Morgunblaðið - 04.06.2010, Side 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ ERT EKKI
AÐ MISSA AF
MIKLU... FJÖRIÐ
BYRJAR HVORT EÐ
ER EKKI FYRR EN
SÓLIN SEST
KOMSTU
EKKI MEÐ GLAS
HANDA MÉR? GRETTIR!!
ÞEGAR FÓLK
TEKUR TEPPIÐ
AF BARNI ÞÁ
VEIT ÞAÐ
EKKI HVAÐ
ÞAÐ GERIR!
SJÁ!ÉG Á ERFITT MEÐ AÐ ANDA...ÉG FÆ TÁR Í AUGUN...
OG Á ERFITT MEÐ AÐ...
LÍFIÐ ER AÐ SLÁST,
RÆNA, DREKKA BJÓR,
SKEMMTA SÉR OG SPILA!
PABBI,
HVAÐ ER
LÍFIÐ?
EN EKKI
SEGJA MÖMMU
ÞINNI HVAÐ
ÉG SAGÐI
JÁ, ÞETTA
EINA ÚTVARP
KOSTAÐI JAFN
MIKIÐ OG ÖLL
HIN TIL
SAMANS ÞAÐ ER ALLTAF GOTT
AÐ LÆRA EITTHVAÐ
NÝTT UM SJÁLFAN SIG
HM... ÞETTA ERU
ANSI FLOTTAR
BJÓRKRÚSIR
SELDIR ÞÚ ALLT
ÚTVARPSSAFNIÐ ÞITT?
ÉG ÆTLA AÐ GEYMA ÞAÐ TIL
AÐ MINNA MIG Á AÐ ÉG MÁ
EKKI MISSA MIG Í EINHVERRI
SÖFNUNARÁRÁTTU
ÉG KOMST EKKI
ÞAR SEM ÉG ER Í
DAG MEÐ ÞVÍ AÐ
VERA HRÆDDUR!
FARÐU NÚ OG NÁÐU
ÞESSUM MYNDUM!
SKAL
GERT
ROBBIE!ÞÚ ERT ANSI
HUGRAKKUR AÐ
HUNSA HÓTANIR
BIG-TIME
ÉG ÞARF AÐ RÁÐA
LÍFVÖRÐ, EINS
OG SKOT!
Meira um
Leiðarljós
Mig langar að taka
undir með þeim mörgu
sem láta í ljós óánægju
með framkomu RÚV
gagnvart áhorfendum
Leiðarljóss. Sí og æ er
þátturinn tekinn af
dagskrá. Ómerkileg
íþróttamót eru látin
ganga fyrir þáttunum.
Hve margir ætli horfi á
útsendingar frá lang-
dregnum og leið-
inlegum íþróttamót-
um? Hins vegar er
mikill fjöldi fólks sem
horfir á Leiðarljós daglega og hefur
ánægju af. Þessa ánægju þykir við
hæfi að taka af okkur hvenær sem
er. Til þessa hef ég hringt í Rík-
isútvarpið og látið í ljós hve rangt
mér þykir þetta. Og nú er komið að
þér, kæri Velvakandi, að taka við
sorgarsöngnum. Vonandi láta fleiri í
sér heyra þannig að Páll útvarps-
stjóri taki nú við sér og sjái (Leiðar)
ljósið. Og bæti um betur og kæti
okkur aðdáendur með því að sýna
þessa þætti reglulega og án þess að
láta þá mæta afgangi eins og hingað
til hefur tíðkast.
Með bestu kveðju.
Auður.
Útsendingar í
læstri dagskrá
Á dögunum gerði
Knattpyrnusamband
Íslands samstarfs-
samning við Stöð 2
Sport (365 miðla) um
útsendingar frá fót-
bolta. Er um að ræða
stórátak til að auka
sýnileika íslenskrar
knattspyrnu og til að
auka almennan áhuga
á íþróttinni. Fjöldi
beinna útsendinga er
fyrirhugaður frá Visa-
bikarkeppni karla, út-
sendingar frá úti-
leikjum A-landsliðsins o.fl. o.fl. Eða
eins og þar segir: „… stórauka
stuðning og umfjölllun um fótbolta-
iðkun æskunnar“.
Sá sem þetta ritar er ekki á móti
aukinni umfjöllun um fótbolta, en
hins vegar er spurningin hvernig
KSÍ, sem er ein stærstu fjölda-
samtök Íslands, getur gert samning
við sjónvarpsstöð um útsendingar í
læstri dagskrá, sem einungis lítið
brot af iðkendum hefur aðgang að.
Áhugamaður um knattspyrnu.
