Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 8

Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Í örvæntingu sinni eftir kosninga-ósigurinn í Reykjavík og umræð- ur innan Samfylkingarinnar um stöðu varaformannsins og oddvit- ans hefur Dagur B. Eggertsson fall- ist á að verða þátttakandi í löngum brandara Besta flokksins.     Besti flokkurinn hefur skynjaðástandið innan Samfylking- arinnar rétt og veit að erfiðlega mun reynast að ganga fram af Degi. Þess vegna hefur það til að mynda engin áhrif á gang viðræðn- anna þegar aðstoðarmaður oddvita Besta flokksins gantast með Dag á vefsíðu sinni.     Ummæli Einars Arnar Benedikts-sonar í útvarpi á miðvikudags- morgni hafa ekki heldur nein áhrif. Þangað hringdi hlustandi sem spurði hvort ekki skyti skökku við að Besti flokkurinn, sem væri sig- urvegari kosninganna, færi beint í viðræður við Samfylkinguna, sem væri tapari kosninganna.     Ekki stóð á svari Einars Arnar:„Þú sérð þá ef hann er tapari kosninganna hver hefur þá yf- irhöndina.“     Fram að þessari yfirlýsingu vissusvo sem allir aðrir en forysta Samfylkingarinnar hvers vegna Besti flokkurinn hefði ekki þurft að hugsa sig um áður en hann valdi viðmælanda. Það var augljóst að Dagur var svo skelfingu lostinn að hann mundi gera hvað sem er til að komast í skjól af embætti á borð við forseta borgarstjórnar. Einar Örn Benediktsson. Yfirhöndin og undirlægjan Dagur B. Eggertsson Veður víða um heim 3.6., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 14 léttskýjað Akureyri 12 heiðskírt Egilsstaðir 16 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað Nuuk 5 skýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 19 heiðskírt Helsinki 19 léttskýjað Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 20 skýjað Glasgow 23 léttskýjað London 20 heiðskírt París 24 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 21 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 17 alskýjað Moskva 26 léttskýjað Algarve 24 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 23 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 24 léttskýjað Winnipeg 20 skýjað Montreal 17 alskýjað New York 29 léttskýjað Chicago 20 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 4. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:15 23:38 ÍSAFJÖRÐUR 2:26 24:37 SIGLUFJÖRÐUR 2:06 24:23 DJÚPIVOGUR 2:34 23:18 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 7. júní, kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Kristín G unnlaugsdóttir Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Helgi Bjarnason og Önundur Páll Ragnarsson Í gær náðist samkomulag um mynd- un meirihluta þriggja flokka í Norðurþingi og tveggja flokka stjórnar í Grindavík. Framsóknarmenn í Norðurþingi stóðu fyrir viðræðum allra flokka um „þjóðstjórn“ í Norðurþingi. Gunn- laugur Stefánsson, oddviti fram- sóknarmanna, segir að fulltrúi VG í sveitarstjórn hafi ekki viljað vinna að undirbúningi stóriðju við Húsavík og orkunýtingu í héraðinu á þeim grunni sem lagður hafi verið með að- komu ríkisstjórnarinnar. „Fyrst þetta náðist ekki ákváðum við að fara í eins stórt samstarf og við töld- um vænlegt,“ segir Gunnlaugur. Samkomulag við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu verður kynnt í dag, að fengnu samþykki flokksfunda. Meirihlutinn hefur fimm fulltrúa á bak við sig en fulltrúar VG og Þing- listans verða í minnihluta. Þarf að spara í Grindavík Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa náð sam- komulagi um stjórn mála í Grindavík og verður samstarfssamningur kynntur fljótlega. Listi Grindvíkinga sem náði tveimur mönnum inn í bæj- arstjórn bauð oddvitum flokkanna upp á samstjórn allra flokka. Bryn- dís Gunnlaugsdóttir, oddviti fram- sóknarmanna, segir að taka þurfi margar erfiðar ákvarðanir á næstu árum og þá skipti miklu máli að meirihlutinn standi vel saman. Draga þurfi úr útgjöldum bæjarins og mögulega sameina rekstur grunnskóla undir eina stjórn. Aug- lýst verður eftir nýjum bæjarstjóra. Viðræðum um samstarf vinstri flokkanna og Framsóknar í Borgar- byggð var slitið í gær. Samfylking og Framsókn töldu sig ekki eiga sam- leið með VG og óskuðu eftir viðræð- um við fulltrúa Sjálfstæðisflokks, sem ákváðu hins vegar að ræða fyrst við fulltrúa VG. Eftir þann fund sagði Dagbjartur Ingvar Arilíusson, Sjálfstæðisflokki, að ágætt útlit væri fyrir meirihlutamyndun. „Við áttum gott spjall og það fór vel á með okk- ur,“ sagði hann. Fulltrúar flokkanna hittast aftur fyrir hádegi í dag. Eftir að viðræður Framsóknar og Samfylkingar í Sveitarfélaginu Skagafirði fóru út um þúfur ræddu framsóknarmenn við fulltrúa hinna flokkanna og tóku í gær upp form- legar viðræður við VG. Fundað var fram á kvöld en oddviti framsókn- armanna, Stefán Vagn Stefánsson, sagði viðræður ganga ágætlega á ní- unda tímanum í gærkvöldi. Vendingar í viðræðum  Nýir herrar taka við sveitarstjórnartaumunum í Norðurþingi og Grindavík  Óvæntir snúningar í viðræðum bæjarfulltrúa í Skagafirði og Borgarbyggð Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr Englendingavík í Borgarnesi. Viðbrögð við nýju kynning- armyndbandi átaksins Inspir- ed by Iceland hafa ekki látið á sér standa. Um eittleytið í gær höfðu yfir 300.000 manns hvaðanæva úr heiminum skoð- að myndbandið, sem var sett inn á síðu átaksins í fyrrakvöld. Rúm hálf milljón manna til viðbótar hefur sent önnur myndbönd af síðunni, þar af voru 300.000 heimsóknir ut- an Íslands. Að auki notar fólk t.d. Facebook og Twitter til að deila myndbandinu og leggja ýmsar stór- stjörnur sitt af mörkum. Þannig tvítaði Yoko Ono tvisvar um átakið í gær en nærri 900.000 manns fylgj- ast með Twitter-síðu hennar. Gusa af heimsóknum Milljón manns hefur tekið þátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.