Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 48

Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 48
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 155. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Maddý í Húsinu fær ekki póst 2. Skagamenn og Fjölnir áfram 3. Sumar og sól í kortunum 4. Trúnaðarsamtöl á leynifundum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarkonan Björk Guðmunds- dóttir er án efa ein besta landkynn- ing Íslands. Í gær setti hún inn á Facebook-síðu sína tengil inn á nýja landkynningarmyndbandið Inspired by Iceland. Viðbrögð vina hennar og aðdáenda hafa ekki látið á sér standa, seinnipartinn í gær voru rúm- lega 2500 manns búnir að setja „like“ (líkar þetta) á það og hátt í 330 að skrifa athugasemdir. Björk kynnir landið  RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, auglýsir eftir íslenskum kvikmyndum til að sýna á hátíðinni sem verður haldin dagana 23. sept- ember til 3. október 2010. Auglýst er eftir leiknum kvikmyndum, heimild- armyndum og stutt- myndum. Skila- frestur fyrir myndir rennur út hinn 15. júlí næstkomandi. Allar nánari upp- lýsingar má finna á www.riff.is. Auglýst eftir íslensk- um myndum á RIFF  Í dag sendir tónlistarmað- urinn Markús Bjarnason frá sér sólóplötuna Now I know, platan kemur út hjá Brak-hljóm- plötum og inni- heldur sjö smelli. Markús er mörgum kunnugur einna helst sem söngvari þeirra frábæru hljómsveita Skáta og Sofandi. Markús sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu Á laugardag Austan 3-8 m/s og víða bjartviðri, en hvassari og dálítil væta öðru hverju við suðurströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum norðaustanlands. Á sunnudag (sjómannadaginn) Hæg breytileg átt, skýjað að mestu og skúrir sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum. Hiti yfirleitt á bilinu 9 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s við suðurströndina, annars hægari vindur. Víða bjartviðri N- og NV-lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast í innsveitum en svalara á Austfjörðum. VEÐUR Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var hetja FH- inga í gærkvöld þegar þeir slógu bikarmeistarana frá því í fyrra, Breiðablik, út úr VISA-bikarnum. Gunnleifur varði þrjár vítaspyrnur í röð í vítaspyrnukeppni eft- ir að liðin skildu jöfn, 1:1, í framlengdri við- ureign liðanna á Kópavogsvell- inum. »3 Gunnleifur felldi Blika úr bikarnum Oddur Gretarsson handboltamaður frá Akureyri var valinn í íslenska landsliðið í gær. Hann verður vænt- anlega með því í Brasilíu á þjóðhátíð- ardaginn, sama dag og hann á að út- skrifast frá Menntaskólanum á Akureyri. Oddur hyggst aflýsa veisl- unni en afþakkar ekki gjafirnar. Guð- mundur Þ. Guðmunds- son valdi 21 leikmann fyrir leiki gegn Dan- mörku og Brasilíu. »1 Aflýsir útskriftarveisl- unni fyrir Brasilíuför Þrjú lið úr 1. deild komust í gærkvöld í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu. Tvö þeirra slógu út úr- valsdeildarlið, Skagamenn sigruðu Selfyssinga, 2:1, og unnu þar með sinn fyrsta leik á tímabilinu, og Fjöln- ismenn sigruðu Hauka í Hafnarfirði, 2:0. Þróttarar eru líka komnir áfram, sem og Fylkir, Valur, Keflavík, Stjarn- an og Grindavík. »2-3 Fyrsti sigurinn hjá Skagamönnum í sumar ÍÞRÓTTIR Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Litla kaffistofan hefur verið einn vinsælasti áningarstaður ferðalanga í áraraðir. Hún er