Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 ✝ Eysteinn GísliÞórðarson fædd- ist á Þóroddsstöðum í Ólafsfirði 3. mars 1934. Hann lést á heimili sínu í Angels Camp í Kaliforníu í Bandaríkjunum 24. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún Sigurð- ardóttir, f. í Flatey á Breiðafirði 17. sept- ember 1895, d. 28. mars 1985 og Þórður Jónsson, fæddur í Hlíð í Skíðadal 12. desember 1897. Hann fluttist með foreldrum sínum að Þórodds- stöðum 1903, var bóndi á Þórodds- stöðum, d. 27. apríl 1988. Systkini Eysteins eru Jón Þórðarson, f. 1921, Sigurður Hólm, f. 1923, Ár- mann, f. 1929, María Sigríður, f. 1931 og Svanberg Jóhann, f. 1938. Fyrri kona Eysteins var Dóra Hjartar, f. 30. maí 1937 og synir þeirra eru Gunnar Þór, forstjóri, f. 3. júní 1958, börn hans og fyrrver- andi maka eru Stefán Thor, f. 12. júlí 1989 og Elise Mackenzie Dora, forstjóri Ofnasmiðjunnar. Eftir það fór hann aftur til Kaliforníu, hóf störf hjá Ampex Corporation, stýrði framleiðslu tölvu- og há- tæknibúnaðar og tók að sér fram- kvæmdastjórn og enduruppbygg- ingu Evrópudeildar fyrirtækisins í Belgíu frá 1980-1982. Eftir það tók hann við framkvæmdastjórn fram- leiðslu fyrir Ampex í Aust- urlöndum, Evrópu og Bandaríkj- unum. Árið 1986 réð japanski tölvuris- inn Fujitsu Eystein sem fram- kvæmdastjóra við uppbyggingu fyrirtækisins í Oregon í Banda- ríkjunum og varð hann aðstoð- arforstjóri Fujitsu America tveim- ur árum síðar. Hann lét af störfum þar 1990 og gerðist forstjóri tveggja annarra hátæknifyr- irtækja, In-Focus Systems og Imagraph, áður en hann fór á eft- irlaun árið 1996. Eysteinn rak einnig fasteignafyrirtæki ásamt eiginkonu sinni frá árinu 1980, sem er enn í rekstri. Eysteinn var mikill íþrótta- áhugamaður, stundaði tennis, golf og siglingar og hélt áfram að stunda skíðaíþróttina til 74 ára aldurs, hætti aðeins að ráði lækna vegna þess sjúkdóms sem tók líf hans. Minningarathöfn verður í Ólafs- fjarðarkirkju í dag, 4. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 14 og duftker jarðsett. f. 11. mars 1992, nú- verandi maki Gunn- ars er Yvonne Arata, f. 15. október 1959, og Leifur Egill, framkvæmdastjóri, f. 11. ágúst 1965, öll búsett í Kaliforníu. Eftirlifandi eig- inkona Eysteins er Pamela Parry, f. 25. apríl 1949, einnig bú- sett í Kaliforníu. Ey- steinn var mikill skíðaáhugamaður. Á sjötta áratugnum var hann einn af bestu skíðamönnum landsins. Hann keppti mikið heima og erlendis, þ.á m. á vetrarólymp- íuleikum 1956 og 1960 í Squaw Valley í Bandaríkjunum. Sautján ára flutti Eysteinn alfarið til Reykjavíkur og hóf nám í vél- smiðjunni Héðni. Árið 1955 fór hann til Svíþjóðar til náms í tækni- fræði og flutti árið 1960 með fjöl- skyldu sína til Kaliforníu. Þar vann hann í hátækniiðnaði og stofnaði sitt eigið fyrirtæki 1968. Hann kom til Íslands á árunum 1974-1975 þar sem hann gerðist Nú þegar jarðneskar leifar bróð- ur okkar Eysteins hafa verið fluttar heim til fæðingar- og uppeldissveit- ar hans til jarðsetningar langar okk- ur systkinin að minnast hans með nokkrum