Morgunblaðið - 07.04.2010, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Önnur konan fannst látin
2. Bíllinn fundinn mannlaus
3. Snarpur jarðskjálfti
4. Önnur konan fundin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ein stærsta og virtasta dans-
keppnin fyrir börn og unglinga, Juni-
or Dance Festival, er nú haldin í Win-
ter Gardens í Blackpool á Englandi. Í
gær lenti íslenskt par, Margrét Hörn
Jóhannsdóttir og Höskuldur Jónsson,
í öðru sæti í flokki 11 ára og yngri í sí-
gildum samkvæmisdönsum. Alls eru
um 90 pör skráð til keppni í flokkn-
um, þar af 10 pör frá Íslandi, en kepp-
endur koma frá öllum heimshornum
og er árangur íslenska parsins mjög
glæsilegur. Keppnin er haldin í 53.
skiptið í ár, en hún var fyrst haldin
1947. Keppt er í tveimur flokkum,
börn 6-11 ára og unglingar 12-16 ára.
Alls taka 30 pör frá Íslandi þátt í
Junior Dance Festival að þessu sinni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Íslenskt par í öðru
sæti í danskeppni
Magnús Sigurð-
arson nam mynd-
list í Myndlista-
og handíðaskól-
anum, í Flórens
og New Jersey.
Hann opnar
næstkomandi
föstudag sýningu
í Dorsch-
galleríinu í Miami sem hann kallar
The Fall of The Pedestial Sentience
– Last stand of the Fabulous, Terri-
fic and Super.
Magnús hefur verið búsettur í
Miami undanfarin fimm ár en hann
hefur búið vestanhafs að miklu leyti
undanfarin ár, með hléum þó.
„Það má segja að nú standi yfir
önnur tilraun mín til að verða Am-
eríkani.“ »27
Heldur einkasýningu
í galleríi í Miami
Á fimmtudag Sunnan 3-8 m/s. Lítilsháttar súld á Suður- og Vesturlandi, en annars létt-
skýjað. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn.
Á föstudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning, en heldur hægari og þurrt að mestu norð-
austantil. Hiti víða 5 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg vestlæg átt og lítilsháttar slydda norðanlands, annars
bjart með köflum. Hiti um og undir frostmarki, en víða frostlaust.
VEÐUR
Lionel Messi sýndi og sann-
aði að hann er fremsti fót-
boltamaður heims um þess-
ar mundir.
Argentínumaðurinn fór
gjörsamlega hamförum og
skoraði öll fjögur mörk Evr-
ópumeistara Barcelona
þegar þeir lögðu Arsenal,
4:1, á heimavelli sínum,
Camp Nou, og tryggðu sér
þar með sæti í undan-
úrslitum Meistaradeild-
arinnar. »4
Messi með fernu
gegn Arsenal
Einar Hólmgeirsson er á förum frá
þýska handboltaliðinu Grosswall-
stadt í sumar. Forráðamenn liðsins
gengu á
bak
orða
sinna
og
vinstri-
handarskyttan
leitar á önnur
mið. Meiðsli
hafa sett svip
sinn á fimm ára
atvinnuferil
landsliðs-
manns-
ins. »1
Einar er á förum
frá Grosswallstadt
Það verður Íslendingaslagur í átta
liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu
í handknattleik. Í gær var dregið til
þeirra í höfuðstöðvum EHF og mæt-
ast Rhein-Neckar Löwen, sem Ólafur
Stefánsson, Snorri Guðjónsson og
Guðjón Valur Sigurðsson leika með,
og Kiel, liðið sem Alfreð Gíslason
þjálfar og Aron Pálmarsson leikur
með. » 4
Íslendingaslagur í
Meistaradeildinni
ÍÞRÓTTIR
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„ÉG hef beðið eftir þessum titli frá
því ég var 13 ára. Mér líður yndislega,
þetta er frábært lið. Ég hef aldrei
upplifað þessa tilfinningu áður,“ sagði
Signý Hermannsdóttir, leikmaður
KR, í gær eftir að liðið landaði Ís-
landsmeistaratitlinum í körfuknatt-
leik kvenna í 14. sinn í sögu KR.
Signý, sem er 31 árs og elsti leik-
maður KR, gekk í raðir liðsins síðasta
sumar. „Samheldnin í þessu liði er
einstök og það er heiður fyrir mig að
fá að vera hluti af því,“ sagði Signý
eftir 84:79-sigur liðsins í gær gegn
Hamri úr Hveragerði. Fimm leiki
þurfti til þess að ná fram úrslitum í
þessu einvígi og oddaleikurinn í gær
var gríðarlega spennandi.
Átta ára bið KR eftir Íslandsmeist-
aratitlinum í kvennaflokki lauk því í
gær og fögnuðu stuðningsmenn liðs-
ins vel og innilega í leikslok í troðfullu
íþróttahúsi þeirra KR-inga.
Unnur Tara Jónsdóttir, leikmaður
KR, var nánast orðlaus í leikslok en
hún var einn besti leikmaður liðsins í
gær. Hún skoraði 27 stig og skotnýt-
ing hennar var frábær. „Ég held að
ég hafi aldrei barist eins mikið og í
þessum leik, og ég hef aldrei verið
jafnþreytt,“ sagði Unnur sem hefur
tvívegis áður fagnað Íslandsmeist-
aratitlinum en þá sem leikmaður
Hauka. Andlegur undirbúningur KR-
liðsins var stór þáttur í velgengni
þess í oddaleiknum að mati Unnar
Töru og þar lék Benedikt Guðmunds-
son þjálfari stórt hlutverk. „Við vor-
um frekar rólegar á leikdeginum og
Benni lagði áherslu á að við hugs-
uðum um þá hluti sem við gætum haft
stjórn á. Það tókst og við getum verið
mjög stoltar af þessum titli. Þetta var
erfitt tímabil og Hamarsliðið var okk-
ar helsti andstæðingur. Þær eru góð-
ar en við erum betri,“ bætti Unnur
Tara við. | Íþróttir
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsmeistarar Leikmenn KR fögnuðu innilega þegar Hildur Sigurðardóttir fyrirliði hóf bikar meistaranna á loft við verðlaunaafhendingu í gærkvöldi.
„Þær eru góðar en við erum betri“
KR fagnaði Íslandsmeistaratitlinum
í körfuknattleik kvenna í 14. sinn
Fagnað Áhorfendur troðfylltu KR-húsið og fögnuðu meistaratitlinum vel.