Morgunblaðið - 27.05.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Jón Pétur Jónsson
og Baldur Arnarson
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi
í gær áminningarbréf til Íslands.
Þar er komist að þeirri niðurstöðu
að Ísland sé skuldbundið til að
tryggja greiðslu á lágmarkstrygg-
ingu í samræmi við tilskipun um inn-
stæðutryggingar til breskra og hol-
lenskra sparifjáreigenda. Íslenskum
yfirvöldum var veittur tveggja mán-
aða frestur til að svara áminning-
arbréfinu. Áminningarbréf er fyrsta
skref ESA í samningsbrotamálum.
ESA segir að Ísland hafi brotið
gegn Evróputilskipun um innstæðu-
tryggingar með því að gera grein-
armun á innistæðueigendum í ís-
lenskum útibúum bankanna og
útibúum þeirra erlendis þegar gripið
var til neyðarráðstafana í kjölfar
bankahrunsins í október 2008.
Fram kemur á vef ESA, að þessi
tilskipun sé hluti af EES-samningn-
um. Samkvæmt henni hafi Íslandi
borið að greiða breskum og hol-
lenskum sparifjáreigendum 20.000
evrur í kjölfar falls Landsbankans.
Telur ESA, að samkvæmt tilskipun-
inni beri Ísland ábyrgð á því að inn-
stæðueigendur í Icesave fái greiddar
að lágmarki 20.000 evrur. Sú stað-
reynd að bresk og hollensk yfirvöld
hafa greitt flestum innstæðueigend-
um þær lágmarksbætur breyti engu
um skuldbindingar Íslands.
Ósammála skilningi
Fram kemur í tilkynningu ESA að
íslenska ríkisstjórnin hafi sagt í
bréfi til stofnunarinnar, að hún telji,
að til að fullnægja kröfum tilskip-
unarinnar sé nægjanlegt að setja á
fót tryggingarkerfi fyrir sparifjár-
eigendur.
Ríkisstjórnin hafi einnig haldið
því fram að tilskipunin eigi ekki við í
algeru efnahagshruni. ESA sé ósam-
mála þessum skilningi á tilskipunin-
inni. Haft er eftir Per Sanderud, for-
seta ESA, á vef stofnunarinnar, að
ESA sé fullkunnugt um að Ísland,
Bretland og Holland hafi reynt að
semja um lausn deilunnar. Ef slíkt
samkomulag náist ekki sé þörf á
frekari aðgerðum af hálfu stofnunar-
innar.
Gæti endað fyrir
EFTA-dómstólnum
„Þetta skiptir talsverðu máli.
Þarna er verið að hefja ferli sem
gæti endað með dómi fyrir EFTA-
dómstólnum,“ segir Gylfi Magnús-
son viðskiptaráðherra. Fari allt á
versta veg geti staða Íslands orðið
mjög óþægileg.
Enn sé þó hægt
að leysa málið við
samningaborðið
eins og vilji Ís-
lendinga hafi
staðið til. „Ef það
fer þannig að við
náum ekki samn-
ingum og málið
endar með dómi
fyrir EFTA-dómstólnum myndi það
óhjákvæmilega setja okkur í óþægi-
lega stöðu,“ sagði Gylfi.
Hann segir það vonbrigði að ESA
hafi ekki tekið undir þau sjónarmið
sem íslensk stjórnvöld hafi haldið
fram.
Ísland fær gult spjald frá ESA
Meint brot gegn Evróputilskipun um innistæðutryggingar
Áminningarbréf fyrsta skref ESA í samningsbrotamálum
Morgunblaðið/Ómar
Gylfi Magnússon
„ESA kemst að þeirri niðurstöðu að ríkið sé ábyrgt án
þess að það standi í lögum eða tilskipuninni sjálfri […]
Þess vegna eru þetta sérstaklega veik rök sem þeir
eru að nota,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, um niðurstöðu ESA í Icesave-
deilunni.
„Það ber að hafa í huga að þetta er ekki dómur.
Þetta er álit ESA í málinu. Það fjallar um álitaefni sem
við höfum tekið til skoðunar áður, síðast í rannsókn-
arskýrslu Alþingis. Við höfum komist að þveröfugri
niðurstöðu um þessi atriði. Það er engin ástæða til
þess að hrökkva í kút við þetta álit. Nú þarf að gaumgæfa þau rök sem
þarna eru tínd til og gefa sér tíma til að svara þeim.“
Sérstaklega veik rök
GÆTI STYRKT SAMNINGSSTÖÐUNA
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, segir áhugavert að ýjað sé að því að málið
geti farið fyrir dómstóla, EFTA-dómstólinn til dæmis.
