Morgunblaðið - 27.05.2010, Page 26

Morgunblaðið - 27.05.2010, Page 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Fyrirspurn til frambjóðenda til sveitarstjórnarkosn- inga um ætlaða fram- tíðarsýn varðandi samhæfingu núver- andi og fyrirhugaðra samgöngumannvirkja með tilliti til fyrrver- andi, núverandi og til- vonandi samgöngu- aðferða almennings. Eins og allir vita hefur þjóðin íslenska mátt þola ýmislegt mis- jafnt í því efnahagslega hruni sem dynur yfir um þessar mundir. Ým- islegt hefur verið sagt og ýmsu verið lofað af ráðamönnum en inn- heimtumenn virðast hafa frjálsar hendur við upptöku eigna hjá að því er virðist fórnarlömbum brota- bankamanna og húseignir og síð- ast en ekki síst bílar vörslusviptir og boðnir upp án þess að stjórn- völd svo mikið sem blikki aug- unum. Nú í tilefni þess að almenningur fær að lötra í kjörklefana til að setja X-ið sitt við þann illskásta valkost sem viðkomandi telur að í boði sé er ekki úr vegi að einhver taki af skarið og spyrji þá fram- bjóðendur sem á listunum eru hver þeirra framtíðarsýn sé varð- andi hestvagnaslóða innan bæj- armarka og ekki síður borg- armarkanna því ekki er víst að allt sé sem sýnist í þessum málaflokki. Mikið hefur verið rætt um reið- hjól og reiðhjólastíga undanfarið og átak eins og Hjólað í vinn- una verið uppi á pall- borðinu en hestvagna- slóðar og reiðstígar hafa ekki verið nefnd- ir að því er undirrit- aðan reki minni til þrátt fyrir töluverða hrossaeign lands- manna. Kannski telur enginn lengur þörf á þessum gerðum sam- gönguleiða þar sem hestar og hestvagnar hafa ekki verið ýkja sýnilegir innan bæjarmarka og hvað þá borgarmarkanna und- anfarin misseri nema stöku hross innan hesthúsahverfanna. Undirritaður telur þónokkrar líkur á að breyting muni verða þar á enda telur undirritaður að stefna bæði núverandi og undanfarandi stjórnvalda varðandi almenna bíl- eigendur, heimilin, skuldara, at- vinnubílstjóra og almennings- samgöngur sé með þeim hætti að einungis sé spurning um hvort komi á undan eggið eða hænan, eða sem sagt í þessu tifelli hest- vagnarnir eða hestvagnaslóðarnir. Undirritaður telur einnig að sú umræða sem farin er af stað varð- andi „grænar“ samgöngur eigi einkar vel við hestvagna ásamt því sem yfirdrifin ræktun á eldsneyti á hin einungis eins hestafls fyr- irbæri sem knýja vagnana verið stunduð af kappi árum saman á umferðareyjum og hvar sem auður blettur fyrirfinnst þó allir séu auð- vitað löngu búnir að gleyma upp- haflegum tilgangi áðurnefndrar ræktunar. Miðað við núverandi samgönguaðferðir almennings ætti að vera löngu búið að skipta yfir í ræktun er hentaði betur núver- andi allsráðandi mergsjúgandi blikkbeljum, svo sem repju enda orðið auðvelt að vinna gjaldeyr- issparandi repjuolíu úr þeirri plöntu. Einfaldari leiðin er þó að stuðla að nýtingu núverandi elds- neytisræktunar með gerð fullkom- ins vagnslóðakerfis og samnýta mætti þá aðgerð með gerð sam- liggjandi reiðhjólastígakerfis. Brýnt er að móta stefnu í þess- um málum áður en bylgja lang- þreyttra atvinnulausra eigna- sviptra bíleigenda flykkist af stað að sinna erindum sínum á heima- smíðuðum vögnum sínum dregn- um af dritandi fyrrum en einnig líklegasta tilvonandi þarfasta þjón- inum og mikilvægt að afstaða frambjóðenda komi skýrt fram í þessu þjóðþrifamáli svo hægt verði að forðast skammsýnustu valkostina þegar í kjörklefann er komið. Athugasemdir og svör berist á www.moldarkofi.blog.is. Eftir Björgvin Kristinsson »Miðað við núverandi samgönguaðferðir almennings ætti að vera löngu búið að skipta yfir í ræktun er hentaði bet- ur núverandi allsráð- andi mergsjúgandi blikkbeljum, svo sem repju … Björgvin Kristinsson Höfundur er leigubílstjóri. Slóðaframboð Tillögum sjáv- arútvegsráðherra um að loka sjö fjörðum á norðanverðu landinu fyrir dragnótaveiðum hefur formlega verið mótmælt í bréfi sem skipstjórar, sjómenn og útgerðarmenn dragnótabáta á Snæ- fellsbæ hafa afhent ráðherra. Það ber enda hvorki vott um upplýsta stjórnsýslu né fagleg vinnubrögð að leggja fram tillögur af þessum toga án minnsta samráðs við þá sem málið varðar. Á tyllidögum vísar sjávarútvegs- ráðherra stundum til þess að horfa þurfi til tillagna Hafrannsóknastofn- unarinnar. Það kemur því spánskt fyrir sjónir að skýrslu, sem umrædd stofnun gerði á áhrifum dragnóta- veiða á botndýralíf í Skagafirði, hef- ur lítt verið flaggað af hálfu ráð- herra. Niðurstöður skýrslunnar eru mjög afgerandi: „Þær niðurstöður sem fengust í þessari rannsókn benda ekki til að dragnótin hafi áhrif á botndýralíf í Skagafirði.