Fréttablaðið - 12.10.2011, Side 46
12. október 2011 MIÐVIKUDAGUR30
Ef þú ert hjá Símanum getur þú
keypt þér heyrnartól með
20% afslætti í dag.
Magnaður
miðvikudagur!
G
ildir á m
eðan birgðir endast.
20% afsláttur
af heyrnartólum
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég mæli með Durum á horni
Laugavegs og Frakkastígs. Fékk
mér dönerkebab-vefju þar um
daginn sem var frábær. Murat
er alveg með þetta.“
Ari Eldjárn, meðlimur grínhópsins Mið-
Ísland.
„Þetta er svipaður fjöldi og hefur
verið undanfarin ár,“ segir Elísa-
bet Linda Þórðardóttir, dagskrár-
gerðarmaður hjá Ríkissjónvarp-
inu. Í kringum 150 lög bárust í
Söngvakeppni Sjónvarpsins, Euro-
vision, en umsóknarfrestur rann
út á mánudag.
Þetta eru ögn færri lög en bár-
ust í fyrra þegar 174 lög bárust og
nær ekki toppnum 2009 þegar yfir
200 lög reyndu að komast í aðal-
keppnina. Elísabet Linda segir að
nú taki við vinna hjá fimm til sex
manna dómnefnd sem fari yfir
öll lögin og er reiknað með því að
þeirri vinnu ljúki í byrjun næstu
viku en nöfn dómnefndarmeðlima
eru ekki gefin upp. „Endanlegur
listi ætti því að liggja fyrir eftir
hálfan mánuð eða þrjár vikur.“ Að
sögn Sigrúnar Stefánsdóttur, dag-
skrárstjóra Ríkissjónvarpsins,
hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hversu mörg lög munu keppa,
það sé verið að teikna keppnina
upp um þessar mundir en eins
og Fréttablaðið hefur greint frá
verða engar undankeppnir í ár
heldur fara lögin sjálfkrafa á sjálft
úrslitakvöldið.
Búið er að ákveða að Ragnhild-
ur Steinunn Jónsdóttir verði kynn-
ir keppninnar eins og undanfarin
þrjú ár en Sigrún hefur ekki tekið
ákvörðun um það hvort einhver
verði henni til halds og trausts.
„Ég missti auðvitað Guðmund
Gunnarsson, sem var miður, því
mér fannst hann standa sig vel og
ég hefði viljað hafa hann áfram,“
segir Sigrún sem þarf einnig að
fylla skarð Páls Óskars Hjálmtýs-
sonar en hann ákvað að segja skil-
ið við Eurovision-þáttinn Alla leið.
- fgg
150 lög bárust í Eurovision
KYNNIR KEPPNINA Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir kynnir Eurovision-keppnina
eins og undanfarin þrjú ár. 150 lög
bárust í keppnina í ár.
Bandaríska leikkonan Liv Tyler
brá undir sig betri fætinum
seinnipart mánudags og fór
ásamt kærastanum sínum, ljós-
myndaranum Theo Wenner, og
tveimur öðrum vinum sínum að
skoða hinn magnaða Þríhnúkagíg
í Bláfjöllum. Tyler flaug þangað í
þyrlu frá Þyrluþjónustunni sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
og skoðaði þetta mikla náttúru-
undur en ferðalagið niður á botn
gígsins tekur í kringum tólf mín-
útur með lyftu.
Þrátt fyrir mikla frægð hefur
Tyler og hennar föruneyti haft
hægt um sig en það var statt hér
vegna friðarsúlu Yoko Ono. Vísir.
is greindi þó frá því að hún hefði
verið stödd á skemmtistaðnum B5
þar sem einnig voru Sean Parker,
stofnandi Napster og einn aðal-
eigandi Facebook, Sean Lennon
og móðir hans, Yoko Ono. Þá var
sagt frá því á vef DV að Tyler
hefði verið hin alþýðlegasta þegar
hún hitti tvo aðdáendur á veit-
inga- og skemmtistaðnum Prik-
inu. Liv Tyler og föruneyti eru
nú farin af landi brott. - fgg
ÁLFADROTTNING Á ÍSLANDI Liv Tyler kom
hingað til lands í tengslum við friðarsúlu
Yoko Ono í Viðey ásamt kærasta sínum.