orðum. Við erum öll fædd og uppalin á Þóroddsstöðum í Ólafs- firði hjá foreldrum okkar Guðrúnu Sigurðardóttur og Þórði Jónssyni. Þegar Eysteinn var á fyrsta ári veiktist hann alvarlega af kíghósta og var ekki hugað líf en með mikilli umhyggju móður okkar og læknis tókst að sigrast á sjúkdómnum. Ey- steinn náði góðri heilsu og þroska. Honum gekk mjög vel í skóla, var fljótur að skilja og tileinka sér við- fangsefnin. Hann náði snemma góð- um tökum á að teikna og hanna ýmsa hluti, m.a. á barnaskólaárun- um teiknaði hann merki fyrir íþróttafélagið Leifur sem enn er notað í dag. Við systkinin á Þóroddsstöðum höfðum gaman af að leika okkur á skíðum. Eysteinn var fljótt góður í þeirri íþrótt og var um tíma einn af bestu skíðamönnum þessa lands. Á uppvaxtarárunum beindist hugur hans mikið að vélum og tækninýj- ungum. Þegar landbúnaðarjeppi kom í Þóroddsstaði 1946 og síðar Ferguson-dráttarvél 1949 hafði Ey- steinn mikið yndi af að fást við þau tæki. Hann var aðalökumaður Fergusonsins fyrsta árið og hélt dagbók um notkun hans og hirðingu þar sem nákvæmlega var farið eftir reglum þar um. Þegar Eysteinn var 17 ára flutti hann til Reykjavíkur og hóf nám hjá vélsmiðjunni Héðni. Sumarið 1955 fór hann til Svíþjóðar til náms í tæknifræði. Á þessum árum stund- aði Eysteinn skíðaíþróttina af miklu kappi og keppti mikið á skíðum heima og erlendis. Hann náði oft mjög góðum árangri. Skíðakeppnum hans lauk með keppni á vetraról- ympíuleikunum í Squaw Valley í Bandaríkjunum 1960. Þar náði hann ágætum árangri, líklega þeim besta sem Íslendingur hefur náð á vetrar- ólympíuleikum. Hann heillaðist af Bandaríkjunum og ákvað að flytja þangað með fjölskyldu sína sumarið 1960. Eftir það dvaldi hann lengst af í Bandaríkjunum. Þar vegnaði hon- um vel og voru honum falin þar ýmis ábyrgðar- og trúnaðarstörf við stjórnun fyrirtækja á sviði tölvu- og hátækni. Eftir að hann flutti frá landinu hélt hann áfram ágætu sambandi við okkur og fjölskyldur okkar. Við heimsóttum hann og nutum þá mik- illar gestrisni og umhyggju hjá hon- um og fjölskyldum hans, sem við höfðum mikla ánægju af og þökkum innilega fyrir. Þótt Eysteinn hafi bú- ið langdvölum erlendis unni hann alltaf Íslandi og æskustöðvunum í Ólafsfirði. Það var hans ósk að jarð- neskar leifar hans yrðu fluttar heim og settar hjá foreldrunum sem hvíla í Ólafsfjarðarkirkjugarði. Eftir að Eysteinn greindist með krabbamein fyrir nokkrum árum sýndi hann mikinn dugnað og kjark, ákvað að lifa áfram sem eðlilegustu lífi og sinna sínum áhugamálum, t.a.m. siglingum, tennis og skíðum. En að lokum sigraði krabbinn. Ey- steinn lést á heimili sínu í Angels Camp í Kaliforníu á jólanótt síðast- liðna. Við kveðjum kæran bróður með söknuði og þakklæti. Við send- um Pamelu, Leifi, Gunnari og fjöl- skyldum okkar innilegustu samúð- arkveðju. Jón, Sigurður, Ármann, Sigríður og Svanberg. Í minningu Eysteins. Einstakur frændi, vinur og vel- gjörðarmaður er kvaddur í dag. Minningar allt frá æsku- og ung- lingsárum okkar, til síðustu tíma, eru mér einkar dýrmætar. Ég