Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 12

Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 12
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Laxveiðitímabilið hefst á morgun en þá kastar formaður Stangaveiði- félags Reykjavíkur fyrstu flugunni í Norðurá. Á sama tíma hefst veið- in í Blöndu. Blanda er vatnsmikil þessa dagana og enn hefur ekki sést til laxa þar, en hinsvegar sást til fyrstu laxanna í Norðurá fyrir tíu dögum. Víða hefur laxinn sést síðustu daga, meðal annars í Ell- iðaánum og þá sagði Bubbi Morthens blaðamanni að hann hefði skyggnt Laxá í Kjós reglu- lega í vor og fyrstu laxana hafði hann séð í Kvíslarfossi fyrir tveim- ur vikum. Þá hefur frést af rígvæn- um löxum í Vesturá í Miðfirðinum. „Horfurnar eru góðar,“ segir Guðmundur Stefán Maríasson for- maður SVFR, sem ríður á vaðið í Norðurá á morgun. „Laxinn er kominn víða og ekkert sem bendir til annars en að þetta geti orðið ljómandi gott veiðisumar.“ Hann vonar að Einar Svein- björnsson veðurfræðingur, sem vitnað er í hér til hliðar, hafi rétt fyrir sér um vætutíð sunnan- og vestanlands – „þó að konan mín sé ekki alveg sammála,“ segir hann og hlær. „En án gríns þá eru einu áhyggjurnar af vatnsbúskapnum. Það er lítið vatn í ánum núna.“ Guðmundur Stefán spáir ágætri veiði í opnunarhollinu. „Ég gæti trúað að það kæmu upp tíu til tólf fiskar. En hvort formaðurinn nái að setja í þann fyrsta, á það er ekki að treysta!“ „Ég held þetta geti orðið sæmilega gott veiði- sumar,“ sagði Orri Vigfússon, for- maður Verndarsjóðs villtra laxa- stofna en hann kemur einnig að málum við Fljótaá, Laxá í Aðaldal og Selá. „Ég er nú svolítið hrædd- ur um úrkomuna hér á suðvest- urlandi. Mínir spámenn segja að það verði lítið um úrkomu og dálít- ið um hita. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það kemur út.“ Varðandi veiðina fyrir norðan sagði Orri að rennt yrði blint í veiðina í Fljótaá, hann vonar að kraftur komi í veiðina í Laxá og „spurningin er hvort við förum yfir 2000 laxa í Selá sjötta árið í röð. Umhverfisaðstæður fyrir Norð- urlandi eru mjög góðar til að þetta haldi áfram, þannig að ég er sæmi- lega bjartsýnn,“ segir hann Ætlar að vera svartsýnn Þórarinn Sigþórsson tannlæknir er með kunnustu og veiðnustu stangveiðimönnum landsins. Hann verður í hópi þeirra sem hefja veiðar í Blöndu. „Maður veit aldrei hvað sumarið ber í skauti sér, það fer eftir ástandinu í sjónum hvernig seiðunum reiðir af og hvernig laxinn skilar sér. Ég hef rekið mig á að ef ég er svart- sýnn veiðist yf- irleitt betur, ég ætla því að vera svartsýnn á sum- arið,“ segir hann og hlær. Veiðimenn sæmilega bjartsýnir  Laxveiðin hefst á morgun í Norðurá og Blöndu  Laxinn er mættur í árnar Morgunblaðið/Einar Falur Stórlaxadraumur Laxveiðin er að hefjast og stórlaxar, þar sem þá er enn að finna, taka að ganga í árnar. Marga dreymir um að setja í slíka fiska. 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Eftir að viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu var skipt í tvennt árið 2007 jukust útgjöld ráðuneytanna um rúmlega 30% eða um 120 milljónir. Eftir að sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneytin voru sameinuð lækkuðu útgjöld ráðuneytisins um rúmlega 14% eða um 50 milljónir á ári. Þetta má lesa út úr svari fjármálaráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauks- dóttur, alþingismanni Framsóknarflokks. Svörin ná til áranna 2006-2009, en þau sýna að útgjöld aðalskrifstofu ráðuneytanna drógust örlít- ið saman á árinu 2007 miðað við árið á undan. Árið 2008 aukast útgjöldin örlítið. Ef hins vegar er tekið tillit til þess að þýðingamiðstöð var á því ári að- skilin frá skrifstofu utanríkisráðuneytisins sést að raunútgjaldaaukningin er næstum 2%. Á árinu 2007 tók ný ríkistjórn við völdum sem gerði nokkr- ar breytingar á skipan stjórnarráðsins. Iðnaðar- ráðuneytið var skilið frá viðskiptaráðuneytinu, en það leiddi til þess að útgjöld ráðuneytanna jukust um 30% á árinu 2008. Sameining landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins leiddi hins vegar til þess að útgjöld hins sameinaða ráðuneytis lækk- uðu um rúmlega 14%. Útgjöld skrifstofu