Morgunblaðið - 27.05.2010, Side 15

Morgunblaðið - 27.05.2010, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 ... verk- og tæknifræðingum til starfa. Í boði eru spennandi störf í alþjóðlegu umhverfi. Mikil erlend samskipti. Mjög góð laun. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík bjóða nám sem veitir ungu fólki aðgang að þessum störfum. Íslenskt atvinnulíf árið 2015 óskar eftir... Félags- og mannvísindadeild Há- skóla Íslands stendur fyrir alþjóð- legri ráðstefnu í dag og á morgun í Odda. Þar verður fjallað um ýmsar hliðar efnahagskreppunnar frá sjónarhorni félagsvísindanna. Aðal- fyrirlesarar verða Karin Ho, lektor í mannfræði við Háskólann í Minne- sota, Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, og Fantu Cheru, prófessor við Upp- sala-háskóla. Boðið er upp á fjöl- breytta dagskrá þar sem fjallað er m.a. um siðferði, fjölmiðla, ímyndir, heilsu og afbrot í tengslum við efna- hagskreppuna. Rætt um kreppuna Á morgun, föstudag, ætlar Þor- steinn Jakobsson göngugarpur að ganga á 10 tinda á 13 klukkutímum til styrktar Ljósinu, endurhæf- ingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Tindarnir sem hann gengur á eru Stapatindar - Festarfjall - Þorbjörn - Keilir - Sandfell - Helgafell - Valahnjúkar - Húsfell - Búrfell - Esjan. Ljósið verður með opið hús að Langholts- vegi 43 meðan á göngunni stendur. Bylgjan verður með beina útsend- ingu þar sem fylgst verður með göngunni og söfnuninni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Keilir Þorsteinn göngugarpur hyggst ganga á tíu tinda á morgun. Gengur á 10 tinda Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti í fyrradag drög að áætlun til næstu 3 ára um hjólaleiðir í borginni. Tíu kílómetr- um verður árlega bætt við núver- andi hjólaleiðir í Reykjavík, hrað- braut fyrir hjól verður lögð milli Laugardals og miðborgar og brú verður gerð fyrir hjólandi og gang- andi yfir Elliðarárósa, yfir Grafar- vog. Á þessu ári er á dagskrá að klára tvöföldun Fossvogsstígs og að gera hjólaleið á Hofsvallagötu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjólað Hagur hjólafólks vænkast. Hraðbraut fyrir hjól úr Laugardal ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Nokkrar hnísur sáust á Pollinum að morgni dags í vikunni. Ekki sá ég þær en maður sem ég treysti lýsti því hvernig þær stukku listi- lega á milli þess sem þær skutust þvert yfir fjörðinn. Ég veit hvað þær voru að hnýsast; kannski að njósna fyrir andarnefjurnar sem voru hér fyrir nokkrum misserum.    Nemendur og kennarar Tónlistarskólans á Akureyri fóru í skrúðgöngu í gær í nepjunni, frá Hvannavöllum, þar sem skólinn er nú til húsa, að menningarhúsinu Hofi. Öllum hlýnaði um hjartarætur þegar inn var komið enda hús- ið glæsilegt. Þangað flyst starfsemin í sumar.    Ég nefndi endurbætur á andapollinum um daginn. „Svanavatnið (sem Akureyringar kalla af einstöku lítillæti sínu andapoll) hefur hlotið gríðarlega andlitslyftingu, er orðið snyrtilegt og hreint og nýjar þökur hamast við að skjóta rótum,“ segir Sverrir Páll á fésbókinni. Góð hugmynd. Tchaikovsky hlýtur að vera sama …    Jóhann Ingimarsson, Nói, og Kristján Eld- járn, tengdasonur hans, opnuðu um síðustu helgi málverkasýningu í Ketilhúsinu. Sýning þeirra tengdafeðga ber yfirskriftina Svarthvít sveifla – með litaívafi. Hún stendur til 6. júní.    Elstu nemendur allra leikskóla bæjarins heimsóttu Slökkvistöð Akureyrar á dögunum. Þá lauk árlegu verkefni, Loga og Glóð, krakk- arnir fengu að prófa alvöru brunaslöngu og skoða allar græjur liðsins. Hugsanlegt er að kveikt hafi verið í krökkunum þennan dag; að áhugi á því að starfa í slökkviliðinu hafi kvikn- að það er að segja …    Hvanndalsbræður verða með útgáfu- tónleika á Græna hattinum í kvöld og annað kvöld. Ekkert er til sparað og meira segja hef- ur verið fjárfest í nýjum sokkapörum á strák- ana, segir einn þeirra.    Ákveðið hefur verið að koma upp leik- fangasafni í Friðbjarnarhúsi, sem Góðtempl- arar á Akureyri gáfu bænum fyrir skömmu. Guðbjörg Ringsted ætlar að reka safnið í sam- vinnu við Minjasafnið á Akureyri og Akureyr- arstofu. Það verður án efa skemmtileg viðbót við mjög áhugaverða safnaflóru bæjarins. Hnísur að hnýsast Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Nú er lag Nemendur og kennarar Tónlist- arskólans tóku lagið í Hofi síðdegis í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.