Morgunblaðið - 27.05.2010, Qupperneq 48
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Andlát: Þórhallur Halldórsson
2. Hættulegur drykkjuleikur
3. Staurinn klauf vélarhúsið í tvennt
4. „Þakklátur fyrir stuðninginn“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Þetta er dálítil kennslubók.
Kennslubók í hvernig maður á að vera
poppstjarna á Íslandi, hvað maður á
að gera og hvað maður á að forðast,“
segir Biggi um bókina sem hann
skrifar um Pál Óskar. »40
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Biggi í Maus skrifar
bók um Pál Óskar
Í gær afhenti
Hafþór Yngvason,
safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur,
myndlistarkon-
unni Söru Riel
verðlaunafé og
viðurkenningu úr
Listasjóði Guð-
mundu S. Krist-
insdóttur fyrir framlag sitt á sviði
myndlistar. Sjóðinn stofnaði Erró til
minningar um frænku sína Guð-
mundu og er þetta í ellefta sinn sem
veitt er úr honum.
Sara Riel hlýtur Guð-
munduverðlaunin
Einn besti kassagítarpikkari
heims, Eddie Walker frá Bret-
landi, er á leiðinni til landsins
og mun hann
spila á tón-
leikum í Vest-
mannaeyjum, Reykja-
vík og á Þjóðlagahátíð á
Siglufirði síðar í sumar.
Walker spilaði á sínum
fyrstu opinberu tónleikum
1967 aðeins 18 ára gam-
all.
Eddie Walker á
leiðinni til landsins
Á föstudag Norðaustan 3-8 m/s og bjartviðri á vestanverðu landinu, skýjað og smáskúr-
ir austan til, líkur á síðdegisskúrum sunnanlands. Hiti 5 til 15 stig.
Á laugardag og sunnudag Hæglætisveður, skýjað með köflum og skúrir suðvestan- og
vestanlands. Hiti 7 til 14 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur og skýjað austan til, annars léttskýjað. Hiti 2 til 15
stig.
VEÐUR
Íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik missti naum-
lega af því í gærkvöld að
tryggja sér sæti í úrslita-
keppni Evrópumótsins. Stig
hefði dugað gegn silfurliði
HM, Frakklandi, en í stað
þess að Ísland jafnaði mín-
útu fyrir leikslok náðu
Frakkar að skora tvisvar í
lokin og sigra, 27:24. Ísland
sækir Austurríki heim á
laugardag í hreinum úrslita-
leik um EM-sætið. »2-3
Mæta Austurríki
í úrslitaleik
Alfreð Finnbogason átti stórleik með
Breiðabliki þegar liðið lagði Íslands-
meistara FH að velli fyrr í vikunni.
Hann segist í viðtali við Morgun-
blaðið í dag stefna að því að sýna að
hann sé ekki lengur bara efnilegur
leikmaður. Alfreð
er í nýju hlut-
verki í liði
Breiðabliks og er
mjög ánægður
með breyt-
inguna. »4
Alfreð er í nýju hlutverki
í frísku liði Breiðabliks
Sautján ára fótboltamaður úr KR,
Ingólfur Sigurðsson, er í þann veginn
að gerast atvinnumaður hjá Heer-
enveen í Hollandi. Viðræður félag-
anna eru langt komnar og Ingólfur
stefnir að því að fara til Hollands í
júlí. Hann er óánægður með að hafa
ekki fengið tækifæri með liði KR á Ís-
landsmótinu eftir að hafa byrjað vel
með því í fyrrasumar. »1
Ingólfur er á förum frá
KR til Heerenveen
ÍÞRÓTTIR
„Það er ekki ver-
ið að skammta
vatn eða skrúfa
fyrir. Við erum
ekki að biðja fólk
um að hætta að
fara í sturtu, það
er nóg vatn til
allra nota. Þetta
eru fyrirbyggj-
andi tilmæli,“
segir Guð-
mundur Elíasson, framkvæmda-
stjóri veitusviðs Árborgar, en bæj-
aryfirvöld báðu íbúa í gær um að
fara sparlega með kalda vatnið.
„Fólk hefur almennt tekið þessu
mjög vel, enda ekkert óvenjulegt
eftir svona langan þurrkatíma, en
fyrstu þrír mánuðir þessa árs voru
óvenjuþurrir. Ef fólk fer þokka-
lega sparlega með, eigum við að
geta farið í gegnum þetta án
vandamála.
