Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 10

Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 10
Frelsið er yndislegt, ég geriþað sem ég vil. Skyldimaður verða leiður á þvítil lengdar að vera til? Þannig söng Nýdönsk á sínum tíma en á mjög vel við nýjan borgarstjóra. Nákvæmlega það sem Jón Gnarr er að gera núna. Njóta þess að vera til og gera nákvæmlega það sem hann langar til. Af hverju ekki að láta drauma sína rætast? Hann langar að verða borgar- stjóri og samkvæmt öllu er honum að takast það. Það sem meira er, hann hefur náð að hrista svo rækilega upp í þessu póli- tíska landslagi að það er aðdáunarvert. Hversu oft var skipt um borgarstjóra á síðasta kjör- tímabili? Er engin virðing lengur borin fyrir embættinu? Þetta lið sem hefur stjórnað á síðustu árum á svo skilið þessa blautu tusku sem það fær nú beint í andlitið. Ég treysti Jóni Gnarr full- komnlega til að sitja í stólnum og stjórna borginni með hjálp góðra manna. A uðvitað fór hann í sam- starf við Samfylkinguna enda færi hún ekki fram á mikið. Hanna Birna hefði hins vegar getað orðið erfiðari til viðræðna enda eflaust einn hæfasti og vinsælasti borgarstjóri sem Reyk- víkingar hafa átt í fleiri ár. Ísbjörn í Hús- dýragarðinn og allskonar fyrir aumingja. Það verður fróð- legt að sjá hvort úr þessu verður. Nú er bara að Gnarra borgarstjórastól- inn, ekki Haardera. Einu sinni nörd, verðandi borgarstjóri. Þetta er fljótt að gerast. Ég er hins vegar ekki á kjörskrá í höfuðborginni og kemur þetta því lítið við þegar upp er staðið. En ég neita því ekki að ferðirnar til Bab- ylon verði áhugaverðari með eitt stykki ísbjörn í Húsdýragarðinum og ættleidda róna á Austurvelli. Sem betur fer er fleira á fjögurra ára fresti en blessaðar kosning- arnar. Heimsmeistarakeppnin í fót- bolta hefst í næstu viku. Góða skemmtun. Hilmar Gunnarsson hilmar@mbl.is »Nú er bara að Gnarraborgarstjórastólinn, ekki Haardera. Einu sinni nörd, verðandi borgarstjóri. Heimur Hilmars Morgunblaðið/Golli Gaman Það er stundum fanta fjör í vinnunni. Hér sprella þeir Sindri og Fjölnir sem einnig vinnur á Íslenzku húðflúrstofunni. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Sindri er mjög flinkur teikn-ari og hann hefur þægileganærveru, en hvort tveggjaskiptir máli í þessu starfi. Hann er áreiðanlegur gæi. Alger- lega ruglfrír,“ segir flúrarinn Jón Páll Halldórsson um ástæður þess að hann valdi Björn Sindra Hann- eck úr flokki þeirra fjölmörgu sem tóku þátt í samkeppni um að verða lærlingur hjá honum á Íslenzku húðflúrstofunni. Sindri segir að sig hafi langað til að verða flúrari frá því hann var krakki, svo draumurinn er loks að rætast. Hann sagði óhikað upp góðri vinnu á hinum títt nefndu krepputímum, til að snúa sér alfarið að húðflúri. „Ég útskrifaðist frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 2004 sem skrúðgarðyrkjufræðingur og kunni vel við mig í því starfi, en mér fannst ekki hægt að sleppa þessu tækifæri. Ég tel mig vera að læra þessa listgrein á bestu stof- unni á landinu og leyfi mér líka að segja hjá besta flúrara á Íslandi og þó víðar væri leitað. Mér finnst líka frábært að þeir sem hér vinna sér- hæfa sig í hönnun og teikningu á húðflúrum sem eru sérsniðin fyrir hvern og einn,“ segir Sindri sem er sjálfmenntaður teiknari en þegar myndir hans eru skoðaðar er vart hægt að trúa öðru en að þar sé fag- maður á ferð. Grettir sterki fer á bakið Sindri er sveitastrákur, fæddur og uppalinn í Miðfirði í Húnaþingi vestra og hann segist hafa séð húð- flúr fyrst í kvikmyndum þegar hann