Morgunblaðið - 27.05.2010, Page 25

Morgunblaðið - 27.05.2010, Page 25
Á síðustu 20 árum hefur verið mikil uppbygging á mannvirkjum undir menningarstarfsemi í Kópa- vogi og í þeim hefur farið fram mjög öflug og virk starfsemi. Fyrst skal telja Gerðarsafn, sem var tekið í notkun á vordögum 1994. En byggingin hafði staðið sem tóft í mörg ár fyrir 1990 þeg- ar núverandi meirihluti tók við í bæjarstjórn. Í Gerðarsafni hefur hver menningarviðburðurinn rek- ið annan óslitið frá opnun þess. Í janúar 1999 var tekið í notkun menningarhúsið Sal- urinn sem er 300 manna sérhannað tónlist- arhús með afburða hljómburði, hið fyrsta sinnar tegundar frá því að Hljómskálinn í Reykjavík var byggður fyrir stríð. Jónas Ingimundarson hefur lagt fram mikið starf til að lyfta menningarlífinu í Salnum og í verkefninu „Tónlist fyrir alla“ í grunnskól- unum og hefur fjöldi listamanna sóst eftir því að koma þar fram. Skömmu síðar var Tónlistarskólinn tekinn í notkun á þessum stað og síðar Bókasafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs í framhaldsbyggingum. Tónlist- arsafn Íslands og Molinn, menningarhús fyr- ir ungt fólk, voru tekin í notkun fyrir um tveimur árum og eru sambyggð myndarlegu bílastæðahúsi sem þjónar allri menningartorfunni og Kópavogskirkju. Það má nefna að nýja knatt- húsið í Kópavogi, Kórinn, var hannað og byggt með hljómburð í huga og þar er hægt að halda innitónleika fyrir um 15.000 áheyrendur. Með tilkomu þessara mannvirkja hefur þróast mjög öfl- ugt menningarlíf í Kópavogi svo sem Kópavogsdagar, sem eru haldnir á hverju vori um afmæli bæjarins, og tónleikaröðin Tíbrá, þar sem boðið hefur verið upp á heims- og lands- þekkta listamenn í sígildri tónlist, og hefur staðið yfir ár hvert frá hausti til vors. Á seinni árum hefur flutningur á vandaðri dægurtónlist aukist verulega og sækja lista- menn til Kópavogs til þess að halda tónleika. Undanfarin ár hefur verið haldin menn- ingarhátíð á hverju hausti þar sem eitt land er tekið fyrir og menning þess lands er kynnt. Sjálfstæðisflokkurinn er því ekki bara malbiks- og steypuflokkur heldur líka menn- ingarflokkur. Kópavogur er menningarbær Eftir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæj- arstjóri í Kópavogi. Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Foreldrar lítilla barna vita að örugg vistun fyrir börn þeirra er forsenda fyrir því að fjölskyldulífið gangi eðlilega fyrir sig. Þá stað- reynd höfum við sjálfstæðismenn í borgarstjórn haft að leiðarljósi enda hafa valkostir fyrir foreldra barna á leikskólaaldri í dagvist- armálum í Reykjavík aldrei verið fleiri. Um 6800 börn eru í leik- skólum auk þess sem um 800 börn eru hjá dagforeldum og 700 fá þjón- ustutryggingu. Reykjavíkurborg hefur ávallt haft mikinn metnað í leikskólamálum en útgjöld til leik- skólamála 2010 eru um 7% hærri að raungildi en 2006. Allir sem starfa með ungum börnum í Reykjavík leggja metnað sinn í að hlúa að börnum og sjá til þess að þau búi við öruggt og örvandi umhverfi. Við vitum líka að ánægð börn eiga ánægða foreldra. Ánægja foreldra með leikskóla Reykjavíkur hefur aukist en 95% foreldra eru ánægð með leikskóla borg- arinnar. Á síðustu árum hefur fagmenntuðu starfsfólki