Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
Fjölbreyttar sparnaðarleiðir
Landsbankinn býður úrval ríkisskuldabréfa-,
skuldabréfa- og hlutabréfasjóða, þar sem
stórir og litlir fjárfestar geta ávaxtað fé sitt.
Síðastliðið ár skiluðu sjóðirnir betri ávöxtun en
innlánsreikningar. Fé í sjóðum má alltaf innleysa.
Sjóðir í áskrift
Sjóðir henta vel fyrir reglubundinn sparnað.
Viðskiptavinir njóta þess að enginn munur er á
kaup- og sölugengi í áskrift. Í hverjum mánuði
hljóta tveir heppnir viðskiptavinir 20.000 kr.
viðbót við eign sína. Dregið verður úr nöfnum
þeirra sem hafa verið í áskrift að sjóðum í að
minnsta kosti eitt ár.
Á
vö
xt
u
n
*
Áhætta
Reiðubréf
ríkistryggð 1
Sparibréf
stutt 1
Sparibréf
meðallöng 1
Sparibréf
löng 1
Markaðsbréf
Landsbankans
- stutt 1
Markaðsbréf
Landsbankans
- meðallöng 1
Markaðsbréf
Landsbankans
- löng 1
Úrvalsbréf
Landsbankans 2
Landsbanki
Global Equity
Fund 1
Landsbanki
Nordic 40 1, 3
17,16%* 30,01%*7,09%* 9,56%* 13,24%* 15,05%* 15,07%* 15,35%* 16,88%* 33,29%*
Ríkisskuldabréfasjóðir
Hlutabréfasjóðir
Blandaðir skuldabréfasjóðir
N
B
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
kt
.4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
Sjóðir sem
bera ávöxt
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4040
Enginn munur á
kaup- og sölugengifram til 1. júlí
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
12
4
8
Rekstrarfélag sjóðanna er Landsvaki hf. og vörslufélag þeirra er NBI hf. (Landsbankinn). Sjóðirnir eru starfræktir
í samræmi við l. nr. 30/2003 og lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar
sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um
framtíðarárangur. Fjárfesting í fjárfestingarsjóði telst almennt áhættumeiri en fjárfesting í verðbréfasjóði. Nánari
upplýsingar má finna í útboðslýsingum sjóða og útdráttum úr þeim á landsbankinn.is og á landsvaki.is. Fjárfestum
er bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim.
* Nafnávöxtun sl. 12 mánuði m.v. 28. maí 2010
1. Sjóðurinn er verðbréfasjóður.
2. Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður.
3. Sjóðurinn er í evrum. Vegna gjaldeyrishafta er ekki mögulegt að fjárfesta í sjóðum sem skráðir eru í erlendri mynt
nema um endurfjárfestingu sé að ræða.
HVERFISRÁÐ Kjalarness sam-
þykkti bókun á föstudag sl. þar sem
er krafist tafarlausra úrbóta á um-
ferðaröryggi á Brautarholtsvegi.
Hverfisráðið bendir á að mörg
börn leggi leið sína um Brautar-
holtsveg auk þess sem svæðið er
nýtt til útivistar af íbúum. Hverf-
isráð Kjalarness hefur ítrekað ósk-
að eftir því að sett verði upp hraða-
hindrun og hámarkshraði á
veginum minnkaður en hefur talað
fyrir daufum eyrum. Hverfisráð
Kjalarness leggur til að mjög fljót-
lega verði haldinn íbúafundur í
samstarfi við íbúasamtök Kjal-
arness þar sem fjallað verður um
málið og farið verður í fyrirhug-
aðar aðgerðir ef þurfa þykir.
Morgunblaðið/Júlíus
Vilja hraðahindrun
Hæstiréttur hefur dæmt atvinnubíl-
stjóra á þrítugsaldri í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að
brjóta ítrekað ákvæði laga um akst-
urs- og hvíldartíma ökumanna.
