Morgunblaðið - 04.06.2010, Side 14
Vandinn er því ekki bundinn við
mölina. Óánægjan leynist víðar.
Tekið skal fram að hugtakið
frjálslyndur er óljóst í samhengi
Framsóknar en það þykir þó sam-
eina þann arm að þar er áhugi á
Evrópumálum meiri en hjá lands-
byggðararminum sem er kaldur
gagnvart Evrópusambandsaðild.
Sáttin í ályktun síðasta landsfund-
ar um aðild er fokin út í veður og
vind.
„Sundurlaus her“ í borginni
Skæðadrífan á milli andstæðra
fylkinga í Reykjavík hefur ekki far-
ið leynt eftir afhroðið um síðustu
helgi og orðaði einn heimildarmað-
ur blaðsins það svo að í höfuðstaðn-
um væri flokkurinn „sundurlaus
her“.
Annar framsóknarmaðurinn
sagði gjána ekki koma á óvart enda
hefði flokkurinn skipst í klíkur í
borginni í rúma hálfa öld.
Reykjavík er sem kunnugt er
langstærsta sveitarfélagið og því
eðli málsins samkvæmt meiri líkur
á flokkadráttum þar en í miklu
minni bæjarfélögum, á borð við
Höfn í Hornafirði, þar sem varafor-
maðurinn, Birkir Jón Jónsson, tel-
ur flokkinn hafa unnið góðan sigur.
Framsóknarmenn rekja góða út-
komu á landsbyggðinni í sveitar-
stjórnarkosningunum ekki síst til
þess að þar séu frambjóðendurnir í
persónulegu sambandi við kjósend-
ur og áhrifamáttur fjölmiðla þar því
minni en á höfuðborgarsvæðinu.
Styrkur og veikleiki í senn
Segja má að í þessu liggi í senn
veikleiki og styrkur Framsóknar.
Flokkurinn er elsta stjórnmálaafl
landsins sem státar af djúpum rót-
um á landsbyggðinni. Hann skortir
hins vegar vinsælan og óumdeildan
leiðtoga á landsvísu sem höfðar til
breiðari hóps.
Á sama tíma og einurð Sigmund-
ar Davíðs í málum á borð við Ice-
save-deiluna hefur víða mælst vel
fyrir eru aðrir flokksmenn á því að
formaðurinn hafi fengið á sig
ímynd átakasækins leiðtoga og þar
með fælt frá kjósendur í borginni.
Þetta er sett í samhengi við þá
útbreiddu skoðun að Sigmundi
Davíð hafi ekki tekist að koma þeim
skilaboðum til skila að flokkurinn
hafi gengið í gegnum meiri endur-
nýjun en aðrir flokkar og tekið upp
ný vinnubrögð. Því hafi flokkurinn
ekki endurheimt traust.
Böndin berast einnig að Einari
Skúlasyni, oddvita flokksins í borg-
inni, en andstæðingar hans jafnt
sem samherjar eru sammála um að
þar fari ekki afgerandi leiðtogi.
Þá þykir brýnt að taka flokks-
starfið til gagngerrar endurskoð-
unar, ekki síst á höfuðborgarsvæð-
inu, og færa almenna flokksmenn
nær ákvarðanatöku.
Morgunblaðið/Kristinn
Forystan Sigmundur Davíð var nýkjörinn formaður er Framsókn skýrði frá því að hún myndi verja minnihlutastjórn Samfylkingar og VG.
Almannagjá Framsóknar
Frjálslyndir miðjumenn í flokknum ósáttir við forystuna Telja formanninn
hafa fengið ímynd átakasækins leiðtoga Almenna flokksmenn skortir áhrif
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hljóðið í framsóknarmönnum á
landsbyggðinni og í Reykjavík er
gerólíkt. Framsóknarmenn úti á
landi eru almennt ánægðir með út-
komu sveitarstjórnarkosninganna
og telja forystuna á réttri leið. Ann-
að hljóð er í strokknum í Reykjavík
þar sem frjálslyndir framsóknar-
menn telja sig hafa fjarlægst flokk-
inn í formannstíð Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar.