Við erum að vinna við að styrkja
vatnsöflun okkar og aðeins nokkrir
dagar í að úr því verði bætt. Við
munum dæla upp úr holum sem við
eigum í Ingólfsfjalli.“ khk@mbl.is
Fólk þarf ekki að
hætta að fara í sturtu
Ekkert sturtubann
er á Selfossi.
„Sunnlendingar
fá ekki almenni-
lega rigningu
fyrr en eftir
helgi, en um
helgina verður
skúrakennt veð-
ur. Það eru líkur
á síðdegis-
skúrum á morg-
un, föstudag, en það verður ekki
mikil úrkoma,“ segir Hrafn Guð-
mundsson veðurfræðingur.
Hrafn segir að á mánudag sé von
á lægð og þá verði suðlægar áttir
ríkjandi og vætusamt. „Þá fá Sunn-
lendingar loksins samfellda úr-
komu sem mun vonandi hjálpa til
við að losa þá sem búa á öskusvæð-
inu við öskuna. Ekki veitir af rign-
ingunni en tæplega má gera ráð
fyrir að askan hverfi á einni nóttu.“
khk@mbl.is
Væta að líkind-
um á öskusvæð-
unum eftir helgi
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Við erum ansi pirraðir! Eldfjallið
eyðilagði Grænlandsferðina. Svo
komum við aftur og vonuðumst til að
sjá bannsett eldgosið, en þá var það
hætt og við fengum ekki einu sinni
að sjá það. Það var mjög kaldhæðn-
islegt!“ segir Svíinn Johan Malm og
glottir við tönn.
Hann gekk á Hvannadalshnúk
með landa sínum og vini, Rikard
Johansson, á dögunum, en gangan
var hluti af ævintýraferð þeirra um
Norðurlönd. Þeir ætla sér að ganga
á hæstu fjöll þeirra allra. Hnúkurinn
var annað fjallið í röðinni, á eftir
hæsta punkti Álandseyja, hinum 132
metra háa hól Orrdalsklint.
Reyndar var Íslandsferðin hálf-
gerð sneypuför, því félagarnir urðu
strandaglópar á Akureyri í heila
viku á meðan Eyjafjallajökull spjó
ösku upp í háloftin. Þeir höfðu ætlað
sér til Grænlands, að ganga á hið
3.700 metra háa Gunnbjarnarfjall.
Þegar loks gafst færi fyrir öskunni
var ekki hægt að lenda á Grænlandi
vegna lélegs skyggnis. „Þar sem við
erum venjulegir launamenn þurfum
við að bíða með þetta fjall í eitt eða
tvö ár og safna peningum,“ segir
Malm. Sá hluti ferðarinnar kostar
um 7.000 evrur á haus og hefðu þeir
aldrei haft efni á því nú, nema af því
að þeir unnu ferðina í hugmynda-
keppni.
Malm vinnur við vegagerð í Sví-
þjóð og Johansson er kvikmynda-
gerðarmaður.
Þeir eru að gera kvikmynd um
reisuna, sem þeir segja smækkaða
mynd af því að ganga á hæstu fjöll
allra heimsálfna. Þeir stefna svo á
að sýna myndina á BANFF-kvik-
myndahátíðinni 2011. Í júní
hyggjast þeir ganga á Möllehöj,
hæsta punkt Danmerkur, 170
metra háan og svo á hæsta
fjall Færeyja. Í júlí stefna
þeir á Galdhöpiggen í Noregi
og í ágúst hyggjast þeir
leggja Kebnekaise í Svíþjóð
og Halti í Finnlandi að velli.
Toppa Norðurlöndin
Eyjafjallajökull hæddist að þeim og batt enda á ævintýrið
Ævintýri ársins
» Ferðin er vinningur sem
Malm og Johansson hlutu í
sænskri samkeppni um áhuga-
verðustu ferðahugmyndirnar.
Keppnin kallast Årets äventyr
á frummálinu.
» Þeirra hugmynd, að ganga á
hæstu tinda allra Norður-
landanna í einni bunu, þótti sú
áhugaverðasta.
Ljósmynd/Johan Malm
Á Hnúknum Þeir félagar sögðu Hvannadalshnúk hafa verið talsvert meiri áskorun en hólinn góða á Álandseyjum.