Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Ég man þegar við spiluðum ka-
nöstuna endalausu úti á Kanarí. Ég
man þegar við bökuðum lummur
uppi í sumarbústað. Ég man hvern-
ig við hlógum alltaf svo dátt. Elsku
amma, ég man svo ótrúlega margt
og gott þar sem þú hefur komið við
sögu. Þú varst ætíð öllum góð.
Ég minnist þess hve lífsglöð og
bjartsýn þú varst. Ég man þegar
þú hringdir um miðja nótt og sagð-
ist vera stödd við höfnina, slökkvi-
liðið væri á leiðinni og það væri
bráðnauðsynlegt að ég léti mömmu
vita af hremmingum þínum. Þegar
ég sagði þér frá þessu daginn eftir
að þú hefðir hringt í mig í óráði um
miðja nótt, hefði flestum ekki litist
á blikuna og haldið að nú væri þeim
öllum lokið. Þú, kæra amma, skelli-
hlóst og gantaðist með hve ruglaður
maður gæti verið á næturnar. Þú
veitir mér eilífan innblástur, bjart-
sýni mína og lífsgleði á ég þér að
þakka.
Elsku amma, þú ert á góðum
stað núna, einn daginn hittumst við
aftur, spilum kanöstu, hlæjum og
bökum lummur saman.
Ég mun ávallt sakna þín.
Þitt barnabarn,
Jóhann Páll Jónsson.
Ég var fyrst kynnt fyrir Ingunni
í sumarbústaðnum hennar skammt
frá Flúðum. Hún tók mér opnum
örmum, bakaði pönnukökur og
sýndi mér gamlar ljósmyndir af
fjölskyldunni. Alveg frá þessum
fyrstu kynnum hefur Ingunn átt
sérstakan stað í hjarta mínu. Oft
hittumst við og spjölluðum saman
um heima og geima, hvort sem það
var í hádeginu heima hjá henni eða
annars staðar. Þetta voru mér dýr-
mætar stundir. Frá fyrsta degi tók
hún mér sem einni af fjölskyldunni,
sem skipti mig miklu.
Þegar börnin mín fæddust fylgd-
ist Ingunn vel með og það var
ánægjulegt að sjá hversu mikið hún
naut samvistanna við barnabarna-
börnin. Ég vil þakka Ingunni fyrir
yndislegan tíma og þá óeigingirni
sem hún sýndi mér í öllum sam-
skiptum frá fyrsta degi.
Börnin okkar spyrja mikið um
langömmu sína og reyna að skilja
örlög okkar allra. Guðrún Klara
hefur strax sagst sakna langömmu
sinnar og Kristján Dagur teiknaði
fyrir þig mynd af englunum sem
eiga að passa þig og fór með í
kistuna þína.
Guð geymi þig, Ingunn mín.
Þórhildur Garðarsdóttir.
Leiðir okkar Ingunnar lágu fyrst
saman þegar ég kynntist Valdimar
mínum fyrir um tíu árum. Það er
margs að minnast og margt að
þakka. Ingunn var einstaklega góð
kona, vel greind og afar glögg á
menn og málefni. Samverustundir
með Ingunni voru því afar ánægju-
legar og munum ég og fjölskylda
mín varðveita þær í hjörtum okkar
um ókomna framtíð. Ást Ingunnar
og umhyggja í garð Valdimars var
mikil og yfirfærði Ingunn þá um-
hyggju yfir á fjölskyldu hans og
fyrir það er ég henni óendanlega
þakklát.
Þú ert það, sem þú öðrum miðlað
getur,
og allar þínar gjafir lýsa þér
og ekkert sýnir innri mann þinn bet-
ur
en andblær hugans, sem þitt viðmót
ber.
Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur
og lífið daprast, ef hún ekki skín,
svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur
og undir því er komin gæfa þín.
(Árni Grétar Finnsson)
Megi björt minning lýsa vegferð
þeirra sem mest hafa misst við frá-
fall Ingunnar og góður Guð vaka
yfir afkomendum hennar.
Blessuð sé minning Ingunnar Ás-
geirsdóttur.
Með kveðju og þakklæti.
Anna Guðrún Árnadóttir.
Tíminn er fugl sem flýgur hratt
og fyrr en varir stöndum við á
bakka móðunnar miklu, sem skilur
milli lífs og dauða. En ferðina þá
verður hver og einn að fara einsam-
all, og eftir standa ástvinir með
þungan trega, en þakklæti í hjarta
fyrir líf og ævidaga þess vinar sem
kvaddur er.
Í dag sjáum við á bak Ingunni
Ásgeirsdóttur, minni elskulegu vin-
konu, og hefur okkar vinátta staðið
í rúma hálfa öld – í fimmtíu ár –
sem þó hafa liðið svo undrafljótt.
Fundum okkar bar fyrst saman á
þeim árum, þegar ungir atgervis-
menn stofnuðu hér nýjan flokk,
Þjóðvarnarflokkinn, til framdráttar
sínum hugsjónum og ættlandinu til
heilla. Þá var orðræða ungra
manna í pólitík mjög á annan veg
en nú tíðkast, baráttumálin ólík og
forsendur allar aðrar. Formaður
flokksins og aðalhugmyndasmiður
var eiginmaður Ingunnar, Valdimar
Jóhannsson bókaútgefandi. Margir
gáfaðir ungir menn stóðu að Þjóð-
varnarflokknum, en aðalsamkomu-
staður þeirra var heimili þeirra
hjóna sem þá var á Skeggjagötunni.
Var þar margt spjallað og ákafar
umræður um landsins gagn og
nauðsynjar. Ingunn stóð fyrir hús-
haldinu með glæsibrag og skör-
ungsskap og hafa það oft verið
annasamir dagar.
