Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 41

Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 41
Menning 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Víkingaheimar 422 2000 | info@gudridur.com Ferðasaga Guðríðar - aukasýningar í júní Fös 4/6 aukas. kl. 20:00 Ö Lau 5/6 aukas. kl. 20:00 Ö Fös 11/6 aukas. kl. 20:00 Ö Lau 12/6 aukas. kl. 20:00 Ö Víkingaheimar, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F IÞ, Mbl IÞ, Mbl EB, FblEB, Fbl 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Dúfurnar HHHH IÞ, MBL Gauragangur (Stóra svið) Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Dúfurnar (Nýja sviðið) Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið ) Sun 6/6 kl. 20:00 k.6. Sun 13/6 kl. 20:00 aukas Lau 19/6 kl. 20:00 Ný aukas Þri 8/6 kl. 20:00 aukas Þri 15/6 kl. 20:00 aukas Sun 20/6 kl. 20:00 Ný aukas Mið 9/6 kl. 20:00 aukas Fös 18/6 kl. 20:00 aukas Í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports. ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Fíasól (Kúlan) Lau 12/6 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 15:00 Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 5/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00 Sun 13/6 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00 Sun 13/6 kl. 15:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00 Haustsýningar komnar í sölu! Hænuungarnir (Kassinn) Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Haustsýningar komnar í sölu! Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Fös 4/6 kl. 19:00 Fim 10/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 5/6 kl. 19:00 Fös 11/6 kl. 19:00 Aukas. Ath. sýningarnar hefjast kl. 19:00 Af ástum manns og hrærivélar (Kassinn) Fös 4/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Aðeins þrjár sýningar eftir! Herra Pottur og ungfrú Lok (Kúlan) Lau 5/6 kl. 13:00 Sun 6/6 kl. 13:00 Lau 5/6 kl. 15:00 Sun 6/6 kl. 15:00 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík Rokk (Kassinn) Fim 10/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Athyglisverðasta áhugasýning ársins! Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Lau. 05.06. kl. 17.00 Óperuveisla á Listahátíð Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einsöngvari: Kristinn Sigmundsson Kór: Óperukórinn í Reykjavík Aríur, kórar og forleikir eftir Rossini, Beethoven, Tsjajkovskíj, Verdi og Wagner. Uppselt Fim. 10. 06. kl. 19.30 Rumon kveður Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsdóttir Edward Elgar: Inngangur og Allegro Áskell Másson: Söngvar um vorið Dímítríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 10 Örfá sæti laus Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Í gær sendi Leiklistarsamband Ís- lands frá sér orðsendingu til sviðs- listafólk þess efnis að í ár muni Grímuverðlaunin eingöngu verða af- hent af fólki innan stéttarinnar, en ekki af ráðamönnum eða öðrum að- ilum utan listgreinarinnar. Orðsend- ingin er send út í kjölfar þess að Jón Atli Jónasson leikskáld lýsti því yfir í vikunni að hann neitaði að taka við tilnefningum til Grímunnar vegna þess að hann viðurkenni ekki Ólaf Ragnar Grímsson, sem er verndari verðlaunahátíðarinnar. Ása Rich- ardsdóttir, forseti Leiklist- arsambands Íslands, segir ákvörðun sambandsins þó tekna löngu áður en Jón Atli gaf út sína yfirlýsingu. Rætt á fundi í mars „Já, hún var tekin löngu áður. En við töldum enga ástæðu til að senda hana út, ekki frekar en margar aðr- ar ákvarðanir sem við erum að taka um Grímuna. En í ljósi þessarar yf- irlýsingar Jóns Atla ákváðum við að senda þetta bréf til sviðslistageirans eins