Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Ísland er ekki eina landið þar semtrúverðugleikavandi steðjar að
stjórnmálum. Í Rússlandi logar allt
þessa dagana vegna frekar óvenju-
legra mynda úr þinginu. Þar sjást
þingmenn hlaupa á milli sæta og
styðja á atkvæðahnappa fjarverandi
félaga sinna.
x x x
Myndirnar eru frá 19. maí. Til af-greiðslu var frumvarp um ölv-
unarakstur. Það var samþykkt eftir
fyrstu umræðu og tóku 440 þing-
menn þátt í atkvæðagreiðslunni.
Gallinn var sá að aðeins 88 þing-
menn voru mættir. Þeir voru hins
vegar mjög atkvæðamiklir. Í rúss-
neska þinginu hafa þingmenn tutt-
ugu sekúndur til að styðja á hnapp-
inn. Sjónvarpsstöðin Ren TV greindi
fyrst frá málinu. „Vaskur þingmaður
hefur tíma til að ýta á níu hnappa á
meðan atkvæði eru greidd,“ sagði
fréttamaður stöðvarinnar.
x x x
Rússneska þingið hefur legiðundir ámæli fyrir að gera lítið
annað en að afgreiða gagnrýnislaust
allt, sem kemur frá stjórnvöldum.
Skrópasýki þingmanna hefur ekki
orðið til þess að efla orðstír þingsins.
Dimitrí Medvedev, forseti Rúss-
lands, hefur gagnrýnt þingmenn fyr-
ir lélega mætingu og sagði í apríl að
hann væri gáttaður þegar hann sæi
að stundum mættu aðeins 10 til 15%
þingmanna. Hann hefur lagt til að
lögunum verði breytt þannig að
þingmenn, sem ekki mæta á þing-
fundi, missi sæti sitt.
x x x
Rúmlega 180 þúsund manns hafaskoðað myndskeiðið á Youtube
(slóðin er http://www.youtube.com/
watch?v=3-gVSKARKPM&) og þar
má sjá ummæli á borð við: „Hahaha,
lýðræði á rússneska vísu,“ og „Af
hverju í ósköpunum umber rúss-
neska þjóðin stjórnvöld.“ Í blaðinu
Komsomolskaya Pravda í gær
leyndi óánægjan sér ekki: „Auðvitað
grunaði okkur að fulltrúar okkar
sætu ekki í Dúmunni allan liðlangan
daginn, en látum það vera, 88 af 450
er of mikið.“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 klúrs, 4 nabb-
ar, 7 kvæði, 8 lofum, 9
erfiði, 11 dægur, 13
grenja, 14 skriðdýrið, 15
drukkin, 17 þefa, 20
heiður, 22 fim, 23 faðms,
24 drykkjurútar, 25
magrar.
Lóðrétt | 1 óþétt, 2 logið,
3 geð, 4 húsgagn, 5 fugl,
6 langloka, 10 snagar, 12
álít, 13 elska, 15 hófdýr,
16 fiskilínan, 18 fífl, 19
áhöld, 20 guð, 21 mjög.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lundarfar, 8 súgur, 9 gutla, 10 gin, 11 rorra,
13 skapa, 15 pakki, 18 spöng, 21 lok, 22 spons, 23 önd-
uð, 24 langskera.
Lóðrétt: 2 urgur, 3 durga, 4 ragns, 5 aftra, 6 ásar, 7
gata, 12 rok, 14 kóp, 15 písl, 16 krota, 17 ilsig, 18
skökk, 19 öldur, 20 gæði.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ákjósanlegar dyggðir eru kyrr-
látur hugur, þögn og einfaldleiki. Reyndu
að láta gott af þér leiða og leggja þannig
lífinu lið, sem ekki veitir af. Vilji er allt
sem þarf.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mundu að fara vel með það sem aðr-
ir segja þér í trúnaði. Gefðu þér tíma til
að festa hugmyndir á blað til að aðrir geti
notið þeirra með þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hugsanlegt er að þú verðir með
hugmynd tengda tekjum og fjármálum á
heilanum í dag. Láttu ekki óþolinmæði
annarra hafa áhrif á þig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert alvarleg/ur, áreiðanleg/ur,
samviskusöm/samur og heiðvirð/ur í aug-
um annarra í dag. Mundu bara að ekki
eru allir viðhlæjendur vinir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft ekkert að blása í lúðra til
þess að koma málstað þínum á framfæri.