ráðuneytanna drógust saman í fyrra og urðu 5.886 milljónir. Á þessu ári er stefnt að því að lækka útgjöld skrifstofanna um 10%. Starfsmönnum hefur fjölgað um 12% Aðalskrifstofa utanríkisráðuneytisins er með mestu útgjöldin eða 1.144 milljónir í fyrra. Sam- kvæmt svarinu hafa útgjöld utanríkisráðuneytisins lækkað frá árinu 2006 um 13,5%. Sé hins vegar tekið tillit til þess að þýðingamiðstöðin hefur verið færð frá aðalskrifstofu ráðuneytisins er útgjalda- samdrátturinn sáralítill. Þýðingamiðstöðin hefur vaxið ár frá ári. Árið 2006 voru útgjöld hennar rúmlega 70 milljónir króna á föstu verðlagi, en voru 175 milljónir í fyrra og í fjárlögum í ár er gert ráð fyrir að þau verði 356 milljónir. 24 nýir starfsmenn voru ráðnir til þýð- ingamiðstöðvarinnar í ár, fyrst og fremst til að þýða EES-gerðir. Þess má geta að stærstur hluti kostnaðar við þýðingar færist yfir til ESB ef við gerumst aðilar að sambandinu. Starfsmenn aðalskrifstofu ráðuneytanna voru um 456 árið 2006 ef starfsmenn Hagstofunnar og þýðingamiðstöðvarinnar eru undanskildir, en þeir eru ekki lengur flokkaðir með starfsmönnum ráðu- neytanna. Um síðustu áramót voru starfsmenn ráðuneytanna 511, en það er 12% fjölgun á fjórum árum. Fjölgunin er enn meiri ef tekið er tillit til fjölgunar starfsmanna í þýðingamiðstöðinni. Í fyrra fjölgaði starfsmönnum ráðuneytanna sam- tals um átta. T.d. fjölgaði starfsmönnum fjár- málaráðuneytisins um fimm. Morgunblaðið/Ernir Milljarðar í yfirstjórn  Skipting viðskipta- og iðnaðarráðuneytisins í tvennt kostaði um 120 milljónir  50 milljónir sparast með sameiningu ráðuneytis landbúnaðar- og sjávarútvegs Margir veiðimenn hafa áhyggjur af því að ár kunni að verða vatnslitlar í sumar, ekki síst á Vesturlandi, rétt eins og síðustu sumur sem voru björt og þurr. Einar Sveinsbjörnsson veður- fræðingur hefur spáð um veðrið í sumar á bloggi sínu og byggir á þriggja mánaða árstíðaspám. Sumarið telur hann að verði í hlýrra lagi og hitinn víðast markvert ofan meðallags. Meiri líkur en minni eru á því að sum- arið sunnan- og vestantil á landinu verði að þessu sinni fremur vætusamt. Þá er að sjá sem vindur af suðri og suðvestri verði algengari á kostnað norðaustanáttar. Einar segir aukna úr- komu þó ekki ávísun á gott vatn í dragám, þær geti liðið fyrir snjóleysi á hálendi. Spáir vætu vestanlands VEIÐIVEÐRIÐ Í SUMAR Marinó Marinósson með fyrsta Norður- árlaxinn í fyrra. Nýi Landsbank- inn og Arion banki segjast báðir uppfylla kröfur Fjármála- eftirlitsins um stórar áhættu- skuldbindingar. Í nýútkominni skýrslu Seðla- bankans um fjár- málastöðugleika kemur fram að fjórar áhættuskuld- bindingar viðskiptabankanna hafi numið meira en þeim 25% sem regl- ur kveði á um. Seðlabankinn segir æskilegt hlutfall vera 20%. Í til- kynningu frá Nýja Landsbankanum segir að engin áhættuskuldbinding sé hærri en 25% af eiginfjárgrunni. Arion banki segist hafa uppfyllt all- ar kröfur FME um stórar áhættu- skuldbindingar, að undanskilinni kröfu á gamla Kaupþing. Sú krafa er komin til vegna flutnings eigna á milli gamla og nýja bankans, „en sá flutningur var í samræmi við fyrir- mæli FME,“ segir í tilkynningu frá Arion. einarorn@mbl.is Segjast upp- fylla kröfur FME Arion banki Upp- fyllir kröfur FME. Rekstur Hellis- heiðarvirkjunar verður stöðvaður á sunnudag og stendur rekstr- arstöðvunin yfir í tvær vikur. Ástæða hennar er breytingar á gufuveitu virkj- unarinnar, m.a. vegna tenginga við nýja varmastöð sem tekin verður í notkun undir lok ársins. Gufa frá virkjunarsvæðinu verður meiri meðan á rekstrarstöðvuninni stend- ur og ferðafólk er beðið að sýna sérstaka aðgát. Sýnileiki gufunnar veltur þó á lofthita og öðrum veð- urskilyrðum, en reikna má með því að gufustrókarnir verði mun sýni- legri frá höfuðborgarsvæðinu en fram til þessa. Varað við gufunni 48 fleiri starfsmenn störfuðu í ráðuneytunum í fyrra en árið 2006 90 starfsmenn eru hjá utanríkisráðuneyt- inu og 70 hjá menntamálaráðuneytinu 511 starfsmenn voru á aðalskrifstofum ráðuneytanna um síðustu áramót 5886 milljónir kostaði að reka aðalskrifstofur ráðuneytanna á síðasta ári ‹ FLEIRI STARFSMENN › »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.