Morgunblaðið - 27.05.2010, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Daglegt líf 11
Satay eða Sate grillpinnar eru gífur-
lega vinsælir í Suðaustur-Asíu, ekki
síst í Indónesíu, Singapore og Mal-
asíu. Ég kynntist Satay fyrst í heim-
sókn til Singapore fyrir einum og hálf-
um áratug. Þar er hvað besta matinn
að fá á svokölluðum „hawkers mar-
kets“ sem eru eins konar útimarkaðir
þar sem hægt er að labba á milli bása
og kaupa sér mismunandi rétti.
Einn sá þekktasti gekk undir heit-
inu Satay Club og var í Esplanade
Park. Honum mun nú hafa verið lokað
vegna nýbyggingar sem reist var á
svæðinu en götumatsalarnir þar
fluttu flestir yfir á Clarke Quay niðri
við ána er rennur í gegnum borgina.
Þær eru fjölmargar útgáfurnar af
Satay sem eru til en algengast er að
nota kjúkling eða nautakjöt sem er
látið liggja í kryddlegi um stund og
síðan grillað á litlum spjótum og borið
fram með hnetusósu.
Í þessari uppskrift er gert ráð fyrir
kjúklingi en það má allt eins nota
nautakjöt. Verði kjúklingur fyrir val-
inu eru beinlaus og skinnlaus læri
besti kosturinn. Gerið ráð fyrir um
100-150 grömmum af kjöti á mann.
Í kryddlöginn þarf eftirfarandi:
1 dl matarolíu, helst jarðhnetuolíu
1 límónu (lime)
5 hvítlauksgeira
1/2 búnt vorlauk
4-5 sm engiferbút
1 tsk Túrmerík
2 msk sojasósu
1 msk taílenska chilisósu
Pressið safann úr límónunni, rífið
hvítlauk og engifer á rifjárni, saxið
vorlaukana smátt og blandið saman
við olíuna, sojasósuna og chilisósuna.
Bætið við Túrmerik, sem gefur hin
einkennandi gula lit.
Skerið kjúklinginn niður í 2-3 sm
bita og látið liggja í kryddleginum í
1-2 klukkustundir.
Þá er komið að því að gera hnetu-
sósuna. Í hana þurfum við:
2 msk jarðhnetu eða sesamolíu
1/2 búnt vorlauk
2 dl hnetusmjör (creamy frekar en
crunchy)
1 dl jarðhnetur, muldar
2 dl kjúklingasoð
1 tsk sykur
1 msk sojasósu
1/2 sítrónu, pressaða
Hitið olíuna á pönnu, varist að hafa
hana of heita. Steikið saxaða vorlauk-
inn í um 2 mínútur og bætið þá við
hnetusmjörinu, kjúklingasoðinu, sykr-
inum, sojasósunni og safanum úr sí-
trónunni og jarðhnetunum.
Best er að hafa jarðhneturnar
ósaltaðar en ef þið finnið einungis
hefðbundnar salthnetur er ágætt að
skola mesta saltið af þeim örsnöggt í
vatni. Myljið þær síðan í mat-
vinnsluvél eða með kökukeflinu.
Látið sósuna malla á mjög vægum
hita í nokkrar mínútur eða þar til hún
þykknar. Hrærið reglulega í henni. At-
hugið að þessi sósa verður nokkuð
þykkari heldur en tilbúin Satay-sósa
sem keypt er í dós.
Þræðið loks kjúklingabitana upp á
grillteina og grillið. Berið fram jasm-
ínhrísgrjónum og agúrkúbitum.
Þessi réttur hentar best með ungu
og fersku hvítvíni, t.d. Montes Sauvig-
non Blanc eða Benchmark Char-
donnay. Eða þá með asískum bjór líkt
og Tiger-bjórnum sem veitingamenn-
irnir í Satay Club buðu iðulega upp á.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Satay-kjúklingur með hnetusósu
sem geta stundum haft áhrif á fram-
tíðarmöguleika barnanna og hamlað
líkamsþroska þeirra.
Einn stór þáttur í aukningu á
meiðslum er að börnin æfa aðeins
eina íþrótt allt árið, það er engin fjöl-
breytni. Daglegar æfingar eru líka of
mikið fyrir börn, þau þurfa a.m.k einn
til tvo daga í frí frá æfingum í hverri
viku. Einnig er mælt með því að börn
leiki aðeins með einu liði á hverju
tímabili og taki sér frí í tvo til þrjá
mánuði frá þessari ákveðnu íþrótt á
hverju ári.