og hann leggur sig, til þess að okkar fólk vissi hvernig í pottinn væri búið varðandi undirbúning Grímunnar. Þetta eru semsagt ekki viðbrögð okkar við yfirlýsingu hans, en okkur fannst ástæða til þess að upplýsa fólk nú,“ segir Ása, og bætir því við að í raun hafi hugmyndin um að fara þessa leið fyrst verið rædd á fulltrúafundi 15. mars síðastliðinn. „Þar var mikil og góð umræða um gildi og hlutverk Grímunnar og það ríkti mikill einhugur um að upphefja hana sem uppskeruhátíð listgrein- arinnar sjálfrar og þeirra sem starfa innan hennar. Og meðal annars var umræða um það, og þetta er eitt- hvað sem margir voru á, að gera minna úr hlutverki ráðamanna, en sú þróun hefur orðið bæði á Grím- unni, Tónlistarverðlaununum og Edduverðlaununum, að ráðamenn afhenda verðlaun. Og í ljósi þess- arar umræðu í fulltrúaráðinu þá tók stjórnin þessa ákvörðun.“ Ása segir þó ekki standa til að falla frá því að forseti Íslands sé verndari verðlaunanna. „Það er ákvörðun sem var tekin þegar stofn- að var til Grímunnar, að fara þess á leit við forsetaembættið að þjóð- höfðinginn á hverjum tíma sé vernd- ari verðlaunanna. Og þeirri ákvörð- un hefur ekki verið breytt.“ – En hefur það verið rætt? „Nei. Forsetinn hefur stutt vel við Grímuna og verið góður bakhjarl hennar. Við viljum aðskilja á milli forsetaembættisins og mannsins, sem virðist vera svolítið að vefjast fyrir fólki. Þannig að, nei, það hefur ekki verið rætt. Vilja ákveðna fjarlægð – Er það þín tilfinning að listafólk vilji setja ákveðna fjarlægð milli listanna og atvinnulífsins og stjórn- málanna? „Já, það myndi ég segja. Svona al- mennt held ég að það sé eitthvað sem fólk horfir til. Og við erum öll bæði að líta í eigin barm og taka líf okkar til endurskoðunar með marg- víslegum hætti. Tilfinning mín er sú að fólk vill spyrja spurninga, og fólk vill velta fyrir sér gildum, sem það gerði kannski minna þegar við vor- um í einhverjum „algleymingi.“ Leikhúsið er mikilvægur vettvangur fyrir endurskoðun samtímans og mörg þeirra verka sem hafa verið á fjölum leikhúsanna, bæði í vetur og í fyrravetur og jafnvel í aðdraganda hrunsins, spyrja áleitinna spurn- inga. Það er eitt mikilvægasta hlut- verk leikhússins.“ Ása segir Leiklistasambandið hafa sett sig í samband við Jón Atla og upplýst hann um ákvörðunina sem var tekin í apríl, en segist ekki vita hvort það hafi breytt afstöðu hans. Ekki náðist í Jón Atla í gær. Engir ráðamenn afhenda verðlaun Morgunblaðið/Eggert Gríman Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Helga Tóm- assyni listdansara heiðursverðlaun á Grímunni í fyrra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikhúsið Ása Richardsdóttir er forseti Leiklistarsambands Íslands.  Stendur ekki til að falla frá því að forseti Íslands sé vernd- ari Grímuverðlaunanna segir forseti Leiklistarsambandsins Ein kvikmynd verður frumsýnd í ís- lenskum kvikmyndahúsum í dag, Get him to the Greek. Gamanleik- ararnir Jonah Hill og Russell Brand fara með aðalhlutverk í myndinni en í henni segir af ungum manni og duglegum sem kemst í starfsþjálfun hjá útgáfufyrirtæki með því að beita brögðum. Hann er sendur til London og verkefnið að fylgja rokkstjörnunni Aldous Snow til Los Angeles en rokkarinn á að halda tónleika þar í borg, í The Greek Theatre. Í fyrstu virðist þetta auð- velt verkefni en annað kemur á daginn. Leikstjóri myndarinnar er Nicholas Stoller. Erlendir dómar: Metacritic: 67/100 Variety: 70/100 The Hollywood Reporter: 50/100 Entertainment Weekly: 75/100 Rokkari til vandræða Frumsýnd Get Him to the Greek er gamanmynd. FRUMSÝNING»

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.