einn elsti og lík- lega þekktasti greiðasölustaður við þjóðveg 1. Litla kaffistofan tilheyrir Olís og var stofnuð 4. júní árið 1960. Hún fagnar því 50 ára afmæli í dag. Olís ætlar að bjóða viðskiptavinum afslátt á bensínlítrann í tilefni dags- ins. Öll þessi ár hefur fólk staldrað við, tekið eldsneyti og gætt sér á ný- bökuðum pönnukökum, kaffisopa og fleira góðgæti. Litla kaffistofan er þekkt fyrir góðan anda og gott starfsfólk sem veitir frábæra þjón- ustu og fyrir vikið er ekki annað hægt en að sækja staðinn aftur og aftur. Frægasta bensínstöðin „Öll flóran í þjóðfélaginu kemur hingað og heilsar. Allir þekkjast og hingað koma menn af götunni til þess að spjalla saman um daginn og veginn og um pólitíkina og íþróttir,“ segir Stefán Þormar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Litlu kaffistof- unnar, en hann hefur rekið staðinn síðan 1993. Stefán er mikill íþrótta- áhugamaður og hefur komið upp stóru safni með myndum af leik- mönnum og viðburðum úr íþróttalíf- inu. „Þetta er talið stærsta safn í einkaeigu,“ segir Stefán stoltur, enda góð ástæða til. Hann bætir við að fótboltaliðið Bayern München hafi sagt frá safninu í blaði sínu ásamt mynd af Litlu kaffistofunni. Einnig sögðu þeir að þetta væri frægasta bensínstöð á Íslandi. Íslensk kjötsúpa er á matseðl- inum á hverjum degi á Litlu kaffi- stofunni. Súpan hefur notið mikilla vinsælda og er fræg fyrir að vera hreint lostæti. „Hún getur verið jafn góð og annars staðar en hvergi betri,“ segir Stefán og hlær. „Þegar fólk segir að súpan sé eins og hjá ömmu eða mömmu, þá vitum við að vel hefur tekist,“ heldur hann áfram. Vitað er til þess að margir komi keyrandi úr Reykjavík til þess eins að gæða sér á súpunni. Stefán var gestrisinn og bauð blaðamanni að smakka súpuna og tók hann undir góða dóma. Stefán segir að það séu margir sem sakni þess að geta ekki fengið sér hamborgara og franskar, en vill meina að miklu fleiri þakki fyrir að hafa þetta þjóðlegt, enda vilja margir fá „heimilismatinn góða.“ Í gegnum tíðina, þegar mikið hef- ur snjóað og vetur harður, hefur Litla kaffistofan oft verið björg- unarskýli fyrir ferðalanga. Fólk kemur þar inn til að hlýja sér og fá upplýsingar um veður og færðina við vinalegar móttökur. Litla kaffistofan fimmtug í dag  Ávallt heitt á könnunni fyrir viðskiptavini Morgunblaðið/Jakob Fannar Gestrisinn Olís býður viðskiptavinum sínum upp á kaffi og með því og afslátt á hvern bensínlítra á afmælisdaginn. Litla kaffistofan var stofnuð 4. júní 1960 og fagnar því 50 ára afmæli sínu í dag. Hún hefur verið þekkt fyrir hlýlegar móttökur og góðan anda. Stefán Þormar Guðmunds- son er framkvæmdastjóri hennar og hefur verið það í um 17 ár. Vegurinn er fjölfarnasti vegur landsins og fyrr á öldum var mikið um að fólk yrði úti. Aðspurður seg- ist Stefán ekki finna fyrir yfirnátt- úrulegum anda en bætir við að menn hafi nefnt það við sig. „Menn segja að hér sé mikið í kringum okkur, en það er alltaf gott og við höfum hér góða verndara,“ segir Stefán brosandi. Litla kaffistofan er einn elsti án- ingarstaðurinn við þjóðveg 1. Hún er enn í upprunalegri mynd. Ef til þess hefur komið að stækka hefur aðeins verið bætt við húsið. Litla kaffistofan hefur sankað að sér verðlaunum fyrir frábæra þjónustu og góðar móttökur og það segir allt sem segja þarf. Einn elsti áningarstaðurinn FJÖLFARNASTI FJALLVEGURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.