Það er líka augljóst merki að barn-
ið hefur misst áhugann á því að halda
áfram að æfa þegar það kvartar yfir
óskilgreindum eða bara einhverjum
verkjum í líkamanum, undan þreytu
eða lélegri frammistöðu.
Reuters
Stöðugleiki Eyjólfur við húsið sem hann ólst upp í og er nú bæði heimili hans og gullsmíðaverkstæði.
um tíma, við vorum tveir gullsmiðir
á Laugavegi 25 og svo var ég á
Laugvegi 11, á Vesturgötunni og
Skólavörðustíg. En það hefur alltaf
gengið best hjá mér hér á Hjallaveg-
inum.“
Karlarnir komu fullir og fínir
beint af sjónum í fatapressun
Á gullsmíðaverkstæðinu kennir
ýmissa grasa, þar leynast listaverk,
meðal annars fornir íkonar frá fjalla-
þorpi í Júgóslavíu, málaðir á gamla
fjósfjöl. En ekki segist hann vera
guðstrúar þó hann skreyti verk-
stæðið með slíkum trúarlegum
myndum. „Ég er trúleysingi, þó ég
sé reyndar fermdur,“ segir Eyjólfur
sem er góður sagnamaður og rifjar
upp skemmtilega hluti frá fyrri tíð.
„Pabbi minn, Arinbjörn Kúld, var
fatapressari bæjarins og var með
efnalaug á Vesturgötunni. Hann var
eini fatahreinsarinn sem var með
klefa, þannig að karlarnir gátu kom-
ið til hans beint af sjónum, þeir sem
höfðu verið á Nýfundnalandi. Þeir
klæddu sig bara úr í klefunum, fullir
og fínir og biðu á meðan pabbi
hreinsaði og pressaði fötin þeirra.
Togararnir voru bundnir við
bryggju rétt fyrir neðan. Vilhjálmur
frá Skáholti var fastagestur hjá
pabba en hann var gefinn fyrir sop-
ann. Villi setti stundum miða á hurð-
ina hjá sér og þar stóð: Skrapp frá í
15 mínútur. Þá var hann yfirleitt frá
í þrjár eða fjórar vikur á fylleríi.“
Átti skútur og keppti í
siglingum
Þegar Eyjólfur er á annað borð
byrjaður að rifja upp gamla tíma
kemur ýmislegt í ljós. Hann keppti á
skútum hér áður og sigraði meðal
annars á áttunda áratugnum í al-
þjóðlegri keppni í Noregi, ásamt
siglingafélaga sínum sem nú er lát-
inn.
„Kannski ég endi í Kaliforníu með
skútu, það er aldrei að vita. Ég er
með númer í bæjarfélagi þar fyrir
Norðurlandabúa. Michael Jackson
er grafinn í kirkjugarðinum þar, en
ég og konan mín fórum oft þangað
með nesti þegar hún bjó þar. Þetta
er fallegur og friðsæll garður.“
Að lokum má geta þess að Eyjólf-
ur hefur sterka skoðun á því hvað
eigi að gera við þá menn sem hafa
komið Íslandi á hausinn.
„Ég held það ætti að taka þessa
karla og setja þá fjórar hæðir niður í
jörð og henda í þá gömlum bún-
ingum. Þeir hafa gert svo mikinn
skaða, bæði fyrir landið og almenn-
ing.“
Listasmíð Hér má sjá eitt af fjöl-
mörgu skarti sem Eyjólfur smíðar.
Ný heyrnartæki - helmingi minni en tvöfalt öflugri!
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | S í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil
Njóttu orkunnar sem fylgir því að heyra betur!
Agil eru einstök heyrnartæki sem voru þróuð með það markmið í
huga að bæta talgreiningu við allar aðstæður og draga úr
hlustunarþreytu. Agil heyrnartækin eru þau fullkomnustu frá
Oticon fram til þessa en segja má að þau hafi tæknilega sérstöðu
umfram önnur tæki.
Þrátt fyrir að Agil séu um helmingi minni en hefðbundin bak við
eyra tæki þá búa þau yfir öflugustu
örflögunni en vinnsluhraði
hennar er helmingi meiri en
áður hefur þekkst.
Eins og önnur heyrnartæki
frá Oticon þá eru Agil með
þráðlausa tækni og veita
þrívíddarhljómgæði.