Morgunblaðið - 30.06.2010, Síða 17

Morgunblaðið - 30.06.2010, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010 Stór klukka eða lítill maður? Klukkan góða á Lækjartorgi hefur tifað í áttatíu ár. Engum sögum fer af því hvort hún hefur stækkað á þeim tíma eða hvort iðnaðarmaðurinn sé svona smávaxinn. Eggert Við hljótum að fagna dómi Hæstaréttar – ekki síst í ljósi þess að almenningur á Íslandi hefur nú í annað sinn risið upp gegn fjármagnseigendum og neitað að taka á sig ósann- gjarnar skuldbindingar. Í fyrra skiptið fór krafa fjármagnseig- enda á hendur skattgreið- endum í þjóðaratkvæðagreiðslu og í seinna skipti dæmdi Hæstiréttur um lögmæti krafna á hendur einstakling- um. Allt frá bankahruni hef ég verið þeirrar skoðunar að stjórnvöld ættu að beita al- mennum aðgerðum til að færa niður skuldir heimilanna. Afstaða mín mótast annars veg- ar af reynslu annarra þjóða sem farið hafa í gegnum fjármálakreppu og hins vegar af sanngirnissjónarmiðinu um að dreifa beri byrðum kreppunnar milli lántakenda og lán- veitenda. Stjórnvöld létu því miður hjá líða að nýta tækifærið sem gafst til að beita al- mennum aðgerðum og það mun reynast okkur dýrkeypt. Verðtryggingin dýpkar kreppuna Ísland sker sig úr öðrum ríkum sem farið hafa í gegnum fjármálakreppu hvað varðar útbreiðslu verðtryggingar. Sérfræðingar sem rannsakað hafa fjármálakreppur full- yrða að verðbólgurýrnun óverðtryggðra lána hafi komið í veg fyrir að kreppan yrði enn dýpri, þ.e. varnað enn fleirum gjaldþrotum. Gjaldþrot eru kostnaðarsöm fyrir sam- félagið, þar sem fleiri neyðast til að afla tekna í svarta hagkerfinu og gjaldþrot fyrirtækja eru töp- uð atvinnutækifæri. Það voru því mikil vonbrigði fyrir mig að ríkisstjórn Sam- fylkingar og VG skyldi hafna al- mennum aðgerðum fyrir heim- ilin í landinu og innleiða þess í stað sértækar aðgerðir fyrir þá sem eru ófærir um að standa í skilum. Sértækar aðgerðir eru dýrar og tímafrekar í fram- kvæmd og ekki í samræmi við ráðleggingar sérfræðinga um að mikilvægt sé að ná fram leiðréttingu skulda fljótt ef skuldavandinn á ekki að tefja end- urreisnarferlið. Til viðbótar við sértækar lausnir hefur m.a. efnahags- og við- skiptaráðherra hvatt skuldsett fólk til að leita réttar síns með því að fara í mál við lánveitendur um lögmæti krafna. Dýrasta lausnin valin Það er m.ö.o. komið undir ógæfu hvers og eins hvort hann/hún fær lausn sinna skulda- mála í gegnum velferðarkerfið og gæfu hvers og eins hvort hann/hún fær lausn sinna skuldamála í gegnum dómskerfið. Gæfan felst í því að hafa skrifað undir rétt- an samning við lánardrottna sína. Að mínu mati er þetta kostnaðarsamasta lausnin á skuldavanda heimila, þar sem einstaklings- miðaðar lausnir velferðar- og dómskerfisins draga endurreisnina á langinn, ýta undir óánægju almennings og auka ójöfnuð í sam- félaginu. Lausn stjórnvalda á skuldavand- anum lítur enn verr út nú þegar komið hef- ur í ljós að endurreisn bankakerfisins gerði ekki ráð fyrir að gengistryggð lán yrðu dæmd ólögleg heldur aðeins að stór hluti fólks með slík lán yrði gjaldþrota. Hvernig gat það gerst að heilt bankakerfi var reist á þeirri fullvissu að gengistryggð lán væru lögleg? Af hverju var ekki leitað álits lög- fræðinga á ólögmæti þeirra? Slíkt álit hefði bætt samningsstöðu ríkisins í uppgjörinu milli gömlu og nýju bankanna. Þessum spurningum þurfa fjármálaráðherra og efna- hags- og viðskiptaráðherra að svara. M.ö.o. hver ber ábyrgð á því að hér á landi var reist alltof dýrt eða stórt bankakerfi? Eitt af hlutverkum AGS hér á landi er að aðstoða ríkið við semja við lánardrottna um skuldir. Hvað ráðlagði sjóðurinn íslenskum stjórnvöldum í uppgjörinu við kröfuhafa gömlu bankanna? Tími almennra aðgerða liðinn Eftir dóm Hæstaréttar er tími almennra aðgerða til að taka á skuldavanda heim- ilanna liðinn og það harma ég. Það voru mistök að láta málið fara í þennan farveg, þar sem hér mun allt loga í málsóknum næstu misserin. Við þurfum dómsnið- urstöður um m.a. vaxtastigið á gengistrygg- ðum lánum frá og með 16. júní í ár og hvort öll gengistryggð fasteignalán teljist vera ís- lensk lán. Hvorki Alþingi né ríkisstjórnin geta né eiga að taka fram fyrir hendurnar á dómskerfinu. Ef það verður gert, þá hafa kjörnir fulltrúar þjóðarinnar endanlega gengið frá trúverðugleika stjórnkerfisins. Afleiðing þess mun birtast í kjöri skemmti- krafta eða jafnvel þjóðernisöfgahópa eins og í Ungverjalandi en slíkir hópar berjast fyrir einangrun landsins frá áhrifum alþjóðafjár- magnsins. Hvað varðar verðtryggðu lánin, þá tek ég undir með tillögu Þórs Saari um að nota beri ofgreiddar vaxtabætur til þeirra sem tóku gengistryggð lán til að létta undir með þeim sem eru með verðtryggð lán. Ég vil þó taka fram að slík aðstoð mun ekki duga til að lægja óánægjuöldurnar meðal þeirra sem tóku verðtryggð lán. Þak á verðtrygginguna þarf líka að koma til. Kostnaður ríkissjóðs? Draga þarf upp heildarmynd af áhrifum dóma Hæstaréttar á ríkissjóð. Er t.d. raun- hæft að reikna með að útgjöld ríkissjóðs aukist meira en tekjur hans? Það má ekki gleymast að á móti hærra framlagi rík- issjóðs með bönkunum koma auknar skatt- tekjur nú þegar fjármagnskostnaður margra útflutningsfyrirtækja mun lækka verulega. Minni skuldsetning heimila og fyrirtækja eykur líka eftirspurnina Eftir Lilju Mósesdóttur » Það er m.ö.o. komið undir ógæfu hvers og eins hvort hann/hún fær lausn sinna skuldamála í gegnum velferð- arkerfið og gæfu hvers og eins hvort hann/hún fær lausn sinna skuldamála í gegnum dómskerfið. Lilja Mósesdóttir Dýrasta leiðin valin til að taka á skuldum heimilanna Höfundur er þingmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.