Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
ræði sem hægt væri að beita til að endurheimta
fé frá fjárglæframönnum, oft væri t.d. einfaldara
að sanna skjalafals en önnur brot. Hann sagði að
í lagakerfum Evrópusambandsríkja væri greini-
leg þróun í þá átt í að taka upp heimildir til að
gera illa fengnar eignir upptækar án sakfellingar
þótt enn sé þessi háttur ekki hafður á nema í
minnihluta ríkjanna.
„Hæstiréttur Írska lýðveldisins taldi að réttur
ríkisins til að berjast gegn alvarlegum glæpum
vægi þyngra en eignaréttarákvæðin. En oft hefur
verið sagt að lög af þessu tagi skerði mannrétt-
indi og borgaraleg réttindi,“ sagði Heuckelom.
„Sagt var að umrædd lög um eignaupptöku án
undanfarandi sakfellingar væru ekki annað en
sakamál sem hefði bara fengið nýtt nafn. Þessi
rök hafa oft verið færð fram fyrir rétti og sagt að
brotinn væri rétturinn til réttlátrar máls-
meðferðar sem tilgreindur er í 6. grein mannrétt-
indasáttmálans.“ Taka yrði í eignaupptökumálum
tillit til reglunnar um að allir væru saklausir uns
sekt væri sönnuð, það væri ekki tryggt jafn vel ef
fylgt væri reglum einkamála.
En ýmsir dómstólar hefðu bent á að þegar áð-
urnefndum lögum væri beitt færi ekki fram nein
handtaka. Það er aðeins eignin sem er „hand-
sömuð“, skilið er á milli hlutarins og eiganda
hans. Því sé ekki um að ræða að einstaklingurinn
sjálfur, eigandinn, geti kvartað undan broti á sín-
um mannréttindum, hann fari eftir sem áður
frjáls ferða sinna.
En ef það borgar sig að
fremja peningaglæpi?
Víða gilda lög sem heimila ríkinu að endurheimta illa fengið fé með einkamáli
Morgunblaðið/Eggert
Lög og regla Frá fundi Lagastofnunar í húsi Háskóla Íslands, Öskju, í gær. F.v. Carlo van Heuckelom,
Roger Fuller og Róbert Spanó, umboðsmaður Alþingis, en hann stýrði fundinum.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Hægt væri að skipuleggja „flott
slóðakerfi“ fyrir torfæruhjólamenn
vestan við Grindvíkurveg og jafn-
framt mætti skoða þann möguleika
að opna ákveðnar leiðir fyrir þá inn-
an Reykjanesfólkvangs, að mati
Óskars Sævarssonar, forstöðu-
manns Saltfisksetursins í Grindavík
sem situr í stjórn fólkvangsins.
Óskar bendir á að gríðarlega
mörg torfæruhjól hafi verið flutt inn
á undanförnum árum og eftir það sé
hægt að tala um að holskefla utan-
vegaaksturs hafi riðið yfir fólkvang-
inn. Ekki hafi verið hugað nægilega
að aðstöðu fyrir þennan hóp í grennd
við höfuðborgarsvæðið. „Gamlar
þjóðleiðir, kindagötur, gönguleiðir
og stígar sem hafa myndast við fjár-
leitir, þetta er orðið vettvangur fyrir
akstur þessara ökutækja.“ Svo virð-
ist sem menn ýfi kerfisbundið upp
gamla slóða, í þeim tilgangi að slóð-
arnir fái að hanga inni þegar loksins
verði komið skipulagi á aksturinn.
Alvarlegasta vandamálið í fólk-
vanginum tengist utanvegaakstri á
Sveifluhálsi og Núpshlíðarhálsi.
Óskar telur að hægt sé að
minnka vandann með því að skipu-
leggja mótorhjólaslóða á vegum sem
hafa verið lagðir fyrir vestan Grinda-
víkurveg, einkum í tengslum við
virkjanaframkvæmdir.
Þrjár leiðir innan fólkvangs
Óskar telur einnig að skoða
mætti þann möguleika að opna
ákveðnar leiðir innan fólkvangsins
fyrir mótorhjólaakstri. Hann nefnir
Selsvallaleiðina, leið eftir Krýsuvík-
urbergi og gamlan vegslóða í gegn-
um Breiðdal. „Þessar leiðir þarf að
laga þannig að þær geti borið um-
ferð og verið sjálfbærar og trufli
ekki umferð annarra,“ segir hann.