Þau eru nú farin af landi brott sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Liv Tyler naut lífsins í Þríhnúkagíg
Sverrir Þór Sverrisson og Þor-
steinn Guðmundsson eru kóngarn-
ir í íslenskri kvikmyndagerð það
sem af er þessu ári. Okkar eigin
Osló og Algjör Sveppi og töfra-
skápurinn eru einu íslensku mynd-
irnar sem hafa náð að rjúfa 10 þús-
und og 20 þúsund gesta múrinn en
tíu íslenskar myndir verða vænt-
anlega frumsýndar á þessu ári.
„Jú, það er fínt að vera bíó-
kóngur, þó ekki sé nema í einn
dag,“ segir Sverrir Þór í samtali
við Fréttablaðið en kvikmyndin
Algjör Sveppi og töfraskápurinn
hefur fengið flesta gestina á þessu
ári eða rúmlega 27 þúsund. Algjör
Sveppi hefur því selt miða fyrir
rúmar 27 milljónir. Sverrir viður-
kennir að aðsóknin sé vissulega
hvetjandi og fái hann til að velta
því fyrir sér hvort ekki sé ráð að
gera bara fjórðu Sveppa-myndina.
En ekkert hefur verið gefið út um
hvort Algjör Sveppi og töfraskáp-
urinn sé síðasta Sveppa-myndin.
„Maður ætti auðvitað ekki einu
sinni að hugsa um þetta. Og ég
sjálfur treysti mér alveg til að
leika áfram barn.“
Þorsteinn Guðmundsson var
himinlifandi með árangur Okkar
eigin Osló en myndin er tekju-
hæsta mynd ársins enn sem komið
er. Alls sáu rúmlega 23 þúsund
manns myndina sem skilaði tæp-
lega þrjátíu milljónum í miða-
sölu. Þorsteinn telur að svoköll-
uð fiðrilda-áhrif hafi haft mikið
að segja um hversu vel myndin
gekk. „Stemningin á tökustað var
frábær og þegar fimmtíu manns
líður svona vel þá hlýtur það að
smita út frá sér,“ segir Þorsteinn
en þegar Fréttablaðið ræddi við
hann lá hann kvefaður inni á hót-
elherbergi á Benidorm þar sem
tökur á sjónvarpsþáttunum Lífs-
leikni Gillz fara fram. Þorsteinn
segir þá einnig hafa verið heppna
með tímasetningu en myndin var
SVERRIR ÞÓR SVERRISSON: FÍNT AÐ VERA KÓNGUR EINN DAG
Sveppi og Þorsteinn mala
gull í kvikmyndahúsunum
frumsýnd í lok febrúar. „Það er
mikið sumar í myndinni og það
virtist vera það sem Íslendingar
þurftu á að halda þá.“
Tæplega 72 þúsund gestir hafa
séð þær sjö íslensku kvikmynd-
ir sem frumsýndar hafa verið
á þessu ári. Hafa Íslendingar
því keypt miða á íslenskar bíó-
myndir fyrir rúmlega 93 millj-
ónir íslenskra króna, sé miðað
við að miðinn kosti 1.300 krónur.
Tvær nýjar myndir voru frum-
sýndar fyrir hálfum mánuði:
Eldfjall Rúnars Rúnarssonar og
unglingamyndin Hrafnar, sól-
eyjar og myrra. Þær hafa hins
vegar átt ólíku gengi að fagna í
miðasölu. Tæplega fjögur þús-
und gestir hafa séð Eldfjallið en
aðeins 850 unglingamyndina. Í
vikunni verða síðan frumsýndar
tvær nýjar myndir: Borgríki eftir
Ólaf Jóhannesson og teiknimyndin
Hetjur Valhallar: Þór.
freyrgigja@frettabladid.is
TVEIR Á TOPPNUM
Sverrir Þór Sverrison og Þorsteinn
Guðmundsson eru aðalmennirnir
í íslenskum kvikmyndum það
sem af lifir ári. Okkar eigin Osló,
sem Þorsteinn skrifaði hand-
ritið að og lék aðalhlutverkið
í, er tækjuhæsta íslenska
kvikmynd ársins en flestir
hafa séð Algjöran Sveppa
og töfraskápinn.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.