“ Kannski var þetta ekki niðurstaðan sem beðið var eftir? Engin áhrif á fiskgengd Þeir sem gera út á dragnót hafa um langt árabil setið undir áróðri sem einkum er rekinn af smábáta- sjómönnum. Þar hafa röksemdir iðulega vikið fyrir vanþekkingu og fordómum. Þar sem við stundum veiðar í Breiðafirði sjást þess engin merki að dragnótin hafi dregið úr fiskigengd, hvort heldur veitt er með línu, handfærum, netum eða dragnót. Samstarf við þá sem gera út á net og línu hefur verið mjög gott enda nægt rými fyrir alla. Árekstrar við þá sem nota önnur veiðarfæri eru hverfandi því dragnótin er í raun víkjandi veiðarfæri. Hún er svo til eingöngu notuð í björtu og þá eru aðrir búnir að leggja sín veiðarfæri þar sem þeir kjósa. Dragnótin er vistvænt veiðarfæri, sem ein- vörðungu er notuð á sand- eða malarbotni sem sífellt er á hreyf- ingu undan straumum og sjávarföllum. Þau litlu ummerki, sem dragnótin skilur eftir sig á botninum, hverfa því jafnharðan. Bryggjurómantík og gæluverkefni Algjört hrun hefur orðið á svo- kölluðum vertíðarflota undanfarin ár og áratugi. Floti sem taldi 450- 500 báta fyrir 30 árum telur nú að- eins nokkra tugi. Stór hluti þessara báta hefur stundað dragnótaveiðar vegna hagkvæmni þeirra. Kvóta- skerðing í þorski og ýsu hefur leikið þessar útgerðir grátt og þær gjalda nú fyrir þá bryggjurómantík og gæluverkefni sem notuð eru til at- kvæðaveiða. Nái tillögur ráðherra fram að ganga um víðtækar lokanir veiði- svæða fyrir dragnótabátum er verið að stuðla að endanlegri útrýmingu þeirra. Ég skora á sjávarútvegs- ráðherra að draga tillögur sínar til baka. Eftir Baldur Frey Kristinsson Baldur Freyr Kristinsson »Dragnótin er vist- vænt veiðarfæri, sem einvörðungu er not- uð á sand- eða mal- arbotni sem sífellt er á hreyfingu undan straumum og sjáv- arföllum. Höfundur er útgerðarmaður drag- nótabáts á Snæfellsnesi og stjórn- armaður í Félagi dragnótamanna. Tillögur um bann við dragnótaveiðum verði dregnar til baka Undanfarin ár hafa landeigendur við Reynisvatn og Langa- vatn í nágrenni Hólmsheiðar orðið að þola ótrúlega vald- níðslu af hálfu Reykja- víkurborgar. Land þeirra hefur verið tek- ið undir vegi, landnýt- ingu hefur verið breytt og landgæði hafa verið skert. Um leið hefur eigendum verið meinað að njóta og nýta eignir sínar sem þeir þó hafa greitt fyrir fullu verði. Engu skiptir þó að landeigendur hafi reynt að leita lögformlegra úrræða og sækja rétt sinn fyrir þar til bær- um aðilum, starfsmenn borgarinnar hafa haldið áfram aðgerðum sínum eins og ekkert hafi í skorist. Upphaf þessa máls má rekja til þess að árið 2001 óskaði borg- arskipulag eftir því við borgarráð að fá að útbúa nýjan og risavaxinn jarðvegslosunarstað á Hólmsheiði sem fram að því hafði verið talin hluti af vatnsverndunarsvæði Reykjavíkurborgar. Ljóst var að þessi ákvörðun myndi hafa gríðarleg áhrif á landnýtingu þeirra sem höfðu keypt land þarna í nágrenninu í gegnum tíðina út frá þeirri vissu að þarna væri um að ræða friðland eins og gert var ráð fyrir í aðalskipulagi. Landeigendur mótmæltu strax ákvörðuninni og hafa síðan barist við stofnanir og emb- ættismannakerfi borg- arinnar sem hafa jafnt og þétt valtað yfir rétt- indi og eignir landeig- enda. Í dag er svo komið að landgæði hafa rýrnað veruleg vegna nýrra vega, jarðvegsfoks og aukinnar umferðar. Landeigendur sitja uppi með fjölda úr- skurða frá þar til bær- um stjórnvaldsaðilum sem staðfesta rétt þeirra en það hef- ur engin áhrif á yfirvöld og starfs- menn borgarinnar. Áfram er haldið og landið rýrnar með hverju árinu um líður og borgin meðhöndlar það eins og sitt eigið. Umgengni er slík að það er til mesta vansa. Þunga- vinnuvélar aka um landið og jarð- vegsumrót hefur í för með sér mikla loftmengun. Það sem átti að vera sælustaður er nú að breytast í minn- ingarreit um öfgar framkvæmda- hyggju sem engu eirir. Eftir Guðmund Skúla Johnsen Guðmundur Skúli Johnsen » Það sem átti að vera sælustaður er nú að breytast í minningarreit um öfgar framkvæmda- hyggju sem engu eirir. Höfundur er framkvæmdastjóri og er áhugamaður um umhverfisvermd. Sælureit fórnað –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Þann 4. júní gefur Morgunblaðið út stórglæsilegt Garðablað. Garðablaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill. Stílað verður inn á allt sem viðkemur því að hafa garðinn og nánasta umhverfið okkar sem fallegast í allt sumar. MEÐAL EFNIS: Skipulag garða. Garðblóm og plöntur. Sólpallar og verandir. Hellur og steina. Styttur og fleira í garðinn. Garðhúsgögn. Heitir pottar. Útiarnar Hitalampar. Útigrill. Ræktun. Góð ráð við garðvinnu. Ásamt fullt af spennandi efni. Gar ðab laði ð NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 31. maí. Garðablaðið Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.