Á milli þessara fylkinga er breið
gjá og þótti Sigmundur Davíð
leggja hlutverk brúarsmiðs til hlið-
ar er hann gaf Guðmundi Stein-
grímssyni þá einkunn að þar færi
ósvífinn gjörningamaður, eftir að
hann leiddi opinberlega líkur að því
að forystan hefði átt þátt í afhroði
flokksins í höfuðborginni.
Hefur Guðmundur ekki greint
afdráttarlaust frá því hvernig hann
sjái framtíð sína í flokknum.
Höfuðvígið laskað
Skiptingin á milli landsbyggðar-
innar og höfuðborgarsvæðisins er
þó ekki svo svarthvít. Akureyri hef-
ur löngum verið álitið höfuðvígi
Framsóknar og er skammt síðan
hún átti 5 menn í bæjarstjórn. Sú
vígstaða hefur gerbreyst og verður
flokkurinn nú að gera sér að góðu
að hafa einn mann í bæjarstjórn.
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
Engin staðfest
tilvik eru um að
hestapestin hafi
greinst í fólki.
Einkenni hesta-
pestar í mönnum
minna á háls-
bólgu með hósta,
hita og særindum
í hálsi að sögn
sóttvarnalæknis.
Venjuleg sýklalyf
duga á pestina berist hún í menn.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
segir að þótt fáir vilji vera „við
hestaheilsu“ þessa dagana þá sé
ekki ástæða til að óttast að streptó-
kokkasýkingin sem veldur hesta-
pestinni smitist á milli manna.
„Þetta er ekki baktería sem er lík-
leg til að valda faraldri í fólki. Smit
virðist alltaf tengt því að menn hafi
verið að sinna sýktum hestum,“ seg-
ir Haraldur. Hann segir þó vitað um
örfá tilfelli í heiminum þar sem
menn hafa orðið alvarlega veikir af
völdum sömu pestar.
Landlæknisembættið hefur hvatt
hestafólk og þá sem sinna veikum
hrossum til að gæta að handþvotti
og nota andlitsgrímur. Að sögn Har-
aldar á almennt hreinlæti og smit-
varnir að duga til í flestum tilvikum.
Hann tekur fram að kvefpest sem
hefur gengið undanfarið sé ótengd
hestapestinni. Um veirusýkingu sé
að ræða en ekki bakteríu.
Enginn við
hestaheilsu
Hestapestin hefur
ekki lagst á menn
Hestaheilsa Hest-
ar tæpir til heilsu.
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu stöðvaði
kannabisræktun í
húsi í austur-
borginni í hádeg-
inu á miðvikudag.
Við húsleit
fundust rúmlega
50 kannabis-
plöntur. Húsráð-
andi, karl á þrí-
tugsaldri, játaði aðild sína að
málinu.
Aðgerðin er liður í að hamla gegn
sölu og dreifingu fíkniefna en sem
fyrr minnir lögreglan á fíkniefna-
símann 800-5005. Í hann má hringja
nafnlaust til að koma á framfæri
upplýsingum um fíkniefnamál, segir
í tilkynningu lögreglu.
50 plöntur
teknar í aust-
urborginni
Enn tekur lög-
reglan kannabis.
„Slepptu ímyndunaraflinu lausu gegn fátækt“ er þema
umfangsmikillar auglýsingasamkeppni sem Upplýs-
ingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Brussel (UNRIC)
hefur hleypt af stokkunum. Keppnin sem nær til allra
Evrópulanda hefur að markmiði að kynna Þúsald-
armarkmiðin um þróun (MDGs). Fyrstu verðlaun eru
5.000 evrur eða jafnvirði um 800 þúsund íslenskra
króna.
Morgunblaðið og Eyjan.is eru samstarfsaðilar Sam-
einuðu þjóðanna á Íslandi en fjölmörg stórblöð í Evr-
ópu leggja keppninni lið og nægir að nefna breska blað-
ið Guardian, El País á Spáni, La Stampa á Ítalíu og
Libération í Frakklandi. Hjarta keppninnar er vefsíðan
www.wecanendpoverty.eu. Keppnin er opin öllum íbú-
um Evrópuríkja, jafnt fagmönnum sem áhugamönnum
sem hafa áhuga á að leggja lóð sína á vogarskálarnar í
baráttunni gegn fátækt í heiminum.