var krakki. „Mér fannst það svaka- lega flott og gat ekki beðið lengi með að fá mér flúr. Ég var fyrstur til að fá mér húðflúr í mínum bekk, aðeins fimmtán ára. Það var daginn sem vinur minn varð sautján ára og fékk bílpróf. Við brunuðum saman fjórir vinir í bæinn og fengum okk- ur allir flúr hjá Fjölni, nema einn, hann guggnaði. Ég fékk mér svaka gellu á hægri upphandlegg,“ segir Sindri og hlær. „Mömmu fannst þetta allt í lagi en pabba leist ekk- ert á þetta, hann sagði mig rugl- aðan að gera þetta. En þau hafa ekkert rætt þetta síðan og mörg Ruglfrír sveita- strákur í flúrinu Hann féll fyrir flúrinu ungur að árum og fagnar heilshugar húðflúrshátíð- inni The Icelandic Tattoo Festival sem hefst í dag. Framtíðin er björt enda er hann í læri hjá þeim besta í faginu. 10 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Er hann skotinn í þér, hvernig á að daðra, hvernig á að bjóða á stefnu- mót og hvernig á að kyssa? Eru þetta spurningar sem brenna á þér en þú færð engin svör við? Þá er um að gera að heimsækja vefsíðuna Links2love.com og leita ráðlegginga. Síðan gæti virst óaðlaðandi í fyrstu; bleik og fjólublá og svolítið of- hlaðin og væmin, en hún er samt drekkhlaðin af góðum upplýsingum um samskipti kynjanna. Mikið er af góðum ráðum, í máli og myndum, um hvernig á að kyssa, ein- staklega gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem eru óvissir í því málefni. Sjálfspróf eru stór liður á síðunni, þú getur m.a. komist að því hvort hann vill þig, hvort þú ert heit/ur og hvort þetta er sönn ást. Heilmikið af textum við ástarlög má þarna finna og hægt er að lesa ástarbréf þekktra einstaklinga. Einn- ig eru ráðleggingar um hvað þið getið gert saman í fríinu, á Valentínusar- daginn eða yfir jólahátíðina. Hægt er að læra hvernig á að segja „ég elska þig“ á hundrað tungumálum og fá hugmyndir að gjöfum fyrir ástina sína. Að lesa í líkamstjáningu og daðra er líka kennt á síðunni. Það er augljóslega margt að læra um ástina. Vefsíðan www.links2love.com Hamingja Er ástin ykkar á milli kannski eins og í The Notebook? Allt um ástina Svartur er öruggur litur, grennandi, passar vel við aðra liti, sýnir ekki svitabletti o.s.frv. En svartur getur líka verið leiðinlegur og það er leiðinlegt að klæðast alltaf svörtu. Fallega lit- aðar flíkur geta gert svo mikið fyrir manneskj- una sem þeim klæðist, bæði andlega og útlits- lega. Litir lífga upp á húð og hárlit, augun verða sterkari á litinn og sálin léttari. Litir draga líka að sér athygli, það fer ekkert á milli mála að þú ert á ferðinni á meðan þeir svart- klæddu hverfa í fjöldann sem er ekkert skemmtilegt. Takið ykkur helstu tískufyrirmynd síðari tíma til fyrirmyndar, Söru Jessicu Parker, og klæðist lit- um. Endilega... ...láttu á þér bera Bókaútgáfan Opna · Skipholti 50b · 105 Reykjavík · sími 578 9080 · www.opna.is Þarfaþing Kortaboxin eru nýjung á Íslandi. Hvert boxgeymir 20 mismunandi tvöföld kort og jafnmörgumslög. Textinn á baki kortanna er á fjórum tungumálum: íslensku, ensku, þýsku og frönsku. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Upplögð gjöf handa vinum heima og erlendis ICEBOX - 20 gullfallegar jöklamyndir eftir Helga Björnsson, jöklafræðing. ERRÓBOX - 20 bráðskemmtileg portrettmálverk eftir meistara Erró. HORSEBOX - 20 stórkostlegar myndir af íslenskum hrossum sem Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari tók. Það er einkar þægilegt að hafa þessar gersemar við höndina til að grípa í þegar tilefni gefst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.