Helgafell
9. Mundu mig, ég man þig – Do-
rothy Koomson / JPV útgáfa
10. Matur sem yngir og eflir - Þor-
björg Hafsteinsdóttir / Salka
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Skannaðu
kóðann til að
lesa
Listinn er byggður á upplýsingum frá
Bókabúð Máls og menningar, Bóka-
búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamra-
borg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni
við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu-
stúdenta, Bónus, Hagkaupum,
Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-
Eymundssyni og Samkaupum. Rann-
sóknasetur verslunarinnar annast
söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags
íslenskra bókaútgefenda.
Þ
að er óhætt að segja að ýmsum hafi
brugðið þegar síðasti stuttlisti Booker-
verðlaunanna var birtur og bók Alans
Hollinghursts, The Stranger’s Child,
var ekki á listanum. The Stranger’s Child er
fimmta bók Hollinghursts; fyrst kom The
Swimming Pool Library 1988, þá The Folding
Star 1994, The Spell 1998, The Line of Beauty
2004 og svo The Stranger’s Child í júní síðast-
liðnum.
Bókin segir frá efnilegu skáldi, Cecil Valance,
sem deyr aðeins 25 ára árið 1916, eða réttara
sagt frá því hvernig minningu Valance er haldið
á loft áratugina eftir fráfall hans. Valance er
tilbúin persóna, en hann hrærist í heimi sem er
ekki tilbúinn nema að hluta, í bókinni koma
fyrir persónur sem voru uppi í raun og veru,
aðallega þó Rupert Brooke, sem er nærstaddur
þó hann sé ekki sýnilegur, en Brooke, „mynd-
arlegasti ungi maður í Englandi“, eins og hann
var kallaður, var tvíkynhneigður og lést 1915,
aðeins 28 ára gamall í misheppnaðri innrás Breta
í Gallipoli í Tyrklandi í október 1915.
Eins og getið er snýst bókin helst um minn-
ingu skáldsins og það hvernig því farnast eftir
andlát sitt, en lykilpersóna í því á snúna inn-
komu í bókina (birtist um miðja bók í tæplega
600 síðna doðranti); bankastarfsmaðurinn Paul
Bryant fer að vinna með barni stúlku sem Val-
ance átti hugsanlegan ástarfund með, eða svo
hafa menn túlkað ljóð sem hann reit í gestabók
sem ungur maður. Bryant er að safna gögnum
til að skrifa ævisögu skáldsins þar sem ekkert
verði dregið undan um samkynhneigðina, en
Bryant er samkynhneigður sjálfur. Enn er verið
að kallast á við minningu Brookes, því tvíkyn-
hneigð hans mátti ekki spyrjast út þegar gerð
var glansmynd af stríðsskáldinu Rupert Brooks.
Það þykir ósvinna að Bryant ljóstri upp um það
að ástarljóðið í gestabókinni var ekki ort til
stúlkunnar Daphne Sawle heldur til George
bróður hennar, enda hafði Churchill lofað ljóðið
eftir andláts skáldsins.
Í sögunni er Hollinghurst að leika sér með það
hvernig minning skálds getur orðið að glans-
mynd, miðlungsskáld, eins og Cecil Valance
vissulega er, er hafið til skýjanna í pólitískum
eða menningarlegum tilgangi, gert að táknmynd
fyrir tímaskeið eða hugsjónir þó viðfangið eigi
kannski lítið sem ekkert skylt við viðurkennda
helgimynd, opinbera goðsögn. Þegar menn síð-
an taka til við að endurskrifa söguna, eins og
Bryant gerir þegar hann leiðir í ljós að ljóðið var
samið til pilts en ekki stúlku, og að auki hafa
verið felldir úr því djarfir og beinlínis dónalegir
kaflar, verður til ný mynd sem er þó ekki síður
goðsögn, bara öðruvísi goðsögn.
Í kjölfar þess að The Stranger’s Child féll út í
lokavali fyrir stuttlistann og einnig skáldsaga
írska skáldsins Sebastians Barrys, hafa ýmsir
brugðist illa við og því verið haldið fram að að-
eins væru eftir bækur sem sniðnar væru fyrir
bókaklúbba og sem efniviður í kvikmynda-
handrit. Í The Telegraph sagði rithöfundurinn
Philip Hensher, sem verið hefur í dómnefndinni
og átt bækur á tilnefningalista, að engin bók-
anna sem eftir eru á listanum komist með tærn-
ar þar sem The Stranger’s Child hefur hælana.
Að hans mati eru menn vísvitandi að velja bæk-
ur sem þeir telja að fólk muni lesa, frekar en
eftir gæðum. Stella Rimington, sem stýrir Book-
er-nefndinni að þessu sinni, tekur í raun undir
gagnrýnina í samtali við Telegraph, enda segir
hún beinlínis um stuttlistann: „Við vorum að
leita að ánægjulegum bókum. Ég tel að bæk-
urnar séu mjög lesvænar. Við vildum að fólk
myndi kaupa þessar bækur og lesa þær. Ekki
kaupa þær og dást að þeim.“
Það þykir mörgum hneyksli að The Stranger’s Child eftir Alan Hollinghurst sé ekki á Booker-stuttlistanum.
Minning skálds og
helgimynd af því
Það vakti deilur í Bretlandi þegar ný skáldsaga Alans Holl-
inghursts, The Stranger’s Child, komst ekki á stuttlista
Booker-verðlaunanna.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is