Og þær urðu margar gleðistund-
irnar í húsi þeirra Ingunnar og
Valdimars á árunum sem á eftir
komu. Alltaf ríkti þar sama ljúfa
gestrisnin og alltaf var jafngaman
að spjalla við húsráðendur um
hvaðeina enda linnti þar ekki gesta-
komum þótt árin liðu.
Þegar Þjóðvarnarflokkurinn bar
ekki lengur sitt barr, urðu umsvif
þeirra Ingunnar og Valdimars
meiri á öðrum vettvangi en þjóð-
málanna, einkum við bókaútgáfu og
ýmis mál þar að lútandi, en í þeim
efnum voru þau hjón í fararbroddi
og gerðu garðinn frægan.
Seinna fluttust þau í önnur hús
og stærri en verið hafði og umsvifin
jukust á forlaginu og lagði Ingunn
þar sköruglega hönd á plóginn eins
og hennar var háttur.
Og heimili þeirra hjóna hélt
áfram að vera eitt skemmtilegasta
hús í bænum, en þar var líka griða-
staður og þar var gott að koma á
erfiðum stundum, því þar var vin-
um að mæta. Ég get ekki stillt mig
um að nefna hér sumarbústaðinn
sem þau Ingunn komu sér upp fyrir
austan í grennd við Hruna. Þar
ræktuðu þau upp landið og töfruðu
fram yndislegan trjágróður og
blómskrúð og eins og sagt var í
gamla daga „Þar gala gaukar og
þar spretta laukar“ í sveitasælunni.
Eftir lát Valdimars breyttist líf
minnar góðu vinkonu, en Ingunn
hélt sinni fyrri reisn og sínum
myndarbrag og fallega heimilið
hennar stóð enn sem fyrr opið vin-
um og vandamönnum.
Stundum fannst mér hún Ingunn
eins og hallarfrú sem sagt er frá í
riddarasögum – enda var hún
glæsileg kona svo af bar – og í fari
hennar einhver látlaus háttprýði,
sem er sjaldséð. Vinátta hennar og
þeirra hjóna hefur verið mér ómet-
anleg; þau hafa stutt mig og glatt
mig í öll þessi ár og vil ég nú að
lokum þakka þessa löngu góðu
samfylgd, og um leið óska ég elsku-
legum börnum og afkomendum
þeirra Ingunnar og Valdimars allr-
ar blessunar um ókomna tíð og
þakka einnig þeim góða vináttu.
Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR B. SVANBERGSSONAR
fyrrverandi vatnsveitustjóra,
Eyrarlandsvegi 33,
Akureyri.
Ásta S. Jónsdóttir,
Guðrún E. Sigurðardóttir,
Smári S. Sigurðsson, Nanna K. Sigurðardóttir,
Hrafn Ó. Sigurðsson, David N. Ekström,
Sigurður A. Sigurðsson, Harpa Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ANNA GUNNARSSON,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 25. maí.
Bjarni Gunnar Sveinsson, Júlía Leví,
Magnús Þorsteinsson, Kristín Sigurðardóttir,
Sigurður Þorsteinsson, Aldís Gunnarsdóttir,
Herdís Þorsteinsdóttir, Finnur Kristinsson,
Anna Hedvig Þorsteinsdóttir, Gunnar Svavarsson,
Ásmundur Sigvaldason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR B. FINNBOGASON,
Eiðismýri 30,
Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum föstudaginn 21. maí.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 28. maí kl. 13.00.
Kristjana Jónsdóttir,
Guðrún Hildur Ingimundardóttir,
Finnbogi B. Ólafsson, Þórleif Drífa Jónsdóttir,
Ólafur Haukur Ólafsson,
Valdimar Ólafsson, Margrét Steinunn Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
HELGA VILMUNDARDÓTTIR,
Álfhólsvegi 25,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 19. maí.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 28. maí kl. 15.00.
Gunnhildur J. Gunnarsdóttir,
Hlífar V. Helgason, Lísa María Hjartardóttir,
Sindri Snær Snorrason,
Gunnhildur V. Friðriksdóttir, Vilmundur Þorsteinsson,
Þorsteinn J. Vilmundarson,
Oddur F. Vilmundarson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JENNÝ JÓNSDÓTTIR,
Hæðargarði 29,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir á hvítasunnudag
23. maí.
Að ósk hinnar látnu fer útförin fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Íslands og Minningarsjóð
Bústaðakirkju.
Valdís Antonsdóttir,
Úlfar Antonsson, Siv Oscarsson,
Jón Axel Antonsson, Magnfríður Halldórsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur.
✝
Bróðir minn, vinur og frændi,
SIGURÐUR GÍSLASON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
áður til heimilis í Bakkagerði 14,
lést laugardaginn 22. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
28. maí kl. 15.00.
Guðmundur B. Gíslason,
Eygló Ragnarsdóttir,
Ágúst Ingi Jónsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð, stuðning og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu,
SIGFRÍÐAR THEÓDÓRSDÓTTUR BJARNAR
kennara,
áður til heimilis
Fannborg 8,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks Sunnuhlíðar og heima-
hjúkrunar í Kópavogi fyrir góða umönnun og styrk.
Theódór Skúli Halldórsson, Ólöf Helga Pálmadóttir,
Gunnlaugur Halldórsson, Cécile Gaillot,
Sigfríður Guðný Theódórsdóttir,
Pálmi Ólafur Theódórsson, Birgitta Strange.
✝
Ástkær eiginkona min, móðir og tengdamóðir,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR EGGERTSDÓTTIR,
Bíbí,
áður til heimilis að Gnoðavogi 32,
lést á Sunnuhlíð föstudaginn 7. maí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigdór Helgason,
Björk Sigdórsdóttir,
Birgir Sigdórsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Helga Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.