Hann segir að samninganefndarmönnum Íslands hafi
þetta vera mjög góð tíðindi. „Þeir töldu þetta styrkja
samningsstöðu okkar því Bretar og Hollendingar
myndu alls ekki vilja að það skapaðist þessi réttar-
óvissa sem gæti þýtt að málið færi fyrir dómstóla,
allra síst núna þegar allt er í uppnámi í bankakerfi Evr-
ópu. Lee Buccheit og samningamennirnir töldu þetta
mjög góð tíðindi,“ segir Sigmundur og vísar til fundar
um niðurstöðu ESA fyrir helgi þar sem farið var yfir hana með fulltrúum
íslensku stjórnmálaflokkanna.
Vilja ekki réttaróvissu
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
„Það held ég að sé alveg rétt mat. Ef þetta endar með
samningsbrotamáli er alveg hægt að koma því fyrir
EFTA-dómstólinn. Það opnar þann möguleika,“ segir
Stefán Már Stefánsson lagaprófessor um það mat for-
manns Framsóknar að niðurstaða ESA í Icesave-
málinu auki líkur á að málið fari fyrir dómstóla.
Stefán Már segir niðurstöðuna engu breyta um eig-
in afstöðu í málinu. Hann hafi skrifað um það og kom-
ist að ákveðinni niðurstöðu, þetta sé í ósamræmi við
hana. „Þessi niðurstaða okkar hefur auk þess verið
staðfest í ítarlegu máli í rannsóknarskýrslu Alþingis.
Ég tel þetta alls ekki veikja samningsstöðu Íslands.“
Veikir ekki samningsstöðuna
Stefán Már
Stefánsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Engin óyggjandi merki eru um að
eldgosinu í Eyjafjallajökli sé lokið.
Enn gætir lítils háttar óróa og yf-
irborðsbreytinga samkvæmt GPS-
mælingum. Einnig mælast einstaka
jarðskjálftar undir jöklinum. Þetta
kom m.a. fram á samráðsfundi al-
mannavarna og vísindamanna um
stöðu gossins í gær.
„Menn vilja horfa á þetta aðeins
lengur áður en þeir segja að þessari
lotu sé lokið,“ sagði Víðir Reynisson,
deildarstjóri almannavarnadeildar
Ríkislögreglustjóra. Staðan verður
líklega athuguð eftir næstu helgi
gerist ekkert þangað til.
Vísindamenn fóru í fyrradag að
kanna upptakasvæði aurflóðsins
sem varð í Svaðbælisá. Þeir grófu 20
gryfjur í jökulinn. Lag af mjög fínni
og blautri ösku reyndist vera á 40-50
sentimetra dýpi. Það veldur því að
yfirborðið er mjög óstöðug og getur
skriðið fram hvenær sem er. Ekki
þurfti nema að hoppa við brotstálið
til að koma af stað litlum skriðum.
„Mat þeirra sem voru þarna er að
jökullinn sé stórhættulegur vegna
þessa,“ sagði Víðir. Hann sagði að
veika öskulagið væri ekki ólíkt því
sem menn þekktu úr veikum snjóa-
lögum sem yllu snjóflóðum. „Þetta
er ein ástæða þess að við erum mjög
smeykir við að opna fyrir umferð
upp á jökulinn,“ sagði Víðir. Aurflóð-
ahættan getur varað allt fram á
næsta vor. Veðurstofan mun fylgjast
með úrkomu á svæðinu og vara við
ef mikil úrkoma verður á jöklinum.
Rætt um opnun í Þórsmörk
„Við stefnum að því að opna inn í
Þórsmörk eins fljótt og hægt er og
náttúran þolir,“ sagði Víðir. Lagfær-
ingum á veginum inn í Þórsmörk
lýkur brátt. Almannavarnir ráðgera
fund á föstudag með þeim sem ann-
ast ferðaþjónustu í Þórsmörk.
Hreinsa þarf til og undirbúa komu
ferðamanna í Mörkinni áður en
hægt verður að opna fyrir umferð.
Víðir taldi að Fimmvörðuháls yrði
utan við lokunarsvæðið, nema hætta
á aurflóðum breytti því. Þykkt ösku-
lag væri á hálsinum og því ekki
spennandi að vera þar ef vind
hreyfði. Útivist og Ferðafélagið ætla
að merkja leið yfir nýja hraunið.
Víðir sagði að vísindamenn teldu
að vænta mætti gasstreymis frá eld-
stöðinni um tíma þótt gosið hætti.
Þeir vara við því að fólki verði hleypt
í gamla lónstæðið framan við Gígjö-
kul. „Gasið er þungt og sígur niður
farveg vatnsins. Það getur safnast
fyrir í lónstæðinu þegar stillur eru,“
sagði Víðir.
Gosið í Eyjafjallajökli sett á bið
Óyggjandi merki vantar um að
gosinu sé lokið Hvikult öskulag
veldur aurflóðahættu víða af jöklinum
Ljósmynd/Þorgeir Sigurðsson
Vorverkin Þórarinn Ólafsson plægir tún við Ásólfsskála undir Eyjafjöllum og eins og sjá má þyrlast askan upp.