„Við höfum nú þegar fengið 300 tillögur frá 25 lönd-
um og keppnin er varla byrjuð,“ segir Árni Snævarr,
skipuleggjandi keppninnar á upplýsingaskrifstofu Sam-
einuðu þjóðanna, UNRIC. „Heimsóknir á síðuna nema
tugum þúsunda, þannig að það eru ekki aðeins góð
verðlaun í boði, heldur gott tækifæri fyrir hönnuði að
koma sér á framfæri. Sigurauglýsingin verður birt í
samstarfsfjölmiðlum okkar og þrjátíu bestu verða sett-
ar á sýningu, þannig að það er til mikils að vinna.“
Samkeppni SÞ um
auglýsingu gegn fátækt
Sameinuðu þjóðirnar vekja
athygli á þúsaldarmarkmiðum
Reuters
Fátækt Drengur leitar einhvers nýtilegs í rusli á strönd
í Baseco í Manilaflóa. 93 milljónir manna búa á Filipps-
eyjum og er talið að þriðjungur þeirra búi við fátækt.
Reglur um aðstoð Bjargráðasjóðs
vegna eldgossins í Eyjafjallajökli
kveða á um að sjóðurinn bæti fjár-
hagslegt tjón sem bændur verða fyr-
ir vegna uppskerurýrnunar. Undir
það fellur kaup á heyi og áburði.
Bændur á svæðum utan mesta
öskufallssvæðisins hafa sumir hverj-
ir ekki fengið nógu góðar upplýs-
ingar til að geta tekið ákvarðanir
um búskapinn í sumar, ekki síst hey-
skap, að því er fram kom í viðtölum
við bændur í Morgunblaðinu í gær.
Hildur Traustadóttir, formaður
stjórnar Bjargráðasjóðs, segir að að-
stæður bænda séu svo mismunandi
að erfitt sé að búa til almenna lausn
fyrir alla. Þeir verði sjálfir að
ákveða hvað best sé að gera, í sam-
ráði við héraðsráðunautana sem eru
trúnaðarmenn Bjargráðasjóðs. Sjóð-
urinn muni greiða fyrir það hey sem
þeir þurfa.
Í reglum um aðstoð Bjargráða-
sjóðs vegna eldgossins í Eyja-
fjallajökli kemur
fram að meðal
þess tjóns sem
sjóðurinn bætir
er uppskeru-
rýrnun á rækt-
arlandi vegna
öskufalls. Bæt-
urnar verða
greiddar sam-
kvæmt úttekt á
uppskeru á við-
komandi jörð við heyskaparlok árið
2010 og samanburði við uppskeru
áranna 2008 og 2009.
Hildur segir ekkert því til fyrir-
stöðu að sjóðurinn greiði tjón út fyrr
eða um leið og það liggi fyrir. Enn
hefur sjóðurinn enga reikninga
fengið.
Í lok apríl áætlaði Bjargráða-
sjóður að tjón sem hann bætir verði
um 190 milljónir kr. og hefur rík-
isstjórnin heitið að beita sér fyrir
nauðsynlegum fjárveitingum.
Bætir tjón vegna
uppskerurýrnunar
Hildur
Traustadóttir
Ljóst þykir að með brotthvarfi Halldórs Ásgrímssonar og Jóns Sigurðs-
sonar hafi Framsókn fært sig að landsbyggðarhliðinni, eða tekið sér
stöðu við „Skagafjarðarlínuna“ eins og það er orðað.
Sú staða hafi styrkst í sessi með tilkomu Guðna Ágústs-
sonar í embætti formanns enda hafi hann síður höfðað til
fólks á höfuðborgarsvæðinu en til sveita.
Valgerður Sverrisdóttir tók sem kunnugt er við af Guðna
í formannsembættinu en Sigmundur Davíð telur einsýnt að
Framsókn eigi ekki að reyna að „vera öðruvísi í Reykjavík en
á landsbyggðinni“.
Kveðst formaðurinn líta svo á að slík miðjustefna eigi
sér hljómgrunn en ummælin verður að túlka sem sneið til
Einars Skúlasonar og fylgismanna hans.
Verði einn en ekki tveir flokkar
SKAGAFJARÐARLÍNAN