fjölgað, þrír nýir leikskólar verið opnaðir, ný sérkennslustefna búin til og samn- ingar við nítján sjálfstætt starfandi leikskóla undirritaðir. Nú eru leik- skólagjöld almennt niðurgreidd um 90% af sjóðum borgarinnar en leik- skólagjöld lækkuðu um 25% á kjör- tímabilinu og námsgjald fellt niður fyrir systkini. Í maí var svo tekin ákvörðun um fjölgun leikskólarýma til að tryggja að öllum börnum, sem verða tveggja ára á þessu ári, standi leikskólavistun til boða í haust. Þá hefja 1400 börn leik- skólagöngu sína en aldrei hafa fleiri leikskólabörn fengið þjónustu í borginni en nú. Ekkert af ofangreindu er sjálfgefið og hefur krafist óeigingjarnar vinnu embættismanna, starfsmanna leikskóla og borgarfulltrúa. Staða leikskólamála í Reykjavík er frábær og eru nú starfræktir um hundrað afar metnaðarfullir skólar. Staðan er síður en svo sjálfsögð og framundan eru tímar þar sem nauðsynlegt verður að halda vel á spöðunum til að þjónusta við yngstu börnin skerðist ekki. Það er mik- ilvægt að leggjast á árarnar fyrir börnin og foreldra þeirra og tryggja uppbyggingu með fagmennsku og öryggi að leiðarljósi. Ánægð börn – ánægðir foreldrar Eftir Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi. Á kjördag, hinn 29. maí, gefst kjósendum á Seltjarnarnesi tæki- færi til að hverfa frá venjum og velja nýjan listabókstaf í kjörklefanum. B-listi Framsóknar og óháðra hefur undanfarnar vikur barist af krafti og unnið ötullega við að upplýsa Sel- tirninga um fjármálastöðu bæj- arfélagsins. Þessari viðleitni B-lista hefur verið afar vel tekið og margir hafa skoðað stöðuna með þeim gögn- um sem liggja fyrir í ársreikningum og á vefsíðu bæjarins. Ég hvet alla Seltirninga til að kynna sér menn og málefni og ennfremur að setja X við B á kjördag. Skipulagsmál í sátt við bæjarbúa Virkt íbúalýðræði sem byggist á aukinni þátttöku bæjarbúa í skipulagsmálum er afar mikilvægt svo komist verði hjá deilum bæjaryf- irvalda við íbúa á þeim vettvangi. Bærinn þarf að móta skýra heildarstefnu í skipulagsmálum til framtíðar. Huga þarf sérstaklega að umferð- armálum bæjarins, þá einkum umferðarhraða á stofnbrautum svo og fjölgun vistgatna til að tryggja öryggi vegfarenda. Þjónustugjöld leikskóla á Seltjarnarnesi eru umtalsvert hærri en tíðkast í sveitarfélögunum í kring. Ljóst er að koma þarf betur til móts við barnafjölskyldur með sanngjarnari þjónustugjöldum. Einnig þarf að standa vörð um að barnmargar fjölskyldur njóti áfram sanngjarns systkinaafsláttar. Flest- um ætti að vera í fersku minni hækkun á síðasta ári sem síðar var dregin til baka. Farsæll rekstur Góð fjárhagsáætlun er grundvöll- ur fyrir farsælan rekstur og afar brýnt er að fara rækilega ofan í kjöl- inn á gerð fjárhagsáætlunar. Tryggja þarf aðkomu starfsnefnda bæjarins að þessari vinnu, í auknum mæli, ásamt því að gefa bæjarbúum kost á þátttöku. Skilvirk og gegnsæ stjórnsýsla Til að ná markmiðum um gegnsæja og lýð- ræðislega stjórnsýslu er brýnt að bæjarráði verði komið á fót til að fara með framkvæmda- og fjármálastjórn ásamt embættismönnum bæjarins. Setja þarf skýra upplýsingastefna fyrir Seltjarnarnes sem miðar að óheftu að- gengi bæjarbúa að upplýsingum um stöðu mála. Kristján Þorvaldsson