Maðurinn var í héraðsdómi dæmd-
ur í 2,1 milljónar króna sekt fyrir
brotið. Brotin voru framin frá tíma-
bilinu frá ágúst 2007 til janúar
2008. Bílstjórinn bar því m.a. við, að
hann hefði ekki kunnað að stilla
ökurita bílsins á hvíld þar sem hon-
um hefðu ekki fylgt íslenskar leið-
beiningar þegar hann fékk hann af-
hentan með bílnum vorið 2007.
Héraðsdómur sagði hins vegar
að manninum ætti að vera fullkunn-
ugt um að honum bæri að kynna sér
umferðarlög og aðrar reglur sam-
kvæmt þeim. Hann hefði því borið
ábyrgð á því að nota ökuritann rétt.
Dæmdur fyrir brot
á hvíldartímalögum
Dagana 3.-6. júní fagnar Blómaval
40 ára starfsafmæli sínu með af-
mælishátíð um allt land. Afmælis-
hátíðin nær hápunkti á morgun,
laugardag, og verður þá mikið um
dýrðir, tilboð á völdum vörum og
ýmislegt til skemmtunar.
Í tilefni afmælisins hefur Blóma-
val ráðist í gerð handbókar um
garðverkin, „Vinnan í garðinum“.
Það rit er kærkomið garðeigendum
og áhugafólki um allskonar rækt-
un. Efnistök eru fjölbreytt og er
tekið á flestu sem þarf að gera í
heimilisgarðinum og í sumarbú-
staðalandinu. Bókin er seld á kostn-
aðarverði í verslunum Blómavals
og Húsasmiðjunnar um allt land.
Blómaval 40 ára
STEFÁN Ingi
Stefánsson,
framkvæmda-
stjóri Barna-
hjálpar Sam-
einuðu
þjóðanna
(UNICEF) á Ís-
landi, veitti á
miðvikudag sl.
viðtöku rúm-
lega 1,4 milljónum króna frá Sig-
mundi Dýrfjörð, framkvæmda-
stjóra Te & Kaffi. Þessi upphæð
bætist við rúmlega fjórar milljónir
sem nú þegar hefur verið safnað í
sameiginlegu fjáröflunarverkefni
UNICEF og Te & Kaffi þar sem
fjölda fyrirtækja var boðið að
kaupa gæðakaffi og rann hluti af
andvirði sölunnar til verkefna
Barnahjálparinnar.
Te & Kaffi gefur
UNICEF 1,4 milljónir
STUTT
Gestastofa Sútarans verður opnuð
á Sauðárkróki í dag, föstudag, en
hún er til húsa í einu sútunarverk-
smiðju landsins, sem jafnframt er
eini aðilinn í Evrópu sem framleiðir
leður úr fiskroði. Með tilkomu
gestastofunnar er almenningi veitt-
ur aðgangur að lifandi atvinnu-
grein. Boðið er upp á skoð-
unarferðir um verksmiðjuna þegar
hún er í fullri virkni og í gestastof-
unni er leðurverslun, þar sem hægt
er að nálgast leður og leðurvörur
sem framleiddar eru í verksmiðj-
unni.
Sjávarleður og dótturfyrirtæki
þess, Loðskinn, starfa hvort á sínu
sviði innan verksmiðjunnar. Sjáv-
arleður hefur verið frumkvöðull í
þróun fiskleðurs í heiminum, og
notið verðskuldaðrar athygli í
heimi tísku og hönnunar úr leðri,
sem sést best á því að heimsþekkt
vörumerki og hönnunarhús hafa
notað fiskleður í framleiðslu sína. Í
hönnunarhorninu eru sýnishorn af
vörum úr fiskleðri, m.a. frá Prada,
Dior og Nike. Íslenskir hönnuðir
hafa einnig sýnt fiskileðri áhuga,
en á liðnum misserum hefur bein-
línis orðið sprenging á þessu sviði.
Gestastofan er opin eftir hádegi
alla virka daga yfir sumarið og boð-
ið er upp á fastar ferðir kl. 14 eða
eftir samkomulagi. Leiðsögnin fer
fram á íslensku og ensku.
Gestastofa Sútarans
opnuð á Sauðárkróki
Hugmyndasmiður Gestastofa sútarans er hugarfóstur Sigríðar Káradóttur
sem rekur Sjávarleður og Loðskinn ásamt eiginmanni sínum.