Taka þurfi á vandanum frá báðum
hliðum. „Ég kalla eftir því að um-
hverfisráðherra taki á sig rögg.
Einnig þurfa sveitarfélögin á Suð-
vesturhorninu að skipuleggja dreif-
býli en ekki bara þéttbýli. Þar er
margt óunnið.“
Möguleikar á flottu slóðakerfi
Ýfa Torfæruhjólum er m.a. ekið eft-
ir göngustígum í fólkvanginum.
Mikið af vegum vestan við Grindavíkurveg sem gætu hentað torfæruhjólum
Ýfa kerfisbundið upp gamla slóða til að búa sig undir að skipulagi verði komið á
Flugvél Land-
helgisgæslunnar,
TF-SIF, heldur
af stað til Grikk-
lands nk. mánu-
dag til að sinna
landamæraeftir-
liti á ytri landa-
mærum Evrópu-
sambandsins.
Ísland er aðili að
eftirlitinu Frontex í gegnum Schen-
gen-samstarfið. Mun átta manna
áhöfn sinna eftirlitinu, en SIF er
svo væntanleg til Íslands aftur í júlí.
Varðskipið Ægir fer einnig utan í
sumar í samskonar eftirlit við Spán
og Grikkland.
Gæsluvélin í landa-
mæraeftirlit fyrir
Evrópusambandið
TF-SIF Til Grikklands
Brot 16 ökumanna voru mynduð á
Gullteigi í Reykjavík á þriðjudag.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið Gullteig í suðurátt, við Silfur-
teig. Á einni klukkustund, eftir há-
degi, fóru 57 ökutæki þessa akst-
ursleið og því ók hátt í þriðjungur
ökumanna, eða 28%, of hratt eða yf-
ir afskiptahraða, segir í tilkynn-
ingu lögreglu. Meðalhraði hinna
brotlegu var 44 km/klst en þarna
er 30 km hámarkshraði. Sá sem
hraðast ók mældist á 54.
Mælingarnar eru hluti af sér-
stöku umferðar- og hraðaeftirliti í
og við íbúðargötur í umdæminu. Á
Gullteig var staðsett ómerkt lög-
reglubifreið sem er búin mynda-
vélabúnaði. Fyrir ári var lögreglan
við hraðamælingar á þessum sama
stað á Gullteig en þá óku hlutfalls-
lega færri, eða 22%, of hratt eða yf-
ir afskiptahraða.
Brot 16 ökumanna
mynduð á Gullteigi
Framkvæmdir við uppsetningu ör-
yggismyndavéla við bæjarmörk
Seltjarnarness eru hafnar, að því er
fram kemur í Nesfréttum, frétta-
blaði Seltirninga. Þar segir að vél-
unum sé ætlað að fylgjast með um-
ferð inn og út úr bænum en með því
verði unnt að leita í upptökur þegar
afbrot eigi sér stað í bæjarfélaginu.
Fram kemur að vinna við upp-
setninguna sé nokkuð umfangs-
mikil því bærinn leggi mikla
áherslu á að vel sé að verki staðið
hvað varði áreiðanleika gagna.
Eftirlitsmyndavélar
settar upp á Nesinu
VSÓ ráðgjöf og Rauði kross Íslands
hafa gert samkomulag um stuðning
fyrirtækisins við hjálparstarf fé-
lagsins í Georgíu og Armeníu á
næstu 18 mánuðum. Markmið sam-
starfsins er að byggja upp kerfi
neyðarvarna í Kákasusfjöllum, þar
sem jarðskjálftar, skriðuföll og flóð
eru algeng vá. Ráðgjafi á vegum
VSÓ ráðgjafar mun samkvæmt
samkomulaginu vinna í stýrihópi
Rauða krossins vegna verkefnisins.
VSÓ styður hjálpar-
starf í Kákasus
Annar fyrirlesarinn á fundinum, Belginn
Carlo van Heuckolom, er yfirmaður deildar
hjá Europol er fæst við málefni eignaupp-
töku. Arnar Jensson er tengifulltrúi Íslands
hjá Europol en stofnunin sinnir ekki síður
fjármálaglæpum en öðrum afbrotum.
„Síðastliðinn vetur óskuðu Íslendingar
eftir því hjá Europol að stofnunin kæmi að
ráðgjöf við að finna sérfræðinga og tengja
saman fjölþjóðlegar rannsóknir, annast
greiningu á upplýsingum og rekja eignir,
bakgrunn félaga og þess háttar,“ segir Arn-
ar. Starf hans felst í að tengja saman
þau úrræði sem Europol hefur og
íslenska rannsóknaraðila. 35 að-
ildarríki Europol eru með
tengslaskrifstofur í sama húsinu
hjá stofnuninni og því ljóst að
boðleiðir eru stuttar sem getur
skipt miklu.