Kristján Þorvaldsson Höfundur skipar 2. sæti á B-lista Framsóknar og óháðra. Raunhæfur valkostur á Nesinu Kosningarnar 29. maí eru ekki síð- ur mikilvægt uppgjör við hrunið en alþingiskosningarnar fyrir ári. Nokk- ur sveitarfélög og samtök þeirra hafa nú stigið markviss skref í þá átt með því að ákveða að gera sambærilega skoðun á sjálfum sér og gerð var fyr- ir Alþingi. Það sýnir kjark og vilja til að breyta um vinnubrögð. Rannsóknarskýrsla í Kópavogi Kópavogur þarf líka á slíku upp- gjöri að halda. Hér þarf líka kjark til að líta í spegil, kjark til að endurmeta ákvarð- anir og þá hugmyndafræði sem bjó að baki. Gamaldags vinnubrögð við stjórn og ákvarð- anatöku eiga ekki lengur við. Nútíminn kallar á gegnsæi og opna stjórnsýslu. Vinstri græn í Kópavogi hafa lagt til að gerð verði sambærileg úttekt á aðdraganda hrunsins og ákvarð- anatöku og verklagi við stjórn bæjarins. Við- tökur meirihlutaflokkanna, sem hafa stjórnað frá seinni hluta síðustu aldar, vekja furðu, ef ekki grunsemdir. Hvað óttast hrunflokkarnir? Hvað veldur því að menn vilja ekki láta skoða byggingu Kórsins, kaupin á Glaðheimalandinu, uppfyllingar á Kársnesi og skipu- lagsmál, framkvæmdir í Heið- mörk, lóðaúthlutanir, stjórn lífeyr- issjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, kaup á Vatns- endalandi, mannaráðningar og margar fleiri ákvarðanir? Til að hægt sé að horfa til framtíðar og byggja upp kröftugt og heilbrigt samfélag verðum við að þora að líta til baka og endurmeta vinnu- brögð. Hrunflokkarnir hafa dregið lappirnar og ekki þorað að taka ákvörðun um rannsóknarskýrslu í Kópavogi. Hvað hafa þeir að fela, hvað óttast þeir? Verði sami meirihluti áfram við völd í Kópavogi er líklegt að þeirra fyrsta verk eftir kosningar verði að hafna öllum hug- myndum um rannsókn. VG vill ný vinnubrögð Laugardaginn 29. maí verður ekki bara kos- ið um stefnu eða hugmyndafræði. Kosning- arnar snúast ekki síður um uppgjör við stjórn síðustu 20 ára. Sterk staða VG eftir kosningar tryggir að gamli meirihlutinn falli og ný vinnu- brögð við stjórn bæjarins taki við. Kópavogur á betra skilið en hrunflokkana Eftir Ólaf Þór Gunnarsson Ólafur Þór Gunnarsson Höfundur er bæjarfulltrúi VG í Kópavogi og oddviti V-listans. Mannúðarsamtökin AGS vilja losa okkur við áþján eignarhalds og ábyrgð þess að stjórna okkur sem sjálfstætt land. Eignaupp- taka í formi skuldsetningar er á dagskrá. Auðlindirnar finna sér nýja málsvara og náttúran týnir sínum. Ef við veitum ekki mót- spyrnu og setjum mikla fjarlægð á milli okkar og AGS fljótlega verður þetta of seint. Erlendir fjárfestar Kjarninn í deyfandi röksemdum AGS er að Ísland þurfi erlenda fjárfesta. Það er augljóst að fyrir fjárfestingar sínar vilja fjárfestarnir fá eignir. Þessar eignir verða líka í formi auðlinda og einkaréttar á nýt- ingu þeirra. HS-Orka verður aldrei aftur í íslenskri eigu. Orkuveita Reykjavíkur var 5 mínútur frá því að fara sömu leið. Inn- streymi fjármagns merkir líka útstreymi eigna. Kjósendur hafa vald Valdið liggur hjá kjósendum. Það er hins vegar svo hryggilegt að fólk forðast að horfast í augu við það augljósa. Það er gott og blessað að snúa baki við gömlum stjórnmálamönnum eða stjórnmálaöflum, en