Ást er…
… brothætt.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíðastofa opnuð kl. 9.
Bólstaðarhlíð 43 | Ferðlag fimmtud.
10. júní kl. 13, förum í Selvoginn, skoð-
um Strandarkirkju, kaffi og meðlæti í
Galleríi Þorkelsgerði, skrán. og greiðsla
eigi síðar en 8. júní. Uppl. í s. 535-
2760.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
stólajóga kl. 10.15, boccia kl. 10.45.
Félag eldri borgara Kópavogi | Síð-
ustu forvöð að skrá sig og ganga frá
greiðslu í Austurlandsferðina nk. föstu-
dag 4. júni. Uppl. hjá Kristmundi Hall-
dórssyni s. 895-0200.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans
í Ásgarði Stangarhyl 4 sunnudagskvöld
kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30 og kl. 13, jóga kl. 10.50, félagsvist
kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður og jóga kl. 9.30, ganga kl. 10. Hið
árlega júní-hádegisgrill verður í Gull-
smára föstudaginn 11. júní kl. 12. Nokk-
ur ungmenni frá Skapandi sum-
arstörfum skemmta með tónlist.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opnar vinnustofur kl. 9.30-16, fé-
lagsvist FEBG kl. 13, opið til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9 -
16.30. Prjónakaffi fellur niður vegna
heimsóknar til Grindavíkur, lagt af stað
þangað kl. 13. Þriðjud. 8. júní kl. 13.30
,,Mannrækt trjárækt“, gróðursetning í
Gæðareit með leikskólabörnum frá
Hraunborg, miðvikud. 16. júní Kvenna-
hlaup ÍSÍ, skráning á staðnum og s.
575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Handverks-
sýning í dag kl. 14-17. Leikfimihópur
sýnir kl. 15. Kaffi og vöfflur.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi
kl. 11.30, brids kl. 12.30. www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Sumaropnun fé-
lagsmiðstöðvarinnar kl. 8 - 16.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Gönuhlaup, listasmiðja o.fl. kl. 9
og 13. Gáfumannakaffi kl. 15. Bíódagar
alla föstudaga kl. 15.30. Listasmiðjan
opin allan júnímánuð. Skráning í ferð til
Stokkseyrar þann 9. júní lýkur í dag, s.
411-2790.
Örsýning Listasmiðju t.d. útskurður,
postulínsmálun og bútasaumssýning
auk samsýningar Listasmiðju, Frí-
stundaheimilisins Sólbúa og Skapandi
skrifa. Listasmiðjan er opin í júnímán-
uði.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð, glerbræðsla kl. 9, enska kl.
11.30, tölvukennsla kl. 13.30. Sungið
við flygil kl. 14.30, kaffiveitingar kl.
14.30, dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl. 14.
Áður hafa verið birtar hér stök-ur úr Vísunni, en í það kver
valdi Kári Tryggvason skáld frá
Víðikeri. Er forvitnilegt að sjá,
hvaða stökur hann tekur eftir sýsl-
unga sína Þingeyinga.
Hjálmar Stefánsson fiðluleikari
og bóndi á Vagnbrekku orti:
Heitir Gola hryssa stinn,
hún er í fola bráðskotin,
brýtur í mola meydóm sinn,
mörg eru svola tilfellin.
Og svo kemur Þura í Garði:
Varast skaltu viljann þinn,
veik eru manna hjörtu.
Guðaðu samt á gluggann minn,
en gerðu það ekki í björtu.
Síðastur Mývetninganna kemur
síðan Arnþór Árnason, bróðir
Þuru:
Lítið mína léttúð græt,
lífinu er þannig varið.
Ennþá finnst mér syndin sæt,
sækir í gamla farið.
Sigurbjörn Jóhannsson frá Fóta-
skinni fór til Vesturheims. Hann
var faðir Jakobínu Johnson skáld-
konu. Eftir hann tekur Kári þessa
stöku:
Vondra róg ei varast má
varúð þó menn beiti;
mörg er Gróa málug á
mannorðsþjófa Leiti.
Indriði Þórkelsson á Fjalli var
merkilegt skáld og kvað fast að, en
gat slegið á mýkri strengi:
Finnst mér oft er þrautir þjá
þulið mjúkt í eyra:
– Þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
Konráð Vilhjálmsson á Hafralæk
var forn í skapi og forn í máli ekki
síður en Indriði og fer mörgum sög-
um af því. Hér leikur Konráð sér að
hringhendunni:
Björt á fjalla bláum múr
breiðir allan ljóma.
Lind af hjalla hoppar úr
hjarns og mjallar dróma.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Golu og fola