Taktu tillit til þess sem aðrir leggja til
málanna, það gæti hjálpað, en haltu svo
þínu striki til loka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Allt er á fleygiferð í dag og upplýs-
ingar berast úr mörgum áttum í einu.
Treystu á hæfileika þína og vertu
óhræddur að breyta til.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert orðin/n þreytt/ur á sam-
skiptum við neikvæða. Nú er tíminn til að
kynna sér dulúðleg svið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er mikil togstreita innra
með þér svo að þú átt erfitt með að ein-
beita þér. Njóttu lífsins en vertu meðvit-
aður/vituð um að lánið getur verið fall-
valt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur allt það sem til þarf
að framkvæma stóra hluti og margir
sækjast eftir að fá að taka þátt í þeim
með þér. Sýndu þolinmæði.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í keppnisskapi, það kem-
ur sér vel að velja verðugan andstæðing.
Sjáðu til þess að allir hafi atkvæðisrétt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er sjálfsagt að velta fyrir
sér öllum möguleikum áður en þú
ákveður nokkuð um framhaldið. Reyndu
að vera þolinmóð/ur. Sýndu vinum þínum
samstöðu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það skiptir öllu máli að vera sann-
ur gagnvart sjálfum sér og öðrum. Nú er
ekki rétti tíminn til þess að þröngva
markmiðum sínum áleiðis.
Stjörnuspá
27. maí 1942
Mikhailovich Molotov, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna,
kom til Reykjavíkur. Hann var
á leið frá Bretlandi til Banda-
ríkjanna og gisti eina nótt.
Molotov var einn nánasti sam-
starfsmaður Stalíns og valda-
mikill í áratugi.
27. maí 1983
Hús verslunarinnar í Reykja-
vík var tekið í notkun. Það var
reist í þeim tilgangi að efla ís-
lenska verslun og einingu
þeirra samtaka sem að henni
vinna.
27. maí 2005
Höskuldur Pétur Halldórsson
brautskráðist með hæstu ein-
kunn sem gefin hafði verið á
stúdentsprófi í Mennta-
skólanum í Reykjavík, 9,90.
27. maí 2009
Eiður Smári Guðjohnsen sigr-
aði fyrstur Íslendinga í meist-
aradeild Evrópu þegar lið
hans Barcelona vann Man-
chester United í úrslitaleik.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Finnur
Bergsveinsson
frá Gufudal,
rafvirkja-
meistari,
Laugarnes-
vegi 90,
Reykjavík,
verður níræð-
ur á morgun,
föstudaginn 28. maí. Afmælisfagn-
aður verður haldinn á afmælisdag-
inn, föstudaginn 28. maí, milli kl. 16
og 18 á Grand Hóteli Reykjavík,
Sigtúni. Afmælisbarnið afþakkar
blóm og gjafir en vonast til að ætt-
ingjar og vinir fagni með sér.
90 ára
Mikil tímamót eru hjá Þorsteini Péturssyni, lög-
reglumanni á Akureyri, þessa dagana. Hann er 65
ára í dag og á mánudaginn verður síðasti vinnu-
dagurinn. Hann hóf störf í lögreglunni 1967 og
hefur unnið þar lengst af fyrir utan nokkur ár í
tollinum. „Ég ætla að gefa vinnufélögum kaffi,“
segir afmælisbarn dagsins og bætir við að fyrir
fimm árum hafi hann hlaupið 10 km með góðum
hópi félaga áður en haldið hafi verið upp á daginn.
„Konan sér líka alltaf um að baka góðar kökur,“
segir hann og leggur áherslu á að á því verði ekki
breyting í ár þó ekki verði blásið til veislu.
Þorsteinn sér um bátinn Húna II, 130 tonna eikarbát, sem er varð-
veittur á Akureyri, og smíðar sumarbústað. „Ég hef yfrið nóg að
gera,“ segir hann. Undanfarin 11 ár hefur Þorsteinn verið forvarna-
og fræðslufulltrúi lögreglunnar á Akureyri og hann fékk Íslensku
forvarnarverðlaunin, þegar þau voru fyrst veitt fyrir fjórum árum.