Upplýsingar greindar
og eignir raktar
EUROPOL AÐSTOÐAR ÍSLENDINGA
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ýmsir þátttakendur í útrásinni og afleiðum henn-
ar eru grunaðir um að hafa brotið lög og sæta
rannsókn. En geta yfirvöld náð eignum þeirra
með einfaldri lagabreytingu þótt ekki sé búið að
dæma þá? Deilt er um það hvort aðgerðir sem
leyfðar eru í allmörgum ríkjum, eignaupptaka án
sakfellingar ef nægilegar líkur þykja á að eignin
sé illa fengin, rekist á ákvæði mannréttinda-
sáttmála og eignaréttarákvæði í stjórnarskrá.
Um þessi mál var fjallað á opnum fundi Laga-
stofnunar Háskóla Íslands í gær. Frummælendur
voru Belginn Carlo van Heuckelom, sem er lög-
fræðingur og hefur í átta ár verið yfirmaður fjár-
munadeildar Europol, Assets Recovery Bureau
og Bretinn Roger Fuller, sem er sjálfstætt starf-
andi ráðgjafi en var áður við störf hjá rannsókn-
arlögreglunni í heimalandi sínu.
Lög sem heimila að verðmæti séu gerð upptæk
án þess að áður hafi komið til sakfellingar eru
ekki í gildi á Íslandi en að sögn van Heuckeloms
hafa þau verið sett í allmörgum ríkjum, þ.á m. í
Bretlandi, Bandaríkjunum, á Írlandi og í Sviss.
Sönnunarbyrðin er léttari í einkamálum en í
sakamálum. Í sakamálum krefjast dómarar ótví-
ræðra sannana og sönnunarbyrðin hvílir öll á
ákæruvaldinu en í hinum fyrrnefndu er nóg að
líkur á sekt séu meiri en minni. Fuller sagði það
hafa verið reynsluna í Bretlandi, áður en lög-
unum var breytt 2002, að dómarar vísuðu oft frá
málum vegna eignaupptöku, töldu sönnunargögn
vera ófullnægjandi. Breskir dómarar væru einnig
tregir til að dæma vegna skattalagabrota vegna
þess hve skattalög væru gríðarlega flókin.
„Með því að beita þessum nýju lagaákvæðum
er athyglinni beint að verðmætunum sjálfum en
ekki eigandanum,“ sagði Fuller. Mál þar sem
reynt hefur á ákvæði af umræddum toga hafa
farið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og er
niðurstaðan að þau brjóti ekki gegn mannrétt-
indum.
Frumvarp til umfjöllunar á Alþingi
Helgi Hjörvar alþingismaður hefur lagt fram
frumvarp um heimild til eignaupptöku án sakfell-
ingar. Er þar einnig ákvæði um að ríkisvaldið
geti höfðað sjálfstætt skaðabótamál til að klófesta
illa fengið fé. Hugsanlegt er að lögin taki gildi í
september ef þau verða samþykkt. En fram
kom í umræðunum hjá fundarstjóranum, Ró-
bert Spanó, að ekki væri víst að Hæstirétt-
ur myndi komast að þeirri niðurstöðu að lög
af þessu tagi stæðust stjórnarskrá landsins;
eignarrétturinn nyti meiri lagaverndar hér
en í flestum öðrum löndum. Fari svo verður
að breyta stjórnarskránni til að lög Helga
taki gildi.
Van Heuckelom fjallaði um ýmis úr-
Tryggvi M. Þórðarson, keppn-
isstjóri í Rallý Reykjavík, er veru-
lega ósáttur við orð formanns
stjórnar Reykjanesfólkvangs um
að ekki verði veitt leyfi fyrir ral-
lakstur um fólkvanginn. Tryggvi
segist ánægður með að skera
eigi upp herör gegn utanvega-
akstri í fólkvanginum en með
þessu sé að ósekju vegið að ral-
lökumönnum. Rall hafi verið eftir
Djúpavatnsleið um 3-5 sinnum á
ári frá árinu 1978. Það sé raunar
ekki fólkvangsins að veita leyfi
þótt það sé sjálfsögð kurteisi að
leita þar heimildar.
Ekið frá ’78
RALLAKSTUR Í HÆTTU
Arnar Jensson