átti því láni að fagna að vera ávallt vel- kominn til frændfólks míns á Þór- oddsstöðum í Ólafsfirði, þar sem Ey- steinn var fæddur og uppalinn. Þann stað reistu afi okkar og amma úr koti í fyrirmyndar bú á þeirra tíma mælikvarða. Þar var mér tekið sem einu barnanna. Segja má að frá Þór- oddsstöðum hafi í fyrri tíð borist vissir menningarstraumar um sveit- ina. Má þar nefna að reist var lítil rafstöð til heimilisnota. Mér er minnisstætt að fyrir fáum árum var ég staddur á bæjarhlaði litlu innar í sveitinni og bóndinn þar rifjaði upp minninguna um Þóroddsstaðaljósið, eins og hann orðaði það. En útiljósið á Þóroddsstöðum var látið loga og í hríðarfjúki vetra hafði bóndi það til marks um hvort óhætt væri að fara í kaupstað, eða niður í Horn, eins og það var kallað. Bóndi gerði smáhlé á sögu sinni en bætti því svo við að í raun hefðu þau verið mörg Þórodds- staðaljósin, svona í óeiginlegri merkingu. Við Eysteinn vorum næstir hvor öðrum að aldri af systkinunum hans og vorum sem bræður í leik og öllum þeim störfum sem við fundum uppá. Þessi vinarþráður slitnaði aldrei þó langt yrði á milli okkar þegar full- orðins- og starfsárin tóku við. Þvert á móti. Bréfin ótalmörgu sem hann skrifaði vitna um það. Einnig þær heimsóknir sem hann tók sér á hendur til mín þegar ég var við nám í Noregi og honum fannst upplagt að koma við, eins og eftir frækilega keppnisferð á Vetrarólympíuleikana í Cortina á Ítalíu. Hann sá til þess að ég fengi tækifæri til að vera við- staddur Holmenkollen-skíðamót þar sem hann var þátttakandi í alpa- greinum og varð meðal þeirra allra fremstu. Slíkur var hugur hans. Af- rek Eysteins í skíðaíþróttinni á Ís- landi munu seint verða jöfnuð enda þótt öll aðstaða til iðkunar íþrótt- arinnar sé nú gjörbreytt. Starfsævi Eysteins varð að mestu í Bandaríkjunum. Hann var hógvær maður, traustur og skarp- greindur enda var hann eftirsóttur stjórnandi stórra fyrirtækja í há- tækniiðnaði og einnig sem fyrirles- ari. Einnig voru honum falin trún- aðarstörf á opinberum vettvangi. Þegar mér bauðst leyfi frá störfum til starfsmenntunar kom hann því til leiðar að ég fengi tækifæri til þess í Oregon í Bandaríkjunum. Naut ég þar velvildar, vináttu og einstakrar gestrisni hans og konu hans, Pamelu Parry Thordarson. Þá eru ógleymanlegar þær heim- sóknir aðrar til þeirra þar sem við hjónin nutum gestrisni þeirra. Var þá oftar en ekki farið í góðar skemmtiferðir á bátnum þeirra, þar sem Eysteinn naut sín einkar vel. Síðustu æviár barðist Eysteinn við illvígan sjúkdóm og kom þá enn í ljós einstakt baráttuþrek hans og kjarkur. Þar hefur trú hans, sem hann hlaut í bernsku, aukið honum styrk. Pamelu, Gunnari og fjölskyldu, Leifi og systkinum Eysteins og fjöl- skyldum vottum við dýpstu samúð. Það er undursamlegt að vita að vin- átta og ljúfar minningar lifa líkams- dauðann. Jón Geir Ágústsson, Heiða Þórðardóttir. Þegar ég var unglingur dvaldi ég sumarlangt hjá frændfólki mínu í Kaliforníu og þar á meðal hjá Ey- steini, sem var þá nýfluttur frá Belgíu. Þar var vel tekið á móti mér