að halda að það sé í boði að snúa baki við stjórnmálum spilar beint upp í fangið á AGS og þeim pen- ingaöflum sem land okkar ásæl- ast. Það er þessi doði sem hrað- ar ferli sem með óbreyttri stefnu vart mun taka meira en 12 mánuði til að ekki verði aftur snúið. Hvar liggja þá lausnirnar? Lausnar er að leita í því að við segjum hingað og ekki lengra. Lausnin liggur í því að við verjum okkar land. Lausnin liggur í því að við eflum okkar atvinnulíf. Lausnin liggur í því að við minnkum kostnað í opinberum rekstri, án þess að skerða þjónustu. Lausnin liggur ekki í því að varpa velferðarkerfinu fyrir róða. Lausnin liggur í því að við þvertök- um fyrir það að greiða staka krónu í Ice- save. Lausnin liggur í því að við aukum fiskveiðar. Lausnin liggur í því að við leit- um okkar vina sem hald er í. Lausnin ligg- ur í því að við hreinsum til í stjórnsýsl- unni. Lausnin liggur í því að við lögleiðum íslenskt eignarhald á auðlindum okkar. Lausnin liggur í aukinni sjálfbærni. Lausnin liggur í sterku menntakerfi. Lausnin liggur í okkur sjálfum. Þeir sem landið ásælast Eftir Harald Baldursson Haraldur Baldursson Höfundur er tæknifræðingur og skipar 2. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík Jón Gnarr virðist ætla að sigra í kosningunum á laug- ardaginn. Það er mér ekki á móti skapi að fjórflokkurinn hljóti afhroð, innistæða þeirra er engin vegna slælegrar frammistöðu fyrir og eftir hrun. Það sem mér sárnar er að sett sé samansemmerki milli mín og fjórflokksins hjá kjósendum. Frjálslyndi flokkurinn var sífellt að vara við skuldunum og benda á aðrar leiðir til tekjuöflunar fyrir þjóðina en þá bankaleið sem valin var. Því miður var ekki hlustað á okkur. Eftir töluverða endurnýjun í röðum okkar bjóðum við fram í Reykjavík í fyrsta skiptið ein og án samvinnu við önn- ur stjórnmálaöfl. Í síðustu alþingiskosn- ingum reyndum við að vera raunsæ og ræddum skuldastöðuna, niðurskurðinn, Icesave og fleira slíkt. Okkur var drekkt í kosningaloforðum fjórflokksins sem forð- uðust alla alvarlega umræðu um það sem biði þjóðarinnar. Þess vegna skil ég vel hugsun Jóns Gnarr með framboði sínu, ef fólk keypti slíkt rugl á sínum tíma má sjálfsagt selja því hvað sem er. Gott bros og gleði er sjálfsagt mun betra en innantóm kosn- ingloforð fjórflokksins. Aftur bjóðum við Frjálslyndir okkur fram og aftur bjóðum við upp á umræðu um þær hættur sem þjóðin stendur frammi fyr- ir. Við teljum að gagnrýnislaus eftirfylgni við stefnu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins muni valda miklum niðurskurði á velferð, atvinnuleysi, landflótta og sölu auðlinda til einkaaðila. Við teljum að þessi skilningur á orsökum fá- tæktar í Reykjavík sé nauðsynlegur í borgarráði. Það er til lítils að safna brauðmolum handa hungruðum meðan AGS fær að leika lausum hala og skapar dýpri kreppu í landinu. Nær væri að koma böndum á hugmyndafræði sjóðsins og fylgisveina hans hér á landi. Þess vegna bíð ég mig fram, kæri kjós- andi, þitt er valið, það er ekki víst að annað tækifæri komi fyrir okkur, þig og mig. Þitt er valið, kæri kjósandi Eftir Helgu Þórðardóttur Helga Þórðardóttir Höfundur er oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.