Hann segir að aðalstarf lögreglunnar eigi að vera að koma í veg fyrir
afbrot. Áður hafi starfið falist í miklum samskiptum við fólk, leiðbein-
ingum, en nú hafi afskipti tekið við og kærur fylgt í kjölfarið. „Það
vantar svolítið mannlega þáttinn,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Þorsteinn Pétursson lögreglumaður 65 ára
Aðalatriðið að hindra afbrot
Sudoku
Frumstig
5 3 1
8 2
2 1 4 8 7
6 4 2
3 6
1
4 7 3 2
1 6
4 8 5 7
4 7 2
2 7
9 6
1 7
6 5 7 2
4 5 6
2 1 4 5 8
1 7 9 6
9 5 3
3 9 7
2
5 8 6
4 3 7
9 6 2
8 6
3 1
1 7 8
2 4 6 3 9 1 8 7 5
3 8 5 2 7 4 1 9 6
9 7 1 5 8 6 2 4 3
1 3 7 4 2 5 9 6 8
6 2 9 8 3 7 4 5 1
4 5 8 6 1 9 7 3 2
7 9 3 1 6 2 5 8 4
8 1 4 7 5 3 6 2 9
5 6 2 9 4 8 3 1 7
5 1 7 4 3 9 6 2 8
6 9 4 2 5 8 3 7 1
8 3 2 7 6 1 4 5 9
4 5 6 9 1 7 2 8 3
1 7 8 3 2 6 5 9 4
9 2 3 5 8 4 7 1 6
3 4 5 1 9 2 8 6 7
2 6 1 8 7 3 9 4 5
7 8 9 6 4 5 1 3 2
4 9 1 7 2 6 5 3 8
5 3 7 9 4 8 2 6 1
2 8 6 5 3 1 7 9 4
3 7 8 4 1 9 6 5 2
9 6 2 8 5 7 1 4 3
1 5 4 3 6 2 8 7 9
7 2 9 6 8 4 3 1 5
6 1 3 2 9 5 4 8 7
8 4 5 1 7 3 9 2 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 27. maí,
147. dagur ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. c4 Rf6 6. Rc3 Bb4 7. Dd3 Rc6 8.
a3 Bxc3+ 9. Dxc3 Rxd4 10. Dxd4 d6
11. Be2 e5 12. Dd3 Be6 13. O-O Hc8
14. b3 O-O 15. Bg5 Hc6 16. f4 exf4
17. Kh1 h6 18. Bxf4 He8 19. Had1 b5
20. e5 Rd7 21. cxb5 axb5 22. Dg3 Kh8
23. Bxb5 Hb6 24. a4 d5 25. Hc1 Da8
26. Be3 Hxb5 27. axb5 Da5 28. Bd4
Dxb5
Staðan kom upp í keppni reyndra
stórmeistara gegn ungum og efnileg-
um hollenskum skákmönnum sem fór
fram fyrir skömmu í skákmiðstöð
Max Euwe í Amsterdam. Hollenska
skákkonan Lisa Schut (2267) hafði
hvítt gegn þýska stórmeistaranum
Sebastian Siebrecht (2419). 29. Hxf7!
Bxf7 30. e6 Rf6 31. Bxf6 Bg6 32.
Dxg6 gxf6 33. Dxh6+ Kg8 34. Dg6+
Kh8 35. Dxf6+ og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tapslagur í tapslag 3
Norður
♠Á82
♥72
♦76
♣G86432
Vestur Austur
♠843 ♠95
♥D984 ♥106
♦KDG3 ♦109542
♣D9 ♣K1075
Suður
♠KDG107
♥ÁKG53
♦Á8
♣Á
Suður spilar 6♠. Útspil ♦K.
Sagnhafi var fljótur að spila
slemmuna þegar spilið kom upp.
Hann drap útspilið og tók ás og kóng
í hjarta og spilaði þriðja hjartanu.
Þegar vestur fylgdi lit með níunni
trompaði sagnhafi með ♠8. Hefði
hjartað legið 3-3 í AV eða vestur átt
♠9 var spilið unnið en nú gat austur
yfirtrompað og spilað tígli.
Sagnhafi var ekki heppinn með
leguna en hann gat spilað betur og
trompað þriðja hjartað með ♠Á.
Lægi hjartað 3-3 var hægt að taka
trompin og leggja upp en eins og
spilið lá væri hægt að fara heim á
laufaás og spila síðasta hjartanu að
heiman og henda tígli í borði. Sagn-
hafi gæti síðar trompað tígul í borði
og tekið trompin og fríslaginn í
hjarta – svo framarlega sem trompið
lægi ekki 5-0.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is