í alla staði. Mér er mjög minnisstæð risastór krukkan full af Jelly beans sem hann hafði á eldhúsbekknum, og síðan þá minna Jelly beans mig allaf á Eystein, Eysteinn hló mikið þegar ég sagði honum það fyrir ekki svo löngu. Ég upplifði heilmargt nýtt þetta sumar, t.a.m. fór ég á rúlluskauta niður á Santa Monica- ströndina með Pamelu þegar Ey- steinn þurfti að sinna vinnunni. Þetta var líka í fyrsta skipti sem ég bjó í húsi með sundlaug og heitum potti í garðinum og baðherbergjum fyrir sérhvert svefnherbergi, fyrir mig þá fjórtán ára var þetta allt mikil upplifun. Eysteinn kom nokkuð oft til landsins þegar ég var yngri, en eftir að afi og amma féllu frá kom Ey- steinn sjaldnar. Hann var hins veg- ar alltaf í góðu sambandi við systk- ini sín, heimsóknir nokkuð tíðar og undanfarin ár höfðu hann og bræð- ur hans einnig mikið samband um tölvuna, bæði í hljóði og mynd, sem ekki allir menn á þeirra aldri treysta sér til. Einnig komu hann og fjölskyldumeðlimir á ættarmót og var alltaf jafn gaman að hitta þau. Eysteinn var alltaf mjög almenni- legur við mig, hafði gaman af að heyra hvað maður var að sýsla, og eftir að ég varð fullorðin hafði hann gaman af að ræða við mig um ýmis málefni. Ég heimsótti hann og Pa- melu er þau bjuggu á Florida stuttu eftir að þau lentu illilega í fellibyln- um Charley sem nærri eyðilagði bæinn Punta Gorda þar sem þau bjuggu. Eysteinn var mikill íþrótta- maður og sérlega unglegur og í góðu formi að sjá, en þá þegar var Eysteinn orðinn veikur og ekki auð- velt að lenda í fellibyl ofan á allt saman, enda fluttu þau fljótlega þaðan og aftur á vesturströndina. Á síðasta ári ákvað fjölskylda mín og mamma og pabbi að skella okkur til Kaliforníu í miðri kreppu til að heimsækja Eystein. Fyrir lá að krabbamein Eysteins gæti aðeins farið á einn veg. Þrátt fyrir að veik- indi hans hefðu tekið sinn toll þá bar hann sig vel, lét hann ekkert stoppa sig og fór meira að segja með okkur í siglingu á snekkjunni sinni sem var hans líf og yndi. Við áttum mjög góða og skemmtilega daga með honum, Pamelu og strák- unum. Það var mjög vel tekið á móti okkur af öllum og minningin lifir ljúft. Ég votta Pamelu, Dóru, Leifi, Gunnari og fjölskyldum mína dýpstu samúð. Sigrún Eva Ármannsdóttir. Haustið 1954 fór ég í nám til Reykjavíkur. Fyrir nokkru höfðu Guðrún og Þórður Jónsson frá Þór- oddsstöðum í Ólafsfirði flutt til Reykjavíkur. Eftir nokkra eftir- grennslan var mér sagt að þau ættu heima á Háteigsvegi 14, beint á móti Ofnasmiðjunni. Ég fór því til þeirra og var mér tekið afar vel og boðið strax upp á góðgerðir. Synir þeirra Eysteinn og Svanberg bjuggu hjá þeim og voru einmitt að fara í bíó og buðu mér að koma með ef ég hefði áhuga. Það má segja að ég hafi orðið heimagangur hjá þeim eftir þetta, því að varla leið sá dag- ur að við hittumst ekki og gerðum okkur eitthvað til gamans. Skemmtilegast þótti okkur þegar Eysteinn fékk gamla Dodge-inn lánaðan hjá Jóni bróður sínum á Reykjalundi og gátum við þá spók- að okkur á honum í bænum. Skíðaíþróttin átti allan hug