Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Namm Þessi piltur gleymdi sér alveg í nammisælunni sem fylgdi sleikjónum. Lokaði bara augunum og missti væntanlega af boltanum sem kom fljúgandi yfir netið. En félaginn var viðbúinn vel. Kristinn Taívan var eitt fyrsta ríkið í Asíu sem kom á opinberri heil- brigðisþjónustu fyrir alla og var í farar- broddi landa sem náðu að búa til nýtt bóluefni gegn svínaflensunni. Heilbrigðiskerfi okkar er háþróað og langlífi íbúanna mikið, rétt eins og á Íslandi. Engu að síður á Taívan ekki greiða leið að upplýsingum um heil- brigðismál á alþjóðavísu. Eftir að forseti Taívans, Ma Ying- jeou, kynnti nýja stefnu sína um sveigjanleg samskipti við meg- inlandið fékk Taívan loks leyfi til taka þátt í störfum Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar (WHO) sem áheyrnarfulltrúi. Boð til okkar um slíkt hefur nú verið endurnýjað. Vissulega var það skref fram á við en aðeins hænuskref þar sem okkur er enn meinuð full aðild að fundum og ákvarðanatöku á vegum WHO. Stefna Taívans varðandi aðild að WHO á þessu ári er að:  Dregið verði úr hindrunum í vegi þess að Taívan taki fullan þátt í störfum stofnunarinnar. Taívan eigi þannig rétt á að sækja alla fundi á vegum WHO.  Taívan fái aðild að svæðis- skrifstofu WHO í Suðaustur-Asíu (WPRO). Öll nágrannalönd okkar eiga aðild að henni: Japan, Suður- Kórea og meginland Kína.  Matvælastofnun Taívans fái þátt- tökurétt í Alþjóðanetinu um fæðu- öryggi. Þær 23 millj- ónir sem byggja Taívan hljóta að eiga sama rétt og aðrir jarðarbúar á að búa við öruggt matvælaeftirlit. Það er ekki einungis hagur Taívans að fá að taka fullan þátt í öllum störfum WHO heldur einnig annarra ríkja að fá aðgang að sér- fræðiþekkingu Taív- anbúa. Sem dæmi má nefna að Taívan gaf bóluefni vegna svínaflensu að jafnvirði fimm millj- ónir Bandaríkjadala og tók virkan þátt í hjálparstarfinu eftir jarð- skjálftann mikla á Haiti. Sem fyrr segir var mikilvægt skref stigið með áheyrnaraðild Taív- ans að WHO. En nú er kominn tími til að stíga skrefinu lengra. Við von- um að íslenska þjóðin og stjórnvöld á Íslandi styðji ósk okkar um slíkt. Eftir Johnny Chang » Það er ekki einungis hagur Taívans að fá að taka fullan þátt í öll- um störfum WHO held- ur einnig annarra ríkja að fá aðgang að sér- fræðiþekkingu Taívan- búa. Jonny Chang Höfundur er ráðherra upplýsingamála á Taívan. Taívan og WHO? Múrinn féll og um leið lauk að miklu leyti þeim pólitísku átökum vinstri og hægristefnu sem höfðu einkennt stjórnmál á Vestur- löndum. Í stað þess að menn sættust á að hinn gullni meðalvegur væri farsælastur í póli- tík eins og öðru varð ný heimsmynd allsráð- andi. Alræði fjár- magnsins. Sú hugmyndafræði hafði verið prófuð áður og leitt til heims- kreppu og uppgangs öfgamanna. En þegar kommúnisminn féll var það gleymt (eða menn töldu samfélagið þróaðra en svo að óttast þyrfti end- urtekningu á áföllum fortíðar). Því urðu gömlu öfgarnar sem höfðu leitt af sér aðrar öfgar, aftur allsráðandi. Enn sem fyrr leiddu svo öfgarnar af sér hrun, ekki hvað síst á Íslandi. Nú sjást veruleg merki þess að ís- lenskt samfélag sé að sveiflast úr einum öfgum í aðrar. 1984 Á meðan stöðnun ríkir í efnahags- málum virðast stjórnvöld líta á ástandið fyrst og fremst sem tæki- færi til að endurvekja gamla hug- myndafræði og innleiða sósíalisma og aðrar pólitískar öfgar á ýmsum sviðum mannlífsins. Í stað þess að takast á við vandann af fagmennsku og á rökréttan hátt er vandinn nýtt- ur sem tækifæri til að raða inn vinstrisinnuðum emb- ættismönnum í stað þeirra hægrisinnuðu (án auglýsingar). Tím- inn er notaður til að gera pólitískar breyt- ingar í nafni „bylting- arinnar“ og óþægilega margt er farið að minna á skáldskap George Orwells. Boð og bönn eru allsráð- andi og eftirlit er aukið í stað þess að höfða til heiðarleika. Í stað þess að taka á vandamálum samtímans og skapa framtíðarsýn er athyglinni dreift með því að leggja alla áherslu á umræðu um fortíðina. Með því reyna menn að fela dugleysið til lausnar á vanda- málum samtímans. Skilaboðin Það er gríðarlega mikilvægt að við notum það tækifæri sem gefst í sveitarstjórnarkosningunum til að ná jafnvægi og senda um leið skýr skilaboð um að óbreytt ástand í stjórnmálum sé ekki viðunandi. – Ástand þar sem mikið er lagt í spuna en ekkert í aðgerðir. – Ástand þar sem sama fólk og hefur við- haldið algjörri stöðnun í atvinnu- málum leyfir sér að auglýsa „rjúfum kyrrstöðuna og sköpum vinnu“. Fagfólk Strax eftir efnahagshrunið réðst Framsókn í meiri endurnýjun og endurskoðun en dæmi eru um í ís- lenskri stjórnmálasögu. Sú breyting sem grasrótin stóð fyrir og hefur svo fylgt eftir um allt land sýnir að raunverulegar breytingar eru mögulegar og það er hægt að gera þær á grundvelli rökhyggju og fag- legra vinnubragða fremur en póli- tískra öfga. Framsóknarmenn um allt land leggja gríðarlega áherslu á að leysa skuli vandamál með aðstoð þeirra sem best þekkja til á hverju sviði en ekki á grundvelli flokka- pólitíkur. Það höfum við haft að leið- arljósi og þegið ráðgjöf frá inn- lendum og erlendum sérfræðingum um öll þau mál sem þarf að leysa og markað stefnu á grundvelli þeirrar ráðgjafar. Það átti jafnt við um af- stöðuna til skuldavanda heimilanna og Icesave-deilunnar og allt þar á milli. Leyfum þeirri endurnýjun sem hófst hjá elsta, og um leið yngsta, stjórnmálaflokki landsins að ná inn í sveitarstjórnir landsins. – Hvaða flokkur er betur til þess fall- inn að breyta stjórnmálunum en flokkur sem þorði að breyta sjálfum sér? Eftir Sigmund Dav- íð Gunnlaugsson » Tíminn er notaður til að gera pólitískar breytingar í nafni „bylt- ingarinnar“ og óþægi- lega margt er farið að minna á skáldskap George Orwells. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins Náum jafnvægi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.