Ey- steins. Hann lærði undirstöðuatriði skíðaíþróttarinnar af Ármanni bróður sínum og einnig hjá fyrrver- andi skíðameisturunum í Ólafsfirði, þeim Þorvaldi Ingimundarsyni, Stefáni Ólafssyni og Ólafi Stefáns- syni. Þeir sáu hvað í honum bjó og hvöttu hann óspart til skíðaiðkana. Árið 1951 tók Eysteinn í fyrsta sinn opinberlega þátt í Skíðamóti Norðurlands og sigraði þá í C- flokki í svigi. Næsta ár hlaut hann 2. verðlaun í svigi og 3. verðlaun í bruni á Skíðamóti Íslands. Sigur- gangan var þar með hafin og gat ekki annað en legið upp á við. Hann varð fimmfaldur Íslandsmeistari á Skíðamóti Íslands á Ísafirði 1956 og vann allar alpagreinarnar og auk þess stökkið. 1955 keppti hann fyrst erlendis á Holmenkollenmóti í Noregi og árið eftir á Ólympíuleik- unum í Cortina á Ítalíu og 1960 í Squaw Valley í Bandaríkjunum og hlaut þar bestan árangur sem Ís- lendingur hafði náð fram að þessu. Eysteinn reyndi ætíð að ná fram því besta sem hægt var í skíða- íþróttinni en það hafðist ekki nema með þrotlausri æfingu og góðri lík- amsþjálfun. Hann sagði í viðtali að hann hefði lært að tapa og sigra og fengið margar byltur á ferð niður brekkurnar, en allt þetta þroskaði hann og bjó hann undir átök á öðr- um sviðum síðar meir. Þó að Ey- steinn væri löngu fluttur frá Ólafs- firði og hættur að keppa fyrir þá, litu Ólafsfirðingar mjög upp til hans og glöddust yfir velgengni hans. Eysteinn miklaðist ekki af ár- angri sínum. Ætíð fór hann beint til samkeppenda sinna og óskaði þeim til hamingju með árangurinn og hvatti þá til áframhaldandi æfinga og vonaði að þeir næðu lengra næst. Þetta lýsir Eysteini mjög vel, hann var kurteis og glaðlegur og gaf sér ávallt tíma til að ræða við fé- laga sína. Þannig var það ætíð er við hittumst síðar meir, er hann kom til landsins í heimsóknir, eftir að hann flutti til Bandaríkjanna. Síðast hitti ég hann og konu hans Pamelu þegar þau komu hingað en hún var þá að afhenda Skíðasam- bandi Íslands farandbikar, „Ey- steinsbikarinn“, ásamt veglegri peningagjöf til handa þeim skíða- manni sem næði bestum árangri vetrarins í alpagreinum og skyldi afhent í lok skíðavertíðar. Ég vil þakka Eysteini fyrir þann tíma sem við vorum saman sem er mér ógleymanlegur. Sveinbjörn Sigurðsson frá Vatnsenda. Eysteinn Gísli Þórðarson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GEIR ÞÓRIR BJARNASON, Sunnuhlíð, Suðursveit, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Kálfafellsstaðarkirkju laugardaginn 5. júní kl. 14.00. Valgerður Leifsdóttir, Bjarni Sævar Geirsson, Svala Ósk Óskarsdóttir, Leifur Geirsson, Valgeir Halldór Geirsson, Ragnheiður Hafsteinsdóttir, Ragnar Sölvi Geirsson, Berglind Ágústsdóttir, Júlía Ingibjörg Geirsdóttir, Ingvar Þórir Geirsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður míns, bróður og frænda okkar, BJARNA HELGASONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4B Hrafnistu, Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Sigurjón Ingiberg Bjarnason, Helgi Helgason og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.